Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2013

Er vantrauststillagan "þumalskrúfa"?

  Róbert Marshall  siitur  ekki á þingi þessa daganna. Og verður væntanlega ekki í þinginu á þriðjudaginn.   Heldur varamaður hans. Sá varamaður tilheyrir Samfylkingunni.

 Auk þess sem meiri líkur en minni eru á því að Guðmundur Steingrímsson sitji hjá.  Þannig að líklegast lafir nú stjórnin. 

En afhverju vill Þór bíða til þriðjudags? En ekki bara láta kjósa um tillöguna á morgun? 

Nú Þór telur sig vera kominn með velferðarstjórnina í þumalskrúfu og gefur henni þessa fimm eða sex daga til þriðjudagsins. Til þess að gera skothelda áætlun hvernig stjórnarskrármálið verði keyrt í gegn. Með góðu eða illu. 

 


mbl.is Stjórnin svaraði ekki tillögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn ver Steingrímur J. Icesavesamninga Svavars og Indriða.

Steingrímur J. ver stefnu sína í Icesave í Kastljóssþætti kvöldsins,  með því vísa í eignir þrotabús Landsbankans.

Flestir ef ekki allir og þar með talið hann,   vita þó.

Að þrotabúinu var og er eingöngu ætlað að standa undir innistæðum Icesavereikninganna. Vextir þeir sem Svavar og Indriði sömdu um, voru þar fyrir utan.

Í dag væri staðan sú, ef þessir Icesavesamningar sem Steingrímur J. ver, hefðu verið samþykktir. Að íslenska ríkið væri  búið að leggja út nærri 150 milljarða í vexti í gjaldeyri sem fenginn er að láni og væri rétt að byrja. 

Eins má geta þess að hefðu Svavarssamningarnir verið samþykktir óbreyttir. Eins og til stóð.  Þá væri auðlindaákvæði í stjórnarskrá, bara upp á punt. Enda heimiluðu þeir samningar veðsetningu á landinu og miðunum.


Steingrímur, málssvarinn og Svavarsarmurinn.

"Í samtali við mbl.is sagði Svandís að Steingrímur J. Sigfússon, fráfarandi formaður VG, hafi hringt í sig um hádegisbil í gær og greint frá því að hann hygðist ekki bjóða sig fram til áframhaldandi formennsku í flokknum. "

Á fimmtudaginn sagði SteingrímurJ. að spurður að ekki væri annað í spilunum en að hann gæfi kost á sér áfram. Ástæða þess að Steingrímur var spurður, var sá kvittur að Svavarsarmurinn leggði hart að honum að stíga til hliðar. 

Tveimur sólarhringum síðar tilkynnir Steingrímur að hann ætli ekki að bjóða sig áfram fram til formennsku í Vg. 

Það vita allir hvaða armi Svandís tilheyrir. 

Spurning er hvort allt þetta brölt Vg. sé ekki bein afleiðing þess, hversu krónískur vandi VGR að koma frá sér framboðslistum fyrir kosningarnar í vor er.

En sá vandræðagangur gengur út á það að reynt hefur verið að troða helsta talsmanni Steingríms, Birni Vali Gíslasyni inn á listann. Þrátt fyrir að hann hafi beðið  háðulegan ósigur fyrir Svavarsarminum í forvali flokksins í Reykjavík.


mbl.is Býður sig ekki fram á móti Katrínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristinn Karl Brynjarsson gerir grein fyrir atkvæði sínu.

Eftir því sem ég sé umræðuna um stjórnarskrártillögur stjórnlagaráðs þróast.  Sannfærist ég enn betur um það að þó mér hafi fundist margt í tillögunum brúklegt.  Hafi það verið rétt ákvörðun hjá mér að segja nei við öllu nema við spurningunni um þjóðkirkjuna.

Ástæður  þessarar niðurstöðu minnar er afskaplega skýrar. 

Hefði ég kosið með því að tillögurnar yrðu lagðar til grundvallar nýju frumvarpi, á þeirri forsendu að mér þættu sumar þeirra brúklegar.  Eins og stuðningmenn tillagnanna reyndar hvöttu til.  Þá væri atkvæði mitt nú túlkað sem krafa að tillögurnar allar ættu að standa óbreyttar í nýrri stjórnarskrá.  Engu mætti breyta.  Jafnvel ekki því sem færustu fræðimenn þjóðarinnar á sviði stjórnskipunar segja vart standast skoðun.

Mér finnst t.d. ákvæði sem byrja á: „Tryggja skal með lögum......´´ ekki brúkleg í stjórnarskrá.  Slík ákvæði bjóða upp á það að þau hugtök sem um er rætt í þeim ákvæðum geti haft breytileg viðmið. Eftir því hvernig stjórnarmynstur er hverju sinni.  Eru t.d. ekki líkur á því að næsta ríkisstjórn eða þarnæsta hafi aðrar meiningar á því, hvað fellst í frelsi fjölmiðla?  En stjórnarskrárdrögunum stendur, að „tryggja skuli með lögum frelsi fjölmiðla“.

