Leita í fréttum mbl.is

Það var ekki laust við...........

..... að það hafi farið um mann megn hrollur, þegar í ljós kom að, hjá lögfræðistofu þeirri er annast mál útlendingana hér á landi, starfa fyrrum starfsmenn Glitnis og FL-Group, ásamt fyrrverandi forstjóra OR.  Ekki laust við það að upp af þessu stígi megn ,,REI-fnykur".

 Það var svo ekki til þess að róa undirritaðan að sjá og heyra Sturlu Sighvatsson framkvæmdastjóra Northern Lights Energy, tala um málið, líkt og hér væri enn árið 2007 og hvert ,,too good to be true" tilboðið væri hér á hverju strái. 

Og varla róaðist undirritaður við að sjá og heyra Róbert Marshall, formann allsherjarnefndar Alþingis og fyrrum Baugsliða,  tala um málið, eins og það væri bara nóg að ná pólitískri sátt um málið.


mbl.is Vilja ríkisborgararétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Tryggvason

Allsstaðar er spillingarliðið ef fjármagn er nefnt.

Aðalsteinn Tryggvason, 30.3.2011 kl. 21:15

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Allir okkar "gömlu og góðu" útrásarvíkingar eru flúnir land. Er þá ekki upplagt að flytja inn nýja í staðinn?

Axel Jóhann Axelsson, 30.3.2011 kl. 21:20

3 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Jú Axel. Er ekki tilvalið að virkja þessa fyrrum  undirsáta útrásarvíkingana í það að stuðla að innflutningi á ,,góðu fólki" með fullt rassgat af peningum?

Kristinn Karl Brynjarsson, 30.3.2011 kl. 21:36

4 Smámynd: Gunnar Waage

Sturla er líka eða var sölustjóri CCP (stór hrollur),sem sagt en einn hlaupadrengur Björgólfs Thors nokkurs eins og Vilhjálmur Þorsteinsson. Þá eru einhverjir þessara fjárfesta með augastað á fjárfestingu í gagnflutningum og hýsingu,

hrollurinn er að verða meiri og meiri hjá mér allavega

Gunnar Waage, 30.3.2011 kl. 22:13

5 Smámynd: Adeline

Mér datt nú bara í hug að þessi Sturla hljómaði eins og útr.víkingur (eins mikið ógeð og maður er kominn með á því orði)  - eins og hann talaði í Bítinu í morgun,

hann talaði um að þeir hafi markvisst verið að reyna að plata fjárfesta til landsins í langan tíma... og nú hafi það loks tekist....

- mér datt Icesave í hug, Sigurjón og co höfðu þessa brilljant hugmynd að stofna hávaxta innlánsreikn. erlendis og hirða svo peninginn (eða eitthvað) .

Þó þetta sé varla sambærilegt þá fannst mér svipaður andi yfir þessum manni sem talar þeirra máli. ... og svo finnst mér þetta líka blaut tuska í andlit þeirra sem strita hart í fjölda ára hérlendis til að öðlast þennan ríkisborgararétt. (ef allsherjanefnd samþykkir þetta).

Adeline, 31.3.2011 kl. 09:38

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eru útrásarvíkingarnir okkar ekki bara að reyna að lauma sér inn bakdyrameginn?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2011 kl. 11:37

7 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Það er mjög líklegt, Ásthildur. útrásarvíkingar breytast í innrásarvíkingar. Sniðugt!

Úrsúla Jünemann, 31.3.2011 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 1619

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband