17.11.2010 | 18:22
Reglugerð Jóhönnu olli tæplega 60% útlánaaukningu ÍLS, síðustu þrjá mánuðina fyrir hrun.
Eins og fram kom í umræðum á Alþingi í Landsdómsmálinu fyrir nokkrum vikum, þá var starfandi svokallaður súperráðherrahópur í ríkisstjórn Geirs H. Haarde. Var þeim hópi fyrst og fremst ætlað að taka á efnahagsmálum þjóðarinnar. Í hópnum áttu sæti Geir H. Haarde, Árni Matthiesen, Ingibjörg Sólrún og Jóhanna Sigurðardóttir. Hópurinn gerði ásamt Seðlabankanum, lánasamning við seðlabanka Norðurlandana. Þeim samningi fylgdu ýmsar kvaðir, eins og t.d. að Íbúðalánasjóður héldi að sér höndum í lánveitingum.
Fram kom einnig í umræðunni um landsdóminn, að vegna þáttar ÍLS í þessum samningi, þá hafi Jóhanna Sigurðardóttir, átt að undirrita samningin fyrir hönd ÍLS. En einhverrra hluta vegna hvarf Jóhanna af fundi, áður en til undirritunnar kom og var það því Ingibjörg Sólrún sem skrifaði undir fyrir ÍLS í umboði Jóhönnu.
Blekið á áðurnefndum samningi var hins vegar varla þornað, þegar þáverandi félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir, gaf út reglugerð þess efnis að stimpilgjöld vegna lána ÍLS voru annað hvort lækkuð stórlega eða afnumin, auk þess sem að útlánareglur sjóðsin voru rýmkaðar, svo fólk ætti auðveldar með að fá lán.
Reglugerð þessi hefði eflaust á öllum öðrum tímum þótt frekar æskileg, en alls ekki samt í ástandi sem þá var að skapast í íslensku efnahagslíf og félagsmálaráðherra þess tíma hefði átt að vera ljóst enda sat ráðherrann í áðurnefndum súperráðherrahópi.
Framhefur komið í umræðunni um skuldavanda heimilana að stærstur hluti heimila í vanda eru ekki bara með lán frá ÍLS, heldur er stærstur hluti þeirra með lán, er tekin voru árin 2007 og 2008. Reikna má að reglugerð Jóhönnu, rétt fyrir hrun, hafi frekar valdið fjölgun í þeim hópi, en ekki. Raunin varð nefnilega sú að frá þeim tíma er reglugerð Jóhönnu tók gildi, 1. júlí 2008 og fram að hruni, voru veitt ca. 2800 lán úr ÍLS, en síðustu þrjá mánuði þar á undan voru lánin um það bil 1600. Útlánaaukningin er því tæplega 60% síðustu þrjá máuðina fyrir hrun, miðað við síðustu þrjá máuði á undan.
Ráðgert að afskriftir ÍLS verði í hámarki næstu þrjú árin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kristinn, ertu brjálaður, ertu að segja að flugfreyjan sé vitlaus ? Snillingurinn sem vildi lána öllum, er hún ekki dásamleg ?
Mér finnst það, verst að hún er búin að gleyma því að hún var í "hrunstjórninni". Skildi hún nokkurn tíman fatta það, kerlingin ?
Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 17.11.2010 kl. 23:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.