Leita í fréttum mbl.is

Endurskoðun ,,faglegra" ráðningarferla nærri lagi.

Úrskurður kærunefndar er fallinn.  Úrskurðurinn er bindandi, en ekki bara álit, eins og hann var hér áður. Líklegra er því að ofar sé á forgangslistanum að ákveða, þau viðbrögð sem ætlast er til að gripið sé til. Þau eru ekki gagnrýni á úrskurðinn, heldur hvort sá/sú sem braut af sér, uni honum og semji við kærandann.  Að öðrum kosti verði reynt að fá úrskurðinum hnekkt fyrir dómi.

„Hvernig í ósköpunum gat stigakerfið, sem notað var, verið þannig, að það er hægt að komast af hálfu kærunefndarinnar að allt annarri niðurstöðu," sagði Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna.

 Það er eflaust enginn leyndardómur, fólginn í því að stigakerfið hafi komist að annarri niðurstöðu, en kærunefndin.  Stigakerfið er byggt upp, t.d. með stöðluðum spurningum sem allir sem í viðtöl mættu svöruðu. Þetta er kerfi sem notað er víða við ráðningar á starfsfólki, þar sem ekki þarf að taka tillit til jafnréttislaga.   Það er því bara mælikvarði á hæfni umsækjenda, miðað við fyrirfram gefnar forsendur, óháð kynferði þeirra.  Það kemur hvergi fram að kynferði kærandans hafi hækkað hann í matinu, vegna þess að í gildi eru lög jafnrétti. 

 Það er því tómt mál að fara að flækja málið eitthvað með pælingum og útúrsnúningum.  Ráðningarferlið var faglegt, enginn ágreiningur þar. En hins vegar rúmaðist það ekki innan þess lagaramma í því umhverfi sem það var notað.  

 Það er því ekkert annað í boði, en að una úrskurðinum og semja við kærandann, eða þá fá honum hnekkt fyrir dómi.   Síðan ef enn er vilji er fyrir því að nota þessa aðferð sem beitt var við ráðninguna, áfram, þarf að sníða hana að löggjöfinni. En ekki löggjöfina að aðferðinni.


mbl.is Leggja þarf allar upplýsingar á borðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 1628

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband