Leita í fréttum mbl.is

Fórnarlamb femínískra skoðanna, eða?

Eflaust hafa einhver meiðandi ummæli fallið um Sóleyju Tómasdóttir í kosningabaráttunni, manna á milli , hvort sem það hafi verið í fjölmiðlum, eða bloggheimum og finnist henni að sínu mannorði vegið, þá er ekkert nema sjálfsagt að hún leiti réttar síns, eins og hún gaf í skyn að hún ætlaði að gera í viðtali við Morgunútvarp, Rásar 2.Enda algjör óþarfi að fólk leyfi því að líðast að á því sé brotið.

 Það er og var vitað löngu áður en kosningabaráttan hófst að Soley væri umdeild fyrir "femínískar skoðanir" sínar, þó frekar megi búast við því að hún væri frekar umdeild, utan VG, en innan. 

 Í sama viðtali og ég vísaði í, hér að ofan, þá voru þær útstrikanir, sem hún fékk í borgarstjórnarkosningunum þann 29. maí sl. til umræðu og gaf Sóley þá helstu ástæðu fyrir þeim, eða öllu heldur, taldi þær vera vegna "femínískra" skoðanna sinna.  Ekki ætla ég að "velta" mér upp úr því, hvort uppi sé innan raða VG, ágreiningur, um hversu "harða" stefnu, skuli reka, þar sem femínismi er annars vegar.  En það er hins vegar óumdeilt, að kjör hennar í oddvitasætið, þótti mjög umdeilt innan raða VG, eða öllu heldur, þær aðferðir sem viðhafðar voru af stuðningsmönnum, hennar í kosningabaráttunni, fyrir kjörið og svo í "prófkjörinu", eða forvalinu, þar sem röð frambjóðenda var valin.

 Þar var meðal annars talað um að Silja Bára Ómarsdóttir, kennari í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, hafi hvatt nemendur sína til að kjósa Sóleyju í fyrsta sætið, hvort sem það hafi ráðið úrslitum, eða ekki.  Einnig var talað um að Silja Bára, hafi á kjördag í forvalinu, keyrt um borgina með kjörgögn til þess að fólk, sem ekki mætti á kjörstað, gæti greitt Sóleyju atkvæði sitt.  Þetta háttalag Silju Báru, þótti orka mjög tvimælis, þó svo að í ljós hafi komið að þau atkvæði sem aflað var með þessum hætti, hefðu ekki riðið baggamuninn.  Það varð þó til þess að upp komu deilur um framkvæmd kosningarinnar, sem endaði með því að formaður kjörstjórnar Stefán Pálsson sagði af sér, auk þess sem einhverjar væringar voru á milli fylgismanna Sóleyjar og Þorleifs Gunnlaugssonar, sem einnig sóttist eftir oddvitasætinu, en Þorleifur hafði verið oddviti flokksins í Borgarstjórn, eftir að Svandís Svararsdóttir, hvarf úr því sæti og settist í stól umhverfisráðherra.

 Þó svo að sættir virðist hafa náðst, í það minnsta á yfirborðinu, milli Þorleifs og Sóleyjar, þá er ekki þar með sagt, að þær sættir, hafi eitthvað snert hjörtu allmennra flokksmanna, eða kjósenda flokksins.  Enda þóttu vinnubrögð stuðningsmanna Sóleyjar í forvalinu vart lýðræðislegar, eða til fyrirmyndar.  Einnig kann einhver áhrif að hafa haft á afstöðu kjósenda VG til Sóleyjar, að á Borgarstjórnarfundi, skömmu eftir "forvalshasarinn", sem að varaborgarfulltrúi Þorleifs sat, þá reyndi Sóley að "stjórna", því hvernig sá einstaklingur, greiddi atkvæði í Borgarstjórn.  

 Af þessari upptalningu, má alveg leiða að því líkum, að sá málflutningur, að Sóley hafi verið "fórnarlamb" femínískrar stefnu sinnar, sé kannski ekki nægur til að skýra þessar útstrikanir sem hún fékk í borgarstjórnarkosningunum.  En hver dæmir bara fyrir sig.

 p.s Ég vil biðja fólk, ef það sér sig knúið að tjá sig hér í ummælum, að halda sig við umræðuefnið og sleppa því, að kalla hlutaðeigandi ljótum nöfnum. 


mbl.is Kannar réttarstöðu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Það væri óskandi að menn tækju sem flestir undir hvatningu þína í eftirskriftinni. Skrifaði sjálfur pistil um málfar í fjölmiðlum og orðið "Morgunblaðið" kom fyrir í þeim skrifum. Það nægði til að fá tvær athugasemdir um skítlegt eðli síðuskrifara  en ekkert um málfarið.

Flosi Kristjánsson, 7.6.2010 kl. 10:39

2 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Uppnefningar og útúrsnúningar, eru oftar en ekki einu vopn, slæms málstaðs og "túlkun" á innbyggða reiði, þess sem slíkt leggur fyrir sig.

En ég tel þá aðferð, sem notuð er til þess að brjóta mál til mergjar, hvort sem það er hér í bloggheimum, í fréttum, eða "lærðum" álitsgjöfum háskólamenntaðra einstaklinga, að benda á og ganga nær oftast út frá því sem, kannski er augljósast.  

Kristinn Karl Brynjarsson, 7.6.2010 kl. 11:08

3 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Góður upprifjunarpistill

Kveðja Silla.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 7.6.2010 kl. 11:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband