30.3.2011 | 20:40
Það var ekki laust við...........
..... að það hafi farið um mann megn hrollur, þegar í ljós kom að, hjá lögfræðistofu þeirri er annast mál útlendingana hér á landi, starfa fyrrum starfsmenn Glitnis og FL-Group, ásamt fyrrverandi forstjóra OR. Ekki laust við það að upp af þessu stígi megn ,,REI-fnykur".
Það var svo ekki til þess að róa undirritaðan að sjá og heyra Sturlu Sighvatsson framkvæmdastjóra Northern Lights Energy, tala um málið, líkt og hér væri enn árið 2007 og hvert ,,too good to be true" tilboðið væri hér á hverju strái.
Og varla róaðist undirritaður við að sjá og heyra Róbert Marshall, formann allsherjarnefndar Alþingis og fyrrum Baugsliða, tala um málið, eins og það væri bara nóg að ná pólitískri sátt um málið.
Vilja ríkisborgararétt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Allsstaðar er spillingarliðið ef fjármagn er nefnt.
Aðalsteinn Tryggvason, 30.3.2011 kl. 21:15
Allir okkar "gömlu og góðu" útrásarvíkingar eru flúnir land. Er þá ekki upplagt að flytja inn nýja í staðinn?
Axel Jóhann Axelsson, 30.3.2011 kl. 21:20
Jú Axel. Er ekki tilvalið að virkja þessa fyrrum undirsáta útrásarvíkingana í það að stuðla að innflutningi á ,,góðu fólki" með fullt rassgat af peningum?
Kristinn Karl Brynjarsson, 30.3.2011 kl. 21:36
Sturla er líka eða var sölustjóri CCP (stór hrollur),sem sagt en einn hlaupadrengur Björgólfs Thors nokkurs eins og Vilhjálmur Þorsteinsson. Þá eru einhverjir þessara fjárfesta með augastað á fjárfestingu í gagnflutningum og hýsingu,
hrollurinn er að verða meiri og meiri hjá mér allavega
Gunnar Waage, 30.3.2011 kl. 22:13
Mér datt nú bara í hug að þessi Sturla hljómaði eins og útr.víkingur (eins mikið ógeð og maður er kominn með á því orði) - eins og hann talaði í Bítinu í morgun,
hann talaði um að þeir hafi markvisst verið að reyna að plata fjárfesta til landsins í langan tíma... og nú hafi það loks tekist....
- mér datt Icesave í hug, Sigurjón og co höfðu þessa brilljant hugmynd að stofna hávaxta innlánsreikn. erlendis og hirða svo peninginn (eða eitthvað) .
Þó þetta sé varla sambærilegt þá fannst mér svipaður andi yfir þessum manni sem talar þeirra máli. ... og svo finnst mér þetta líka blaut tuska í andlit þeirra sem strita hart í fjölda ára hérlendis til að öðlast þennan ríkisborgararétt. (ef allsherjanefnd samþykkir þetta).
Adeline, 31.3.2011 kl. 09:38
Eru útrásarvíkingarnir okkar ekki bara að reyna að lauma sér inn bakdyrameginn?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2011 kl. 11:37
Það er mjög líklegt, Ásthildur. útrásarvíkingar breytast í innrásarvíkingar. Sniðugt!
Úrsúla Jünemann, 31.3.2011 kl. 16:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.