Ég er fylgjandi auðlindaákvæði í stjórnarskrá.  Ég kaus þó ekki með því í þjóðaratkvæðinu.
Ástæðan er einfaldlega sú  að ég óttaðist, líkt og raunin hefur orðið, að já mitt hefði verið túlkað sem samþykki við auðlindaákvæði stjórnlagaþings. Orðrétt og óbreytt.    Atkvæði mitt hefði verið túlkað á þann hátt að ekki mætti breyta ákvæðinu í neinu.  Jafnvel ekki þó svo lögfróðir menn myndu benda á að hluti þess gæti skarast á við eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar.

Reyndar má segja að við öllu hinu sem ég kaus nei við í þjóðaratkvæðinu fylgi svipuð rök.  Ég var og er ekki andvígur því að þau efni sem þar var spurt um eigi heima í stjórnarskrá.  Ég er hins vegar ekki sammála tillögum stjórnlagaráðs efnislega.  Af þeirri ástæðu gat ég ekki kosið með þeim. Þar sem mig grunaði það sem á daginn hefur komið.  Að atkvæði mitt hefði verið túlkað sem samþykki tillögu stjórnlagaráðs er varðar viðkomandi „hugtak“.  Jafnvel þó ég gæti aldrei samþykkt ákvæðið óbreytt.

Mitt já, hefði ég kosið á þann hátt og eflaust já fleiri manna og kvenna á ekki að túlka á annan hátt. En að hinn eiginlegi löggjafi þjóðarinnar Alþingi hafi umboð þjóðarinnar, til þess að nýta tillögur stjórnlagaráðs til breytinga á stjórnarskrá.  Taka þær til efnislegrar meðferðar í þinginu í þremur umræðum.  Gera þær breytingar sem sátt er um í þinginu og til þess bærir fræðimenn telja nauðsynlegar svo ný stjórnarskrá standist skoðun.

Krafan um eitthvað annað stenst engan vegin skoðun og er í rauninni sett fram af þvílíkri tilætlunarsemi og vanhugsaðar frekju, eða í besta falli valkvæðum misskilningi  sem varla ætti að teljast svaraverður.


Skýr skilaboð.- Á meðan situr ráðherra með hendur í skauti.

„Ríkisstjórn Íslands þarf að hysja upp um sig buxurnar og taka ákvörðun um að setja pening í þessi mál, leiðrétta launin þarna og leysa þessa deilu.“

Það er í rauninni ekki til skýrari skilaboð en þessi orð Örnu Auðar Antonsdóttur formanns Félags lífeindafræðinga.  En lífeindafræðingar á Landsspítalanum eiga einnig í viðræðum við stjórnendur spítalans um nýjan stofnannasamning.  Líkt og hjúkrunarfræðingar og aðrar stéttir sem starfa á spítalanum.  

 Hjúkrunarfræðinga hafa frest til 12. febrúar að taka ákvörðun um hvort þeir standa við uppsagnirnar. Spítalinn hefur ákveðið þessa dagsetningu vegna þess að stjórnendur hans þurfa að geta skipulagt starfsemina miðað við þann mannskap sem verður við störf 1. mars nk.

Það er í rauninni ósköp eðlilegt að spítalinn ákveði þessa dagsetningu til geta skipulagt eftirleikinn. Fari svo að uppsagnir hjúkrunarfræðinga verði ekki dregnar til baka.

Óeðlilegt er hins vegar að velferðarráðherra hyggst ekkert tjá sig um málið, fyrr en fresturinn er útrunninn.  Ef marka má yfirlýsingu ráðherrans frá því í gær. 

Það er vissulega "understatement" að kalla aðgerðaleysi ráðherrans "óeðlilegt".   Standi ráðherrann við yfirlýsingu sína, ætti frekar að kalla slíkt stórkostlegt gáleysi og afglöp í embætti.  Að bíða þess að skaðinn gerist. Í stað þess en bregðast við í tæka tíð.  Fremur en að senda undirmenn sína á vettvang með báðar hendur bundnar fyrir aftan bak. 

Stjórnvöld gætu t.d. slegið af eitthvað af þessum kosningavíxlum sínum og látið það fjármagn sem í þá á að eyða renna til lausnar vandans.  Sem ég fullyrði að sé mikilvægara en flest þau verkefni sem í áðurnefndum kosningavíxlum felast. 

 


mbl.is Buðu eins launaflokks hækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttablaðið ver umboðsleysi Árna Páls með fúski

Í Fréttablaðinu í dag má lesa einhverja aumustu vörn fyrir raunverulegu umboðsleysi nýkjörins formanns Samfylkingarinnar.

Í daglegum dálki blaðsins, Frá degi til dags, rekur blaðamaðurinn Stígur@frettabladid.is ýmsar ástæður fyrir því að Árni Páll Árnason setjist ekki í ríkisstjórn þessar vikur sem eru til kosninga.

Flestar þeirra ástæðna benda hins vegar til þess að Árni Páll hafi ekki umboð  þingflokksins, til annars en að vera formaður í starfskynningu fram að þingrofi. 

Niðurlag dálksins er þó með því aumasta sem sést hefur lengi og í rauninni með ólíkindum að  slíkt komist í prentútgáfu dagblaðs sem að öllum líkindum vill láta taka sig alvarlega.

En þar segir:

"Tvö nýjustu dæmin

Þessi staða er óvenjuleg - að formaður stjórnarflokks gegni ekki ráðherraembætti. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hætti sem ráðherra í mars 2009 en var þó formaður í Samfylkingunni að nafninu til í tuttugu daga. Þar á undan reiknast mönnum til að leita þurfi 22 ár aftur í tímann - til vormánaða ársins 1991 - eftir næsta dæmi. Þá var Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins í hálfan annan mánuð fram að kosningum og var ekki ráðherra á meðan. (Stigur@frettabladid.is)"


Ingibjörg Sólrún  hætti reyndar sem ráðherra 1.feb. 2009 og sagði af sér formennsku í Samfylkingunni um leið og hvarf úr pólitík. Eru til einhver dæmi þess í sögunni að manneskja sem hættir í pólitík, taki um leið sæti í ríkisstjórn?

Svo held ég að allir átti sig á því að Davíð Oddsson hefur varla haft nokkurn áhuga á því að sitja í ríkisstjórn Framsóknar, Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og Borgaraflokks.

Er það nokkuð frekja að biðja um aðeins vandaðri vinnubrögð blaðamanna? Jafnvel þó að þeir séu kannski leynt og ljóst að verja þá staðreynd að Árni Páll Árnason verður bara formaður í starfskynningu fram að þingrofi. 


Formaður í starfsþjálfun?

"Formaður Samfylkingarinnar er pólitískur talsmaður flokksins og ber ábyrgð á starfi flokksins í ríkisstjórn og mun samkvæmt því umboði leiða stefnumörkun og starf Samfylkingarinnar innan flokks og utan, í samræmi við venju og hefðir þar um,“ segir hann ennfremur í yfirlýsingunni."

Í stuttu máli, þá fá kjósendur enga "mælingu" á því fyrir kosningar, hvort Árni Páll sé nægur bógur til þess að hrinda í framkvæmd þeim breytingum sem hann lofar.  Jóhanna er því rauninni enn leiðtogi Samfylkingar fram að þingrofi, í það minnsta. Í umboði Árna Páls og þingflokksins. 

Á meðan Jóhanna og þingflokkur  Samfylkingar mun starfa í anda átakastefnu Jóhönnu, mun svo Árni Páll utan þings, boða stefnu nýrrar Samfylkingar. 

Nýrrar Samfylkingar sama fólks og skipaði þá gömlu og lofaði þjóðinni fyrir fjórum árum nýrri Samfylkingu með nýjum bættum vinnubrögðum. Pökkuðum inn í glanspappír  skjaldborgar um heimilin í landinu og fjölgun starfa fyrir fólkið í landinu.

Hvort sem Samfylkingin er gömul eða ný verður breytingin engin.  Nema þá á ásjónu hennar. Undir þeirri sömu ásjónu mun hins vegar að stærstum hluta starfa sama fólkið og bæði leitt hefur og stutt núverandi stefnu Samfylkingarinnar.

Frasar „nýrrar“ forystu Samfylkingar innpakkaðir í glanspappír nýrra tíma og velferðar undir forystu „nýrrar“ Samfylkingar.  Verða því í raun sama froðan og þjóðin hefur reynt á eigin skinni.  Undanfarin fjögur ár í stjórnartíð Samfylkingar og Vinstri grænna.

Eða er ekki rétti tími breytinga fyrir þingflokk Samfylkingar núna.  Fremur en síðar til þess að verða að þeim flokki sem nýr formaður boðar?

Eða er nýr formaður Samfylkingarinnar bara formaður í starfsþjálfun?


mbl.is „Ekki ástæða til breytinga á ríkisstjórn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framkvæmdina vantar.

„Það bendir allt til þess að Jóhanna vilji vera áfram og að hún hafi stuðning þingflokksins til þess.“

Þetta er einmitt lykilstaðreynd. Þingflokkurinn styður stefnu Jóhönnu. Einu mögulegu breytingar á þingflokknum eftir kosningar eru þær að hann verður smærri.  

Að stærstum hluta verður hann skipaður einstaklingum sem  styðja stefnu Jóhönnu. 

Hvernig eiga kjósendur þá að geta treyst því að sama fólk  láti af núverandi stefnu sinni, á næsta kjörtímabili. Ef að slíkt er eingöngu boðað í orði en framkvæmdina vantar?

Eða hefur fólk kannski gleymt orðskrúði fögrum um breytt faglegri vinnubrögð, skjaldborg um heimilin og fjölgun starfa.  Svo eitthvað sé nefnt. 


mbl.is Þröng staða Árna Páls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband