Leita í fréttum mbl.is

Hversu oft.............

...hafa ekki heyrst þær raddir, bæði hér heima meðal aðildarsinna og svo í ESB, að núna sjái loksins fyrir endann á vandræðum evrusvæðisins og bjartari tímar séu í vændum?

 Vel má vera að einhven tíman í náinni framtíð, sjái fyrir endann á þessari krísu.  En það verður þó eingöngu bara stund á milli stríða.  Því einhvern tímann þarf jú að borga til baka það sem fengið er að láni.

Hvað mun þá gerast, þegar kemur að skuldadögum?  Geta bankar endalaust fjármagnað sig, til þess að framlengja í lánum og/eða endurlána þessum ríkjum fyrir greiðslum á eldri skuldum?  Eða er von til þess að þessi ríki geti aukið landsframleiðslu sína og verðmætasköpun, í það miklum mæli að aukningin standi bæði undir afborgunum af þessum himinháu lánum og hækkandi meðalaldri íbúa þessara ríkja og annarra Evrópuríkja, sem kalla mun á stóraukin kostnað í velferðarkerfinu? 

Svarið við þessum spurningum öllum er nær örugglega nei.

Hvað tekur þá við?  Annað bankahrun?  Eða stóraukin framlög aðildarríkja ESB til sambandsins og seðlabanka þess, til þess að forða bankahruninu og halda uppi lágmarksstandard á velferðarkerfinu? Eða þá botnlaus og skaðlegur niðurskurður í velferðar og menntakerfum þessara ríkja?

Er það virkilega svo að framtíðartekjum íslenska ríkisins sé betur borgið í þessa botnlausu hít skuldakreppu ESB-ríkjana, fremur en í uppbyggingu hér á íslensku atvinnulífi og íslensku velferðarkerfi?


mbl.is Ítalir þurfa 37.400 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er ljóst að Grikkir munu aldrei geta borgað til baka þá "björgunarpakka" sem þeim eru færðir, enda ekki ætlaðir til björgunar Grikklandi, heldur þeim bönkum sem lánuðu þeim langt umfram eðlileg mörk.

Þar koma einkum til þær kröfur sem Grikkjum eru sett, kröfur sem grafa undan þjóðfélaginu og rústar hagkerfi þeirra. Kröfur sem leiða til þess að allt athafnalíf í Grikklandi lamast.

Vandi evrunnar felst ekki í óstjórn einstakra ríkja evrusamstarfsins, heldur í óstjórn einstakra banka þess. Björgunaraðgerðir ESB eru til þess að bjarga þessum bönkum og heilu þjóðfélugunum er fórnað til þess.

Þetta er þó skammgóður vermir, enda sömu stefnu haldið áfram, nú af hálfu þeirra sem stjórna ESB, Angelu Merkel og Niculas Sarkozy!

Gunnar Heiðarsson, 11.9.2011 kl. 19:40

2 identicon

Stóra vandamálið er þegar stjórnmálamenn fara að skipta sér af peningamálstefnunni, það er eitraður kokteill og er berlega að koma í ljós i Evrópu.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 12.9.2011 kl. 14:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1680

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband