Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Að grafa sér gröf á vígvelli umræðunnar....

Um það er nú deilt í netheimum, hvort ummæli Björns Vals í garð forsetans séu viðeigandi eða ekki og sýnist sitt hverjum.

Sumir vilja meina, að þar sem forsetinn skiptir sér meira af pólitík en hæstvirtur forsætisráðherra, þá sé það í fínasta lagi að hann sé kallaður bjáni eða eitthvað annað sem getur verið niðrandi.

Einhvers staðar sá ég þá skýringu að í USA væru einhver lög sem leyfðu þarlendum þegnum að segja hvað sem því byggi í brjósti um forsetann.

Einhverjum finnst forsetinn hreinlega vera bjáni eða skoffín og því sé það í besta lagi að kalla hann bjána eða skoffín....

Eflaust eru þetta allt saman rök sem staðist geta skoðun. Og ekki ætla ég að banna fólki að niðurlægja sjálft sig með því að kalla þann aðila sem það er ósammála, einhverjum niðrandi nöfnum í stað þess að halda sig við efnislegan ágreining við viðkomandi.

En hafa ber þó í huga að sá sem beitir þannig umræðutækni, að uppnefningar og niðraðndi ummæli eru "nauðsynlegt" til þess að lyfta sér sjálfum á "æðra plan".  Er einn og óstuddur að grafa sína gröf í umræðunni..........


mbl.is Kallar forsetann „bjána“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig skyldi nú standa á því.....?

Stuðningsmenn tillagna stjórnlagaráðs, halda því sjónarmiði sífellt lofti að andstöðu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, við tillögurnar í heild sinni, megi rekja til þess að þeim sé lítt um það gefið að í stjórnarskrá sé auðlindaákvæði.

Það sjónarmið gæti varla verið vitlausara. Enda er ákvæði um auðlindir í þjóðareign, að öllum líkindum, það ákvæði sem auðveldast væri að ná víðtækri sátt um í þinginu, fyrir vorið.

Einnig gæti sátt ekki verið fjarri um ákvæði um beint lýðræði, hlutverk forsetans  ásamt breyttum ákvæðum um Hæstarétt.  Svo eitthvað sé nefnt.

Hins vegar fer það líklegast fjarri, að víðtæk sátt náist um ný ákvæði í stjórnarskrá er lúta að fullveldisframsali, á einn eða annan hátt, nema þá það takmörkuðu að varla tæki því að minnast á það.

Stjórnlagaráðssinnar hafa ekki svo ég best fái séð,minnst á það einu orði að líklegast standi fullveldisframsal, hvað helst í andstæðingum tillagna stjórnlagaráðs.

Hvenig skyldi nú standa á því? 


Yðar einlægur gagnrýnir einnig gagnrýni Sigríðar!!

Yðar einlægur trúði, satt best að segja, ekki eigin eyrum þegar hann heyrði óm af gagnrýni Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, í gegnum skvaldrið í kaffistofunni, á söfnun þjóðkirkjunar vegna tækjakaupa Landspítalans. 

Satt best að segja, þá vonaði ég það svo innilega að líklegast hafi ég bara heyrt þetta eitthvað óskýrt sökum skvaldurs og annars hávaða á kaffistofunni, þegar frétt RÚV um málið ómaði í útvarpi sem í kaffistofunni er.

En nú er yðar einlægur búinn að kynna sér málið og komist að því að hann heyrði rétt í hádeginu.  Yðar einlægur stóð nú í þeirri meiningu að hver sá sem fagnaði ekki slíku frumkvæði og því sem þjóðkirkjan er að ráðast í, væri með öllu, sálarlaus, samviksulaus og hjartalaus.  

Varla vill "Velferðarkrónprinsessan" skipa flokk slíkra manna. 

Yðar einlægur hélt  að Sigríður Ingibjörg, hafi nú áttað sig á því, að kirkjan ætlaði ekki að greiða sjálf fyrir ný tæki á spítalann. Heldur safna fé til tækjakaupanna  á meðal þjóðarinnar.   Semsagt ráðast í þjóðarátak.

Yðar einlægur hélt einnig að Sigríði Ingibjörgu væri sökum þess að hún var formaður fjárlaganefndar í eitt ár eða svo, að í gildi væru samningar á milli ríkis á kirkju.

 

"Um fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju gilda samningar og lög, sem m.a. hvíla á þeim gerningi að ríkið tók yfir allar kirkjujarðir gegn ákveðnum skuldbindingum. Kirkjan hefur undanfarin ár samþykkt að taka á sig skerðingar á kirkjujarðasamkomulaginu og á sóknargjöldum umfram það sem stofnunum hefur verið gert að sæta. Það er á engan hátt hægt að ræða um kirkjuna eins og hverja aðra stofnun sem ríkið rekur."

 Það mætti því ætla að óskir kirkjunar um aukin fjárframlög úr ríkissjóði, hvíldu á samkomulagi þessu. Ekki síst vegna stóraukinnar aðstoðar kirkjunar og einstaklinga og fjölskyldur í landinu sökum bágra aðstæðna þeirra, í kjölfar hrunsins.  

Auk þess sem að ætla má að yfirlýsingar stjórnarsinna um að nú værum við komin í gegnum stærsta skaflinn vegna hrunsins, þá væri von til þess að hægt væri að efna samkomulagið betur, en raunin hefur verið á undanfarin ár.  

Það er því með öllu ótrúleg staðreynd að manneskja sem hyggst leiða  lista Samfylkingarinnar, flokks velferðar og jafnréttis, í öðru Reykjavíkurkjördæminu skuli tjá sig með þessum hætti um þennan glæsilega ásetning og frumkvæði þjóðkirjunar.  

  En kannski ríkir bara frost og vetur í "velferðarhjarta" Samfylkingarinnar, eða í það minnsta í "velferðarhjarta" Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur.


mbl.is Gagnrýnir gagnrýni á Þjóðkirkjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einræðistilburðir forsætisráðherra á "You Tube".

Stjórnarliðar og meðhlauparar þeirra mega alveg hafa sínar skoðanir á málþófi stjórnarandstöðunar og segja málþófið ljótan blett á störf þingsins. Ljótasta blettinn eiga þó í sameiningu forseti  þingsins Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir.  Eins og sést í myndbandinu, hér að neðan.

Ég minnist þess þó að aðspurður hafi Davíð Oddsson sagt þegar Jóanna, sem á nota bene Íslandsmetið í málþófi, Steingrímur og fleiri núverandi stjórnarliðar héldu uppi málþófi, að það væri lýðræðislegur réttur þingmanna að tjá sig í þingsal.

Það stendur hins vegar hvergi í stjórnarskrá eða þingsköpum að forsætisráðherra hafi það hlutverk og eða rétt til þess að stjórna þingfundi eða atkvæðagreiðlum á Alþingi.

Hvað þá að það sé hlutverk forsætisráðherra að æða um gólf þingsalarins og brýna menn til hlýðni við sig.

Forsætisráðherra hefur þó leyft sér þann munað, nokkrum sinnum á kjörtímabilinu að taka stjórnskipun landsins í sínar hendur með þessum hætti.

Það er í rauninni hreint og klárt stjórnarskrárbrot, hvort sem litið er til núgildandi stjórnarskrár, sem forsætisráðherra og meðhlauparar hans vilja með góðu eða illu skipta út fyrir tillögur stjórnlagaráðs eða áðurnefndra tillagna stjórnlagaráðs.

Hjá því verður heldur ekki komist að minnast á þátt þingforseta, sem að mörgu leyti hefur staðið sig vel á kjörtímabilinu. Enda brást forseti Alþingis þarna algerlega skyldum sínum og sýndi að hún er í rauninni þjónn framkvæmdavaldsins en ekki þingsins eins og stjórnskipan landsins býður þessu embætti að vera.

En hér kemur linkurinn á myndbandið:  http://www.youtube.com/watch?v=bjJlDqOyQas


Sem betur fer er til önnur leið, en leið Jóhönnu & co.

"Þá leggur hún áherslu á að stjórnarskrármálið hafi verið rætt nær allt kjörtímabilið og að ítarlega hafi verið farið yfir stóru málin eins og varðandi auðlindaákvæði og þjóðaratkvæðagreiðslur. "

 

Það er að vísu rétt hjá Jóhönnu að stjórnarskrármálið hafi mikið verið í umræðunni á kjörtímabilinu. Sú umræða hefur hins vegar að mestu verið um aðferðir en ekki efnsleg um tillögur að nýrri stjórnarskrá.
 Það núna fyrst undanfarnar vikur, sem þingmönnum hefur gefist kostur á því að ræða tillögur stjórnlagaráðs efnislega, án þess að vera sakaðir um málþóf.

Hvað auðlindaákvæði og þjóðaratkvæðagreiðslur varðar, þá eru þau tvö atriði meðal þeirra atriða, asamt fleirum, sem hægt væri að ná sátt um í þinginu. Þó tillögum stjórnlagaráðs um sömu atrið yrði eflaust breytt með einhverjum hætti.

Samþykkt breytingartillögur Péturs H. Blöndal  á 79. grein stjórnarskrárinnar, með þeim hætti að ekki þurfi tvö þing með kosningum á milli til breytinga á stjórnarskrá. Heldur þurfi eingöngu þingmeirihluta og meirihluta í þjóðaratkvæði, gæti svo orðið til þess að vinnu við endurskoðun stjórnarskrár ljúki svo á næsta kjörtímabili. Án þess að til nýrra kosninga kæmi fyrir lok þess kjörtímabils.

Slíkt verklag myndi auka líkurnar á því að endanleg niðurstaða á endurskoðuninni, yrði með þeim hætti að almenn þverpólitísk sátt næðist um hana.

 


mbl.is Fyrsta málið eftir jólaleyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af sykurskatti, öðrum sköttum og svokölluðum aðgerðum stjórnvalda fyrir heimilin í landinu.

Til þess að tala niður vísitöluáhrif sykurskattsins er sagt að skattar á svokallaðar hollustuvörur lækki.

Það þýðir samt ekki endilega að slík lækkun dragi úr vísitöluáhrifum sykurskattsins.

Í fljótu bragði má benda á tvennt sem ýtir undir þá fullyrðingu.

Það fyrra er að skattalækkunin á hollustuvörurnar er aðeins 300 milljónir en hækkunin vegna sykurskattsins er hins vegar áætluð ca. 800 milljónir.

Auk þess að það er engin trygging fyrir því að þrátt fyrir lækkun skatta á hollustuvörur að þær vörur lækki í verði sem að skattalækkuninni nemur.

Hvað manneldissjónarmið varðar, er varla hægt að tala um að slíkt sjónarmið sé uppi, þó slíku sé haldið fram. Enda miðast sykurskatturinn, sem á jú í orði að minnka sykurneyslu þjóðarinnar, við sömu sykurneyslu og fyrir sykurskatt.

Það er því nokkuð ljóst að hækkunin á lánum heimilana við þennan sykurskatt verður 1,3 milljarður sem bætist við þá 3 milljarði sem hækkun neftóbaksgjalds veldur,  verðhækkun á innanlandsflugi, vegna aukinnar skattheimtu stjórnvalda, sem einnig mun flæða út í vísitöluna. Að ógleymdri milljarðahækkun vegna nýrrar byggingareglugerðar sem hækka mun byggingarkostnað í landinu um 15 % og þar með vísitöluna um rúm 3 %,  þar sem hækkun byggingakostnaðar  vegur rúmlega einn fimmta  við útreikning vísitölu lána.

Það er því eins fjarri lagi og hugsast má, að stjórnvöld séu vakin og sofin yfir því að bæta hag heimilana í landinu.  Jafnvel þó til komi einhverjar hækkanir á barna og vaxtabótum.   Þær bætur eru jú greiddar af Ríkissjóði og ef að hann er ekki rekinn með hagnaði, þá þarf að hækka skatta eða taka lán fyrir öllum nýjum kostnaði.  

 Skattahækkanirnar fara beint út í verðlagið og hækka lán heimilana og reyndar atvinnulífsins líka.  En lántökurnar til þess að mæta auknum kostnaði Ríkissjóðs, eru ávísun á skattahækkanir í framtíðinni,  sem flæða út í verðlagið og valda hækkun lána.  Því síðar mun vanta fjármagn til þess að greiða niður lánin.

Meintar aðgerðir stjórnvalda til lækkunar skulda heimilana eru því besta falli ekkert annað en nafnbreyting og tilfærsla á kostnaði lántakenda og annara í landinu. 

Fólk er því að borga það sama eða meira, í flestum tilfellum, en það gerði fyrir allar „björgunaraðgerðir“ stjórnarflokkanna vegna skulda heimilana. 


Bílaleigubíllinn og Nubo.

Einhverjum mánuðum áður en áhugi Nubos á Grímsstöðum varð opinber var frétt í DV af ferðalagi  mágs Össurar utanríkis og Kínverja nokkurs að nafni Huang Nubo.

Alla jafna birtast nú ekki fréttir af því í blöðum, þó Íslendingur taki það að sér að aka Kínverja um landið okkar. Jafnvel þó svo kínverski heiti Nubo og sá íslenski sé ekki bara mágur utanríkisráðherra, heldur einnig maki Ingibjargar Sólrúnar.

Hins vegar vakti það athygli blaðamanna DV að bifreið sú sem þeir félagar óku saman á um landið, var bílaleigubíll sem Utanríkisráðuneytið tók á leigu og greiddi fyrir.  

Hvort sem að sú saga sé sönn , eða ekki, sem sögð var þegar upp komst um bílaleigubílinn, að Hjörleifur Sveinbjarnarson mágur Össurar hafi boðið Nubo hingað til lands, vegna þess að þeir væru gamlir skólabræður frá námsárum Hjörleifs í Kína.   Þá breytir það því ekki að skoðunarferðinn norður á Grímsstaði var í boði íslenskra stjórnvalda eða öllu heldur í boði íslenskra skattgreiðenda. Sem borga jú bílaleigubílinn á endanum.


mbl.is Huang: „Reiður og pirraður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taugaveiklun í tímahraki.

Gjörningur þeirra Björns Vals og Lúðvíks á Alþingi í gærkvöldi, hefur í rauninni ekkert með málþóf að gera.

Gjörningurinn er afsprengi árlegs tímahraks og taugaveiklunar stjórnarflokkanna við það að koma sínum stefnumálum á dagskrá þingsins og ljúka efnislegri meðferð þeirra.

Tímahrakið er svo heimatilbúinn vandi stjórnarflokkanna, sem skýrist fyrst og fremst af innbyrðis samstöðuleysi og ákvörðunarfælni þeirra sem ábyrgð bera á viðkomandi málaflokkum.


mbl.is Þingmenn báðust afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í formannskjöri Samfó eru tveir kostir. Annar slæmur hinn vondur.

Auðvitað styður Sigríður Guðbjart. Enda þau bæði úr svoköllum "Jóhönnuarmi" Samfylkingarinnar og því glapræði að tveir einstaklingar úr sama armi flokksins bjóði sig fram. Eingöngu til þess að tryggja sigur þess frambjóðanda, sem leitt gæti fram einhverjar breytingar í flokknum og horfið frá einstrengngislegri og ómálefnalegri frekju og yfirgangi í öllum þeim málatilbúnaði sem flokkurinn hefur fram að færa.

Hins vegar má alveg spyrja að því, hvort að, heilt yfir, sé hinn valkosturinn skárri?

Hvort sem þeirri spurningu er svarað játandi eða neitandi, er það alveg ljóst að mannaval Samfykingarinnar er ekki betra en þetta og alls ekki þjóðinni bjóðandi. Þó svo að hún hafi á endanum lokaákvörðunarréttinn hvort hún kjósi yfir sig annað kjörtímabil skattahækkanna, úrræðaleysis til handa heimilum og fyrirtækjum í landinu og áframhaldandi fjárfestingafrosts.

í vor gefst þjóðinni tækifæri til þess að hafna stefnu sameiginlegrar eymdar vinstri flokkanna og kjósa framtíð uppbyggingar, fjárfestinga og atvinnusköpunar.

Sameiginleg eymd tryggir ekki sterkar stoðir velferðar, heldur er  það verðmæta og atvinnusköpun sem slíku skilar.


mbl.is Styður Guðbjart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt vindhögg Gunnars.

Pólitískum andstæðingum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar ofbýður dugnaður hans en treysta sér ekki til þess að mæta honum face2face og ræða á málefnalegan hátt, það sem hann gagnrýnir eða setur fram hverju sinni. Hvort sem það sé gagnrýni á Bankasýsluna FME eða heilbrigðiskerfið, svo eitthvað sé nefnt.

Af þeim sökum, er frekar farið í manninn en ,,boltann".

Hvað hans prófkjörsstyrki Guðlaugs varðar, þá var þeirra aflað samkvæmt þeim reglum er þá giltu um slík. Eins ber að geta að Guðlaugur var með þeim fyrstu sem skilaði uppgjöri vegna prófkjörsstyrkja til Ríkisendurskoðunar.

Hvað siðferði slíkrar styrkjasöfnunar varðar, þá er varla nokkrum manni stætt á því að setjast í dómarasæti hvað það varðar. Enda tæplega nokkur þess bær að ákveða hvar siðgæðismörkin liggja.  Sé það svo á „núverandi siðferðisskalla“ að fjármögnunaraðferðir stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka fyrir árið 2007, séu siðlausar, þá verður það bara að vera svo.   Hitt er hins vegar öruggt að margir þeirra er gagnrýnt hafa styrkjasöfnun Guðlaugs Þórs og setja gjarnan upp „sparifyrirlitningar-svipinn“ sinn þegar styrkjamál hans eru rædd, mættu alveg líta í eigin barm.
Enda voru aðferðir Guðlaugs við styrkjasöfnun í grundvallaratriðum þær sömu og annarra er söfnuðu styrkjum.  Sama hvar í flokki þeir einstaklingar eru eða voru.  Heildarfjárhæð styrkja hefur ekkert með siðferði að gera.  Heldur ber slíkt vott um dugnað og skipulag í þeim "anda" sem þá ríkti þverpólitískt, hvað þessi mál varðar. 

Aðkoma Guðlaugs að REI var  rannsökuð af pólitískum andstæðingum Guðlaugs, en Svandís Svavarsdóttir skipaði rannsóknarnefnd um málið á þeim tíma sem vinstri menn voru í meirihluta í borginni á síðasta kjörtímabili. Sú nefnd fann hins vegar ekkert óeðlilegt að aðkomu Guðlaugs að málinu.

Enda var hún á þann veg að Guðlaugur Þór var stjórnarformaður OR og lagði til að öll útrásarverkefni OR færu í sjálfstætt hlutafélag til að koma í veg fyrir að skattgreiðendur bæru ábyrgð á þeim verkefnum. Í greinagerð með tillögunni er þess getið að setja eigi um 2 milljarða í eignum og fjármunum að hámarki næstu árin.

Tillagan var samþykkt samhljóða. Rei er stofnað í júní 2007 en þá var Guðlaugur Þór  ekki formaður stjórnar OR og kom ekki að málum þess fyrirtækis.

Gunnar Andersen fyrrverandi forstjóri FME, leitaði sem helst hann gat eða einhverju misjöfnu um Guðlaug, í þeim gögnum sem hann hafði þá aðgang að. Enda hafði Guðlaugur bent á margt sem FME aðhafðist sem vart var innan ramma laga og reglna um FME.

Eina sem að hann fann var kaup Guðlaugs á einhverju líftryggingarfyrirtæki, sem hann fjármagnaði með lánum árið 2002.

Saga þess máls er í stuttu máli þannig að Guðlaugur Þór starfaði upp úr aldmótunum síðustu sem   forstöðumaður tryggingadeildar Búnaðarbankans. Hann samdi um að bankinn tæki Swiss Life umboðið. Þegar Kaupþing tekur yfir Búnaðarbankann þá vilja þeir ekki umboðið þar sem að þeir lögðu áherslu á sitt félag Alþjóða líftrygginafélagið. Niðurstaðan var að GÞÞ kaupir umboðið á 31.7 milljón króna og selur á 32.7. Kaupverðið var útlagður kostnaður Búnaðarbankans.

 Hvergi hefur hins vegar komið fram að hann hafi ekki greitt af láninu sem fjármagnaði kaupin í upphafi, þannig að ætla má að hann hafi greitt upp lánið og af þeim sökum í raun varla grætt neitt á þeim viðskiptum, því væntanlega hefur  lánið borið einhverja vexti.

 Gunnars Andersen tók þá upp á því  að saka Guðlaug um leka í Kastljós, upplýsingum úr Rannsóknarskýrslu Alþingis og fréttaskýringu Þórs Jónssonar sem birtist á pressan.is . Varla hefur  Guðlaugur Þór þurft að benda umsjónarmönnum Kastljóss á að lesa Rannsóknarskýrslu Alþingis eða umrædda fréttaskýringu Þórs, við undirbúning þess innslags sem Kastljósið birti um Gunnar.  En í skýrslunni og fréttaskýringunni kemur allt það fram er Kastljóssinslagið fjallaði um.

Ætla má að Gunnar hafi lengi vitað um þessi viðskipti Guðlaugs, en eðlilega þagað yfir þeim. Enda ekki neitt þar að fela.   Telji hins vegar Gunnar að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað, má spyrja afhverju hann hafi ekki sent málið til Sérstaks saksóknara, er hann var forstjóri FME.  Eins og honum bar að gera samkvæmt erindisbréfi sínu?

Telur Gunnar í raun að ekkert samnæmt hafi átt sér stað, en kæri samt til þess að koma höggi á Guðlaug, þegar hann má síst við slíku?   Enda stöðugar árásir hans í félagi við Inga Frey Vilhjálmsson blaðamanns í DV, farnar að hafa öfug áhrif, sökum þess að stærstur hluti þjóðarinnar  er löngu hættur að taka DV og þar sem þar stendur alvarlega og því hafi þurft að reiða hærra til höggs.  Höggs sem er þó eins og önnur högg Gunnars  og Inga Freys á persónu og feril Guðlaugs Þór, vindhögg og virka sem „boomerang“ á þá báða.  


mbl.is „Nýjasti þátturinn í leikriti Gunnars“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 1804

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband