Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2012

Forsetakjör og stjórnarskrárbreytingar.


Þegar næsta kjörtimabil forseta Íslands hefst, þá verður nuverandi stjórnarskra enn í gildi. Hins vegar setja væntanlegar breytingar á stjórnarskra, forsetakosningarnar i nokkurs konar uppnám, þar sem ekki mun liggja fyrir efnisleg niðurstaða varðandi þessar breytingar á stjórnarskrá, þegar forsetakjörið fer fram.
Væntanlegar breytingar á stjórnarskrá, kveða á um ákveðnar breytingar á embætti forsetans og því i rauninni, bæði kjósendur og væntanlegir kjósendur settir i ,,bobba".

Baldur Þórhallsson stjórnmalafræðingur og varaþingmaður Samfylkingarinnar, kastaði þeirri hugmynd fram i Silfri Egils, að í april eða maí nk. lægi fyrir á hvaða hátt Alþingi hyggðist breyta kaflanum um forsetann, í nýrri stjórnarskra, án þess þó að staðfesta þá breytingu með atkvæðagreiðslu. Þvi þa þyrfti að rjúfa þing og boða til kosninga, vegna þess að breyting a stjornarskrá, hefði átt sér stað.

Þetta sjónarmið Baldurs á vissulega rétt a sér, eins og öll önnur. En það skilur samt eftir nokkrar spurningar/athugasemdir.

Verði leið Baldurs farin, þá mun það verða svo, að hluta stjornarskrárinnar hafi verið breytt, áður en að þjóðin hefði gefið sitt svar varðandi þær breytingar. Enda stendur til, að hafa ráðgefandi þjóðaratkvæði um tillögur stjórnlagaraðs, samhliða forsetakosningum.

Einnig væri það svo, að þrátt fyrir einhvers konar samkomulag um breytingar, þá er i sjálfu sér engin trygging fyrir þvi, að þær breytingar verði endanlegar, þegar Alþingi greiðir atkvæði um þær, ári siðar eða svo, enda eitt ár langur tími i pólitík.

Eins gæti farið svo, að í ráðgefandi þjóðaratkvæðinu, sem halda á samhliða forsetakosningunum, að tillögum stjornlagaraðs verði hafnað af þjoðinni.
Hvað þá? Á þá samt að láta breytingarnar standa? Eða draga þær til baka?

Líklegast er þó heillavænlegast, að í ljosi aðstæðna, þá verði búið svo um hnútana, að þær breytingar á stjornarskrá, er lúta að embætti forseta Íslands, taki ekki gildi fyrr en i upphafi þess kjörtímabils, er hefst árið 2016.

Villigötur Riddarareglu Samræðustjórnmálanna.

Alveg með ólikindum hvernig Riddarareglu Samræðustjornmálanna (Samfylkingunni) tekst að gera þetta viðtal við Jón Bjarnason, að einhverjum votti um dálæti hægri manna á vinstri manninum Jóni Bjarnasyni.

Málið sem þessi frétt snýst um, er ekki eitthvað ,,spes hægri eða vinstri mál". Enda er andstaða við það þverpólitísk og hana hægt að finna í öllum flokkum, nema Samfylkingu.

 Reyndar eru fylgjendur umsóknarinnar einnig að fylgja í öllum flokkum. Enda aðild eða ekki aðild að ESB, þvepólitiskt mál.

Það er hægt að tala um dálæti vinstri mannsins Árna Þórs Sigurðssonar á hægri manninum Þorsteini Palssyni, þar sem þeir báðir styðja umsoknarferlið.


En samt er það nú svo, að utan við ESB málefnin, þá eiga hægri menn og Jón Bjarnason, fátt eða ekkert sameiginlegt í pólitík, líkt og gildir með þá Árna Þór og Þorstein.

Í utanríkismálum, öðrum en ESB-málum, er himinn og haf á milli Jóns og ímyndaðs aðdáendaklúbbs hans á hægri vængnum.  Sama er að segja um þá Árna Þór og Þorstein.

Í sjávarútvegsmálum og öðrum málum er snúa að atvinnuuppbyggingu og verðmætasköpun,  er himinn og haf á milli Jóns og ímyndaðs aðdáendaklúbbs hans á hægri vængnum.  Sama er að segja um þá Árna Þór og Þorstein.

Í velferðarmálum, er himinn og haf á milli Jóns og ímyndaðs aðdáendaklúbbs hans á hægri vængnum.  Sama er að segja um þá Árna Þór og Þorstein. 

Í efnahagsmálum og viðskiptamálum ásamt ríkisfjármálum, er himinn og haf á milli Jóns og ímyndaðs aðdáendaklúbbs hans á hægri vængnum.  Sama er að segja um þá Árna Þór og Þorstein. 

Þessi listi gæti án efa verið enn lengri.  En ef að hann nægir mönnum ekki til þess að sjá, á hvíklikum villigötum, Riddararegla Samræðustjórnmálanna er með þessu tali um dálæti hægri manna á vinstri manninum Joni Bjarnasyni, þá myndi lengri listi litlu við bæta.

En hvort að villigötur riddarareglunnar séu vegna valkvæðs málefnavanþroska, málefnalegri fátækt eða rökþrots, skal ósagt látið. 

 

 


mbl.is Forysta VG með of bogin hné
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ASÍ deild í Samfylkingunni?

Í pistli sínum á Pressunni segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akranes, frá formannafundi ASÍ vegna endurskoðunnar kjarasamninga sem haldinn var í gær.

http://www.pressan.is/frettir/lesafrett/ekki-nog-ad-gelta-orlitid-og-meina-sidan-ekkert-med-thvi-
Í pistlinum kemur fram að Vilhjálmur  hafi minnt forseta ASÍ á það, að í janúar 2009 hafi miðstjórn ASÍ krafist afsagnar þáverandi ríkisstjórnar, vegna svika hennar við launafólk í landinu.  Núna sé upp svipuð staða, ekki eitt einasta loforð stjórnvalda efnt og því væri það, að mati Vilhjálms,  í raun skylda ASÍ að krefjast afsagnar ríkisstjórnarinnar.  Enda er ASÍ hagsmunasamtök launafólks, en ekki stjórnmálaflokka.
Pistillinn endar svo á þessum orðum:
,,Hið eina rétta væri að verkalýðshreyfingin lýsti yfir fullkomnu vantrausti á þessa ríkisstjórn og krefðist þess að efnt yrði til kosninga tafarlaust, vegna síendurtekna svika við íslenskt launafólk. Það á alls ekki að skipta máli hvort ríkisstjórn er til hægri eða vinstri þegar verkalýðshreyfingin lýsir yfir vantrausti á ríkisstjórn vegna síendurtekna svika."

Þetta er rétt hjá Vilhjálmi. Samtök launafólks eiga ekki að láta kennitölu svikarana, hafa nokkuð að segja til um hvort afsagnarkrafa á ríkisstjórn, sé lögð fram eða ekki, vegna síendurtekna svika hennar. Samtök launafólks eiga að berjast fyrir hagsmunum þess fólks sem þau kenna sig við, en ekki einstaka stjórnmálaflokka.

Einelti og pólitísk aðför í ,,smáa letri" stjórnarsáttmálans?

Í stjórnarsáttmála Hinnar Norrænu velferðarstjórnar,  segir eitthvað á þann veg, að sækja skuli um aðild að ESB.   Til þess að ,,lokka" Vg-liða, í það minnsta suma, til samþykktar á umsókninni var, því  bætt við að þingmenn mættu berjast gegn málinu eða flykkja sér á bak við það, eftir því sem samviska þeirra og sannfæring segði til um. 

Hins vegar stendur hvergi í stjórnarsáttmálanum, hvaða örlög bíða þeirra sem aðra sannfæringu hafa fyrir málinu, en Samfylkingarinnar og  ekki fallbjóða sannfæringu sína.

Kannski kveður á um, í ,,smáa letri" stjórnarsáttmálans um  pólitíska aðför og einelti. Líkt og  Jón Bjarnason og fleiri félagar í  Vinstri grænum hafa mátt búa við? Þeim sem annt er um  trúverðugleika flokksins og síns eigin og eru ekki reiðubúnir að standa að svikum við kjósendur sína ?  Já eða þá í gremjulegum svipbrigðum, ísköldu augnaráði og formælingum Jóhönnu.   Hver veit?


mbl.is Eigum ekkert erindi í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alls staðar annars staðar en í Skjaldborginni, væri allt þetta fólk rekið með skömm!!!

Ef að frá er skilinn sá tími sem svokölluð sáttanefnd um endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar starfaði, þá hefur áðurnefnd endurskoðun, verið að velkjast um innan stjórnarflokkanna í tæplega eitt og hálft ár.

Stjórnarflokkarnir klömbruðu reyndar saman frumvarpi um þessa endurskoðun, sem lagt var fram á síðustu dögum þingsins, vorið 2011.

Í greinargerð með frumvarpinu, segir að það sé afrakstur mikillar vinnu þeirra þingmanna og þeirra ráðherra að málinu komu. Hljómar í rauninni líkt og Jón Bjarnason hafi bara ,,hreinskrifað" minnisblöð, allra þeirra funda, er haldnir voru um málið og úr því orðið frumvarp um stjórn fiskveiða.

Frumvarpið hafði svo ekki einu sinni stuðning innan stjórnarflokkanna, þó að um stjórnarfrumvarp væri að ræða, sem rætt hafi verið og samþykkt í þingflokkum stjórnarflokkanna.
Endaði sú orusta með því að frumvarpinu var vísað aftur til nefndar, sem leita átti umsagna.

Eftir því sem fleiri umsagnir birtust, allar á sama veg (arfavitlaust og beinlínis þjóðhættulegt frumvarp) hljóp flótti í stjórnarliðið og hver stjórnarþingmaðurinn af fætur öðrum, afneitaði frumvarpinu. Hápunktur afneitunarinnar, var þegar Össur kallaði frumvarpið, er hann samþykkti sjálfur í ríkisstjórn, bílslys.

Eftir því sem best er vitað, þá er málið komið aftur í einhvern starfshóp stjórnarþingmanna og ráðherra og skal nú önnur umferð, reipitoga og pólitískra hrossakaupa, líkt og tekin var allan síðasta vetur á málinu. Hvort að það skili árangri á næstu vikum eða mánuðum, skal ósagt látið. Í það minnsta, er í ljósi reynslunar ekki ástæða til mikillar bjartsýni.

Eins og flestir vita, þá er opin og gegnsæ stjórnsýsla, með allt upp á borðum, ofarlega á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar. Það ætti því að vera hægt, án teljandi vandræða, að taka saman fjölda funda varðandi málið, lengd þeirra og  hverjir sátu þessa fundi.

Útúr þeirri samantekt kæmi þá hversu margir manntímar hafi farið í vinnslu málsins, sem segja má að hafi verið í gílsingu sundurlyndis stjórnarflokkanna mánuðum saman.

Án efa þætti afrakstur allra þeirrar vinnustunda, er þar kæmi fram frekar rýr, svo vægt sé til orða tekið. Enda árangur allrar þessarar vinnu  enginn og von um árangur, litlu meiri, þó einhverjar hundruðir manntíma, bætist í sarpinn.

 


Er ekki stuðningur við sameiningu ráðuneyta velferðarstjórnarinnar?- Eða tal um sameingu bara fyrirsláttur?

Sé einhver flugufótur fyrir þessari frétt, þá er nær öruggt að leiðtogar stjórnarflokkanna, sjá ekki fram á það, að þingmeirihluti sé fyrir fækkun ráðuneyta.  Á þó ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur að heita meirihlutastjórn.

Hins vegar kemur það ekki á óvart að einhverjar þreifingar í þessa veru eða aðra. Sé til þess litið, að tillaga Jóhönnu um fækkun ráðherra og sameiningu ráðuneyta hlaut ekki samhljóða stuðning í þingflokkum stjórnarflokkanna.  Í þingflokki Samfylkingar voru tveir þingmenn á móti og einn sat hjá.  Í þingflokki Vg. létu hins vegar þrír þingmenn sér nægja að sitja hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Eins og fólk eflaust man, þá stóð til að stofna nýtt Atvinnuvegaráðuneyti, sem Steingrímur J. færi fyrir, er taka ætti  yfir drjúgan hluta verkefna Sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytis ásamt stórum hluta verkefna Iðnaðarráðuneytis. Auk þess átti Atvinnuvegaráðuneytið að taka yfir verkefni Efnahags og viðskiptaráðuneytis. Þau verkefni ráðuneytanna sem ekki yrðu flutt i Atvinnuvegaráðuneytið, yrðu flutt í nýtt Auðlinda og umhverfisráðuneyti Svandísar Svavarsdóttur.

Það segir sig því sjálft, að bæði  Sjávarútveg og landbúnaðarráðuneytið ásamt Iðnaðarráðuneytinu myndu heyra sögunni til, við þessar breytingar.

 Eftir ríkisráðsfundinn á Gamlársdag, var ekki annað að heyra en að þetta Atvinnuvegaráðuneyti ætti að verða að veruleika auk þess að Oddný G. Harðardóttir yrði bara fjármálaráðherra, fram í ágúst þangað til að Katrín Júlíusdóttur, kæmi úr fæðingarorlofi og tæki við af henni.

Fer það kannski bara svo, þegar Katrín Júlíusdóttir kemur til baka úr fæðingarorlofi, að þessar ráðuneytahrókeringar gangi til baka að hluta? Oddný hætti sem fjármálaráðherra og Steingrímur taki við því embætti og verði áfram sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, en láti verkefni Efnahags og viðskiptaráðuneytis í hendur Katrínar Júlíusdóttur, sem tekur að nýju við embætti iðnaðarráðherra.

Fari svo, er alveg óhætt að spyrja, hvort allt þetta sjónarspil, hafi verið sett upp í þeim eina tilgangi að losna við Árna Pál Árnason og Jón Bjarnason úr ríkisstjórn?  En allt tal sameiningu ráðuneyta og eflingu og skerpingu stjórnsýslunnar, verið fyrirsláttur einn

 


mbl.is Katrín komi í stað Katrínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að ,,gera embætti pólitísk". - Og eftiráspeki nýrra andstæðinga forsetans.

Fyrir utan svokallað útrásardekur forsetans, er honum það helst legið á hálsi að hafa breytt embætti forseta Íslands, úr því að vera svokallað sameingingartákn þjóðarinnar, í eitthvað pólitískt embætti, sem reki eftir vindum þjóðmála hverju sinni.

 Það er nú samt athyglisvert, að hvað báða þessa hluti varðar, þá voru nú þónokkrir þeirra er skammað hafa forsetann hvað mest, í liði þeirra er stóðu að baki fyrstu alvarlegu áskoruninni á forsetann að gera embættið pólitískt.  Þegar sett var í gang undirskriftasöfnun, þegar forsetinn var hvattur til þess að synja fjölmiðlalögunum staðfestingar.

Einn þeirra er mjög hafði sig frammi í þeirri undirskriftasöfnun, með sendingu hvatningartölvupósts um allar koppagrundir, er nú þingmaður Samfylkingarinnar, sem einnig beitti sér grímulaust við söfnun undirskrifta.   En þegar undirskriftasöfnunin var í gangi þá var sá hinn sami fréttamaður og síðar fréttastjóri, á fjölmiðli eins þeirra er kallaðir voru og eru reyndar enn kallaðir útrásarvíkingar. 

Fjölmiðli sem að líkt og aðrir fjölmiðlar, fjölluðu á frekar jákvæðan hátt um svokallað útrásardekur forsetans.  Enda var fosetinn að ,,liðka" um fyrir íslenskt viðskiptalíf, sem reyndar því miður stóð ekki traustari fótum, en  í ljós kom í október 2008. 

Án efa hefði áðurnefndur þingmaðuur, þáverandi fréttamaður á miðli útrásarvíkings, flutt harðorðar fréttir um sinnuleysi forsetans, gagnvart íslenski viðskiptasnilldinni, hefði forsetinn látið það vera að mæta í hin ýmsu boð útrásarvíkinga og að bjóða þeim til Bessastaða. 

Það er auðvelt en um leið þó lítilmannlegt að setjast í dómarasæti, með þeim hætti sem þingmenn og stuðningsmenn stjórnarflokkanna, hafa gert er þeir leggja dóm sinn á verk Ólafs Ragnars, með afleiðingar hrunsins beint fyrir framan sig.  Hruns sem varla er hægt að ætlast til þess að forseti Íslands, hefði átt að  sjá fyrir.  

 Þá væri jú alveg hægt að líta enn aftar í sögunna og skammast í fyrri forseta, fyrir að hafa ekki synjað EES-samningnum staðfestingar og sent hann í þjóðaratkvæði.  Eða þá þeim lögum er heimiluðu kvótaframsal, sem vinstristjórn Framsóknar, Alþyðubandalags og Alþýðuflokks, kom í gegnum þingið árið 1990.  


mbl.is Embættið pólitískt eftirsóknarverðara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 1652

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband