4.12.2010 | 00:05
Ráðdeildarsama fólkið borgar brúsann fyrir bankana.
Þetta lokasvar ríkisstjórnar, banka og lífeyrissjóðana til lausnar skuldavanda heimilana, er ekkert annað en kjaftshögg á þá sem í gegnum tíðina, reynt að sýna ráðdeild og varkárni í sínum fjárfestingum. Reynt að fjárfesta ekki í fasteign nema að geta átt einhvern hluta af henni frá upphafi.
Þetta sama fólk reynir eflaust líka, að eignast bíla með því að borga hvað mest út í þeim. Þetta er að öllum líkindum, ekki með önnur dýr lán, eins og t.d. yfirdráttarlán og önnur neyslulán á bakinu. Þetta fólk á alla jafna betur með að standa skil á sínum skuldum, því að sparnaðarvenjur þess, hafa veitt því borð fyrir báru, ef eitthvað óvenjulegt kemur uppá.
Þetta er með öðrum orðum fólkið sem ekki hefur verið komið í vandræði með sín lán fyrir hrun. Þetta fólk, er kannski ekki enn komið í vandræði með að borga af sínum lánum. En þetta fólk hefur engu að síður, tapað stórum fjárhæðum, vegna lækkandi fasteignaverðs á meðan lánin hafa hækkað. Þetta er fólkið sem borgar fyrir, meinta fórnfýsi banka og lífeyrissjóða, samkvæmt útreikningum á Hagsmunasamtaka Heimilana. Eins og dæmið hér að neðan sýnir:
Hver borgar þetta fyrir bankana því ekki gera þeir það sjálfir? Tökum dæmi: Tvær fjölskyldur keyptu sér sitt hvora íbúðina í sama húsinu 2007 á 25 milljónir. Önnur fjölskyldan tók 100 % lán og skuldar í dag um 33,2 milljónir. Hin fjölskyldan átti 10 milljónir og tók því 15 milljónir að láni og skuldar í dag um 20 milljónir. Gefum okkur að íbúðirnar kosti í dag um 20 milljónir og lánin hafi hækkað um c.a. 33 % samkvæmt verðtryggingu. Samkvæmt leið ríkisstjórnarinnar þá fær fyrri fjölskyldan sem tók 100 % lánið afskrifað niður í 110 % og skuldar því 22 milljónir og hefur engu tapað þó hún skuldi 2 milljónir umfram verðmæti.
Hin fjölskyldan fær enga leiðréttingu, skuldar 20 milljónir og er búin að tapa þeim 10 milljónum sem hún lagði fram í upphafi þannig að hún er búin að borga fyrir leiðréttingu hins aðilans í þessu dæmi og gott betur. Þetta kostar ekkert fyrir bankana þegar verið er að færa lán í 110 % veðsetningu, veðsetningin var ónýt áður og ef þeim tekst að fá fólk til að borga af 110 % veðsetningu þá eru þeir að græða en ekki tapa því eðlilegt er að skuldari skuldi ekki meira en nemur verðmæti eignarinnar ef hann lagði eitthvað fram sjálfur í upphafi, ef bankinn lánaði honum 100 % í upphafi þá verður bankinn sjálfur að taka tapið af því. Það er enginn akkur í því fyrir neinn að skulda umfram verðmæti húsnæðissins síns og sinnar fjölskyldu."
Síðan munu allir skattgreiðendur á einn eða annan hátt greiða fyrir aðgerðir ríkisstjórnarinnar, sem og björgun hennar á Íbúðalánasjóði. Enda hlaupa þær aðgerðir á milljörðum. Þá milljarði er ekki að finna, nema með auknum tekjum ríkissjóðs, eða þá auknum niðurskurði. Niðurskurðurinn er kominn nánast að beini þannig að varla verður mikið skorið niður til viðbótar því sem nú er, án skelfilegar afleiðinga. Þá er tekjuaukningin eftir. Henni er hægt að ná með sársaukafullu og röngu leiðinni, hækkun skatta, sem þó eru líkur á að skili ekki því sem til er ætlast, eða þá á þann hátt að allir ,,græði", þ.e. að stækka eða víkka skattstofnana, með aukinni verðmætasköpun og atvinnu.
![]() |
Hinir ráðdeildarsömu tapa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.12.2010 | 20:31
Aukin skattheimta og niðurskurður?
Jæja þá hafa stjórnvöld í samstarfi við banka og lífeyrissjóði, gefið sitt lokasvar í fjórða skipti, varðandi skuldavanda heimilana. Hversu langt það kann að ná til lausnar vandanum, er kannski ekki hægt að koma auga á í fljótu bragði. Samt gætu mörg heimili enn verið í töluverðum vanda, vegna annara og jafnvel dýrari lána, en húsnæðislána, eins og t.d. yfirdráttarlána og/eða annarra neyslulána.
Líklegast eru bankar og lífeyrissjóðir bara að flýta óumflýjanlegu afskriftaferli. Þeim hefði líklegast líkað það betur, að fá að safna á afskriftarreikninga, áður en þeir byrja að afskrifa, frekar en að þurfa jafnvel að fjármagna þær á annan hátt. Enda bankar og lífeyrissjóðir ekki að afskrifa neitt annað, en það sem ekki hefði innheimst af þessum lánum.
Hver einasta króna sem hins vegar felllur á ríkið (skattgreiðendur) hvort sem það, vegna hækkunnar bóta, eða frestunar á lækkun bóta, eða kostnaðar sem að fellur til vegna Íbúðalánasjóðs, mun krefjast aukinna tekna ríkissjóðs eða þá aukins niðurskurðar.
Skattboginn spenntur til fulls og vel það, þannig að varla liggja ósóttar tekjur ríkissjóðs þar, nema þá með aukinni verðmætasköpun og atvinnu.
Niðurskurður í því sem flestir ef ekki allir vilja standa vörð um, velferðinni, er töluvert yfir sársaukamörkum, þannig að vart verða meiri fjármunir sóttir í niðurskurð þar........
Það gæti því orðið þungur biti fyrir hina norrænu velferðarstjórn, að þurfa að fresta um óákveðna framtíð, kyngreindum fjárlögum, eða einhverjum álíka ,,mikilvægum" málaflokkum.
![]() |
Töfin kostaði milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.12.2010 | 18:43
Er Eftir-Helgi þá kominn heim frá Langtíburtistan?
Núna eru átta vikur síðan 8000 manns mótmæltu aðgerðaleysi stjórnvalda, vegna skuldavanda heimilana. Jóhanna Sigurðardóttir, sem vanalega lætur sér fátt um finnast, þó sauðsvartur almúginn, æmti og skæmti, tók á sig rögg, þó meira af hræðslu, en af skyldurækni og vilja og kallaði fulltrúa stjórnarandstöðunnar á fund, til lausnar skuldavanda heimilana.
Fyrstu fundirnir, voru að sögn þeirra, er þá sátu, að mestu einhvers konar súrealískt leikrit, þar sem látið var líta svo út, að annars verklaus ríkisstjórn síðustu tuttugu mánuði þar á undan, væri nú loksins búin að taka hendur úr vösum og ætlaði að taka á vandanum í eitt skipti fyrir öll.
Síðan voru hagsmunaaðilar, fjármálastofnanir, lífeyrissjóðir og talsmenn lánþega (HH) kallaðir að borðinu ásamt því, sem reiknimeistar Skjaldborgarinnar fengu smá viðvik við að reikna hinar ýmsust mögulegar og ómögulegar leiðir út úr vandanum.
Samt var þó eins og einhvern vantaði, megnið af ferlinu. Eftir nokkra daga, þá rann upp ljós fyrir mönnum. Eftir - Helgi var staddur í Langtíburtistan og var væntanlegur heim hvað úr hverju, en þó líklegast ekki fyrr en í næstu viku, eða í síðasta lagi örðum hvorum megin við næstu viku.
Núna berast hins vegar þær fréttir að Eftir - Helgi sé nú loksins kominn heim og þá fari hlutirnir að gerast. Hvað þá gerist veit nú enginn, enda er vandi um slíkt að spá.
Almennar niðurfellingar skulda, eru þó nær örugglega útaf borðinu, enda lífeyrissjóðir, eða stjórnarmenn þeirra, nær allir drullað upp á hnakka í fjárfestingar stefnu eða óstefnu sjóðana og þeir nánast á hausnum eða í það minnsta sjá sér ekki fært um að, greiða fólki þann lífeyri sem það á rétt á. Þannig að ekki geta þeir afskrifað hjálparlaust á alla línuna. Svipaða sögu er svo að segja af Íbúðalánasjóði, enda sá sjóður á hausnum og þurfa stjórnvöld að öllu líkindum að ljá honum 33 milljarða, svo sjóðurinn fari ekki í þrot.
Almennar niðfellingar frá hendi bankana, voru hins vegar afskrifaðar, þegar stjórnvöld sömdu við kröfuhafa gömlu bankana um yfirtöku á nýju bönkunum. Í því samkomulagi, fengu bankarnir nýju lánasöfn gömlu bankana með góðum afslætti, til þess að geta fegrað eignastöðu sína. Stjórnvöld fengu svo að leggja bönkunum til minna fé en áætlað var í upphafi, gegn því að bankarnir yrðu ekki ónáðaðir um of, með kröfum um almennar niðurfellingar skulda.
Enda færi almenn niðurfærsla skulda, frekar illa með bókhaldsfagra eignarstöðu bankana. Hugsast gæti þó að bankarnir hugi að sértækri niðurfellingu skulda, þegar líða fer að lokadegi þeirra lána er umræðir. Þannig fá bankarnir svigrúm til þess að koma sér upp afskriftareikningum, sem gera slíka niðurfellingu mögulega, án þess að það sjái á bókhaldsfagri ásjónu eignasafna þeirra.
![]() |
Engin ákvörðun tekin í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.11.2010 | 21:39
Bráðabrigða-stjórnarská á 1.500 milljónir?
Þá er það loksins orðið ljóst, hverjir muni taka sæti á stjórnlagaþinginu. Flest atkvæði fékk Þorvaldur Gylfason. Annars eru þingmenn allir utan 3 af Höfuðborgarsvæðinu.
Þorvaldur talar þar um þing allrar þjóðarinnar, líka þeirra sem ekki kusu. Ætli hann taki sama spuna á þingið og kollegi hans úr Háskólanum, Guðrún Pétursdóttir, formaður stjórnarskrárnefndar. En Guðrún sagði eitthvað á þá leið, að ef að fólk hefði verið óánægt með stjórnlagaþingið, þá hefði það mætt á kjörstað og skilað auðu. Slík túlkun er frekar vafasöm, því vanalega skilar fólk ekki auðu í kosningum, nema það sé óánægt með það sem í boði er í kosningunum (frambjóðendur). Óánægja með stjórnlagaþingið í heild sinni, er því sýnd með því að láta ekki merkja við sig á lista mættra á kjörstað.
Aðaltakmark Þorvalds á stjórnlagaþinginu, verður samkvæmt orðum hans í Kastljósinu, að afgreið bráðbrigðastjórnarskrá til tveggja ára og búa svo um hnútana að Alþingi geti ekki annað en vísað niðurstöðum stjórnlagaþingsins óbreyttum til þjóðarinnar.
Í orðum Þorvalds fellst það, að búið skuli svo um hnútana, að flokkur manna, er tæplega 40% þjóðarinnar kaus til setu á stjórnlagaþinginu, muni setja öðrum hópi manna, er ca. 80% þjóðarinnar kaus.
Reyndar er það nú svo, að í lögum um stjórnlagaþing, þá hefur stjórnlagaþingið möguleika á því að vísa niðurstöðu sinni sjálft til þjóðarinnar. Það er mun heilbrigðara og í raun lýðræðislegra að það yrði gert, frekar en að ætlast til þess að aðrir geri það.
Hvað bráðabrigðastjórnarskrána varðar, þá er slíkt frekar hæpið, nema þá að stjórnlagaþingið setji í bráðabigðastjórnarskrána, að kjörtímabili alþingismanna skuli aðeins vera tvö ár, eða þá að það þýði að ekki þurfi tvö þing með kosningum á milli, til þess að ný stjórnarskrá, eða breytingar á stjórnarskrá taki gildi.
Að öðrum kosti, tæki bráðabrigðastjórnarskrá Þorvalds gildi eftir nærri þrjú ár. Ekki er við því að búast að Jóhönnustjórnin fari frá völdum á miðju kjörtímabili, bara til þess eins að hleypa að nýrri stjórnarskrá. Fyrri samþykkt Alþingis á stjórnarskrá, yrði því ekki fyrr en skömmu fyrir kosningar vorið 2013. Seinni samþykktin yrði svo sumarið eða haustið 2013, þegar nýtt þing kæmi saman. Líklegt væri þá að ný stjórnarskrá, tæki gildi á 95 ára fullveldisafmælinu. Sem væri eflaust líkt og köld tuska í andlit þeirra er standa vilja vörð um fullveldið, því draumur stjórnvalda eða í það minnsta Samfylkingarhluta þeirra, er að rýra fullveldið á þann hátt að ESB aðild verði möguleg. Slíkt mun einnig vera ósk Brusselherrana.
Það er því nokkuð ljóst að kjósa þyrfti aftur hér vorið 2015, þar sem tveggja ára stjórnarskrá Þorvaldar félli úr gildi, 1. des 2015 og frá þeim tíma væri þá áætlað að stjórnarskrá til frambúðar tæki gildi.
Hvað skyldu svo þessi ósköp öll kosta? Gróflega reiknað fer kostnaðurinn, með öllu vart undir 1.100 milljónir en gæti farið upp í 1550 milljónir:
Þjóðfundur ca 100 milljónir.
Kosning til Stjórnlagaþings 200-250 milljónir, að minnsta kosti. ( þjóðaratkvæði með já/valkosti kostar 200 - 250 milljónir og því stjórnlagaþingskosning vart undir þeirri upphæð)
Stjórnlagaþingið sjálft, 400 -700 milljónir.
Þjóðaratkvæði um niðurstöðu stjórnlagaþings 200 - 250 milljónir.
![]() |
Þing allrar þjóðarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.11.2010 | 21:34
Þýðir dræm kosningaþátttaka að þjóðin vilji ekki breytingar?
Svarið við spurningu í fyrirsögn, er líklega ,,NEI". Hins vega er meira en líklegt að þó þjóðin nánast öskri á breytingar, þá eru þær breytingar líklegast ekki ný stjórnarskrá. Í það minnsta virðist slíkt ekki vera í forgangi hjá stærstum hluta þjóðarinnar.
Hvaða breytingar skildi þjóðin þá vera að kalla á, sem í rauninni koma breyttri stjórnarskrá ekkert við? Skildi það vera lausn á skuldavanda heimilana og að hjól atvinnulífsins fari að snúast aftur?
Að stjórnvöld forgangsraði þannig, að útgjöld til heilbrigðismála og menntunar, verði ekki nánast sem afgangsstærð?
Að þeim sem minnst megi sín verði tryggt næg afkoma, þannig að vikulegar ferðir í hjálparstofnanir eftir matargjöfum, heyri sögunni til?
Liklega er eitthvað ofantalið, ef ekki allt ofar á forgangslista þjóðarinnar, en stjórnlagaþing og ný stjórnarskrá. Stjórnvöldum ber því að taka þessari dræmu kosningaþátttöku sem skilaboðum um að nú sé tími látalæta liðinn og tími athafna og framkvæmda kominn, þó fyrr hefði verið.
![]() |
Um 30% búin að kjósa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fréttinni er blogg þetta hangir við, segir Jóhanna Sigurðurdóttir, að þingmenn hafi hingað til ekki getað klárað endurskoðun á stjórnarskránni. Staðreyndin er nú sú, að Alþingismenn munu á endanum ljúka endurskoðuninni, telji meirihluti Alþingis þörf á slíku.
Verði kjörsókn ekki betri en lítur út fyrir að vera, þá mun stjórnlagaþingið, varla hafa umboð frá þjóðinni til breytinga á stjórnarskránni.
Eins er það kjánalegt þegar fólk gerir grein fyrir atkvæði sínu á þann hátt að það hafi kosið jafnmarga af hvoru kyni. Það hlýtur að vera markmiðið með þessum kosningum, eins og öllum öðrum, að hæfasta fólkið nái kosningu óháð kynferði.
Verði kjörsókn ekki betri en stefnir í hlýtur að mega túlka það sem ákveðinn ósigur stjórnvalda, er lagt hafa töluverða vinnu og áherslu á þetta stjórnlagaþing, sem eitt af leiðarljósum framtíðar.
Þegar þetta er skrifað kl. rúmlega 18, þá stefnir í lélegri kosningaþátttöku en í þjóðaratkvæðinu um Icesave, sem stjórnvöld kepptust við að kalla ,,marklausan skrípaleik".
![]() |
Jóhanna búin að kjósa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.11.2010 | 16:12
Hugsjónir og pólitík á stjórnlagaþingi.
Þegar þetta er skrifað, veit síðuritari ekki frekar en allir aðrir hverjir muni ná kjöri á stjórnlagaþing. Síðuritari hefur þó dottið um fullyrðingar á netinu þess efnis að kjósa ætti frekar hugsjónarfólk, fremur en pólitískt fólk. Nú er það svo að sama fólkið er í raun í báðum hópum. Hugsjónafólk verður pólitískt við það eitt að hafa hugsjónir og pólitíska fólkið er pólitískt, vegna þess það hefur einhverjar hugsjónir.
Það er líka alveg ljóst að mörg þau álitamál sem upp munu koma á stjórnlagaþinginu eru í eðli sínu pólitísk, hvort sem fólki líkar það betur eða verr. Mál eins og auðlindamál, fullveldismál, ákvæði er varða forsetann og mörg önnur.
Margir þessara svokölluðu hugsjónamanna, tala líkt og þeirra hlutverk á stjórnlagaþinginu, verði að breyta kvótakerfinu, með því að festa það í stjórnarskrá að auðlindir, þar með talin fiskveiðiaulindin verði í þjóðareign. Sú breyting eða nýbreytni í Stjórnarskrá, breytir hins vegar kvótakerfinu ekki. Breytingar á kvótakerfinu munu eftir sem áður vera háðar, samþykki Alþingis, hvort sem fiskveiðiauðlindin verði þjóðareign, samkvæmt stjórnarskrá eða ekki. Eins mun það verða um aðrar auðlindir, þ.e. það verði Alþingis að ákveða á hvaða hátt, auðlindum þjóðarinnar verði ráðstafað.
Um fullveldisákvæðið eða ákvæðin munu svo fyrst og fremst, andstæðingar ESB-aðildar og fylgjendur aðildar takast á um. Enda aðild ómöguleg, án breytingar á ákvæðum um fullveldið. Fullveldið er því hápólitískt mál, sem hugsjónafólk með og á móti aðild mun takast á um.
Hvað valdsvið forsetans og verkerfni hans varðar og hluti eins og málskotsrétt forsetans, munu nánast sömu hópar og takast á um fullveldið verða á öndverðum meiði.
![]() |
13% kjörsókn í Reykjavík kl. 14 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2010 | 03:10
Svokallaður listi sjálfstæðismanna til stjórnlagaþings og ESB-aðildarsinnar.
Ég hef í dag og kvöld fylgst með á netinu, umræðum um svokallaðan lista sjálfstæðismanna til stjórnlagaþings. Ég hef í sjálfu sér ekki myndað mér skoðun á slíkum listum, frekar en því, þegar að frambjóðendur til stjórnlagaþings, hvetja stuðningsmenn sína, til þess að kjósa ákveðna frambjóðendur, því þeir standi fyrir sviðaða hluti og þeir sjálfir.
Báðar þessar aðferðir ýta undir flokkamyndun á stjórnlagaþinginu. Flokkamyndun, þar sem stuðningsmenn ákveðinna gilda munu takast á við stuðningsmenn andstæðra gilda.
Hins vegar hef ég rekið augun í það, að flestir þeir sem andæfa svokölluðum lista sjálfstæðismanna, eru fylgjandi ESB-aðild. Til þess að ESB-aðild sé möguleg, þá þarf stjórnarskrarbreytingu. Breytingu sem að flestir ef ekki allir aðildarsinnar í hópi frambjóðenda, vilja vinna að, nái þeir kjöri til stjórnlagaþings.
Á lista sjálfstæðismanna, veit ég aðeins um einn aðila sem fylgjandi er aðild að ESB. Hina tel ég flesta ef ekki alla andvíga aðild.
Það er því ósköp eðlilegt að aðildarsinnar, fái hland fyrir hjartað, þegar flokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn, eða bara hver sem er, hvetur fólk, til þess að kjósa frambjóðendur, sem ekki muni styðja þær breytingar sem þarf á stjórnarskránni, svo ESB-aðild verði möguleg.
Að lokum finnst mér það fáranlegt sjónarmið, að halda því fram að frambjóðandi, er auglýsir sjálfan sig í fjölmiðlum sé eitthvað ómerkilegri pappír en aðrir frambjóðendur og finnst það reyndar formanni stjónlaganefndar, til minnkunnar að hnýta í þá frambjóðendur, er kosið hafa það að auglýsa í fjölmiðlum. Ummæli formansins eru í rauninni óviðeigandi í ljósi þess að maki formannsins er í framboði til stjórnlagaþings, en hefur ekki auglyst í fjölmiðlum.
Það ætti ekki að vera frambjóðanda til vansa, þó hann auglýsi í fjölmiðlum, telji hann þann kostinn árangursríkastan, sé farið að lögum varðandi kostnað á kosningabaráttunni. Það að kosta eitthvað til eigin framboðs, gæti nefilega allt eins verið til merkis um mann sem reiðubúinn er að berjast þjóðinni til heilla í þeim verkum sem framundan eru á stjórnlagaþinginu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2010 | 21:31
Auðvitað á þjóðin að eiga lokaorðið.... Vá sem fjölmiðlar líta framhjá.
Þegar Ólafur Ragnar Grímsson staðfesti Icesave 1, þá var það eftir töluverða umhugsun. Að lokum féllst hann þó á að staðfesta lögin, vegna þeirra efnahags og lagalegu fyrirvara sem var í þeim lögum. Það var því í rauninni rökrétt niðurstaða, hjá Ólafi að synja Icesave 2 (eða lögum Nr.1/2010), þar sem öllum fyrirvörum fyrra frumvarps hafði verið sópað burt. Fari svo að Icesavesamningur 3, verði ekki öðruvísi en Icesave 2 nema hvað vaxtaprósentur verði lægri og einhver vaxtalaus tímabil, þá er það einboðið að Ólafur synji þeim lögum einnig. Enda voru vextir og vaxtakjör ekki ástæða synjunar Ólafs, heldur ólögvarin krafa Breta og Hollendinga um greiðsluskyldu okkar.
Fari Icesave í annað skiptið á ca. ári í þjóðaratkvæðagreiðslu, er það alveg morgunljóst að áhugi stjórnvalda fyrir því þjóðaratkvæði, verður mun meiri, en fyrir þeim kosningum er fram fóru 6. mars sl. Ástæðan fyrir því er að líf ríkisstjórnarinnar, mun hanga á þeim bláþræði, að synji þjóðin einnig samningunum, þá verður samningsumboðið endanlega tekið af stjórnvöldum, auk þess sem viðsemjendur okkar, myndu ekki sjá ástæðu til þess að ræða við þessi sömu stjórnvöld. Dómstólaleiðin væri þó ekki fyrsti valkostur hjá viðsemjendur okkar, fremur en áður, enda væri Icesavedeilan fyrir lifandis löngu farin fyrir dómstóla, teldu viðsemjendur okkar sig hafa hina minnstu von um sigur.
Eitt ber þó að hafa í huga, sem að fengi flest ábyrg stjórnvöld til að staldra við. Það er að fyrir nokkrum vikum, þá var dómtekið í Héraðsdómi Reykjavíkur mál gegn skilanefnd Landsbankans, þar sem kröfuhafar óviðkomandi Icesavedeilunni höfða mál, vegna þess forgangs í kröfur þrotabús Landsbankans, sem uppgreiðsla Icesave mun hafa. Fari það mál á versta veg, þá er það nær öruggt að þær tölur sem nefndar hafa verið nýverið sem hugsanlegar greiðslur Íslendinga, vegna ólögvarinna krafna Breta Hollendinga, margfalt lægri en þær gætu orðið á endanum. Enda mun það gerast, fari þetta dómsmál á versta veg, að kröfuröð í þrotabú Landsbankans mun breytast á þann hátt að kröfur vegna Icesave munu færast mun aftar í röðina. Af þeim sökum munu því eignir Landsbankans ekki ganga, nema af mjög litlum hluta upp í þessar ólögvörðu skuldbindingar, sem Bretar og Hollendingar vilja leggja á okkur, með aðstoð Bretavinnugengisins.
![]() |
Lokaorðið hjá kjósendum segir forseti Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Stjórnvöld höfðu frá 1. feb 2009, til þess dags er þau sömdu við kröfuhafa bankana, tækifæri til þess, að gera hvað sem þurfa þyrfti til að leiðrétta skuldavanda heimilana, eða koma með raunhæfar aðgerðir til lausnar á honum. Virði húsnæðislánasafna bankana var töluvert minna en það verð er kröfuhafar bankana fengu þau á. Stjórnvöldum hefðu því, væri áhugi til lausnar vandanum, tekið til sín þessi lánasöfn með mun meiri afföllum, en kröfuhafarnir gerðu á sínum tíma og fært þau yfir í Íbúðalánasjóð. Þó svo að Íbúðalánasjóður, hefði innheimt lánin með þeim afföllum er kröfuhafar bankana fengu þau á, þá hefði engu að síður, Ríkissjóður komið út í plús.
Í samningaviðræðum við kröfuhafa bankana, var kröfuhöfunum hins vegar gert það kleift að þurfa ekki frekar en þeir vilja að taka tillit til þeirra affalla á lánasöfnunum er þeir tóku yfir, til aðstoðar skuldsettum heimilum. Í staðinn fengu stjórnvöld að leggja bönkunum til minna fé, en til stóð í upphafi.
Í stuttu máli var þetta svona:
,,Afsláttur nýju bankanna á lánasöfnum gömlu bankanna var að hluta notaður til að hækka virði eigna nýju bankanna sem skýrir mikla andstöðu við lánaleiðréttingu. Þetta var gert til að minnka framlag ríkissjóðs með nýju bönkunum eða til að lækka greiðslu ríkissjóðs vegna 100% innstæðutryggingar. M.o.ö. ætlunin er að láta skuldara greiða fyrir innstæðutrygginga með stökkbreyttum lánum og hærri sköttum."
Meint snilld Steingríms, er hann sjálfur reyndar eignaði sér, er hann hafði lokið við að semja við kröfuhafana, var því ekki meiri snilld en það, að þessi meinta snilld, gerði fátt annað en að herða kverkatak bankana á lántökum.
Það er því nokkuð ljóst, að allan þennan tíma, sem stjórnvöld hafa boðað allherjarlausn á skuldavandanum, á næstu dögum, næstu viku eða eftir helgi, þá hafi það verið þeim ljóst, að sökum þeirra samninga er þau gerðu við kröfuhafa bankna, að þessar yfirlýsingar þeirra væru fyrst og fremst til þess að slá ryki í augun á almenningi og hylma yfir með meintri samningssnilld Steingríms J.
Stjórnvöld hafa vitað það allan tímann, að bankarnir koma ekki af fullum þunga inn í aðgerðapakka stjórnvalda, vegna skuldavandans, án aukins fjárframlags frá ríkinu.
![]() |
Skuldaaðgerðir að skýrast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
reykur
-
baldher
-
benediktae
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
dansige
-
gisliivars
-
fosterinn
-
gauz
-
gp
-
gmaria
-
noldrarinn
-
hallarut
-
halldorjonsson
-
heimirhilmars
-
hlf
-
fun
-
johanneliasson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
kristinnp
-
krist
-
kristjan9
-
wonderwoman
-
ludvikjuliusson
-
magnusthor
-
pallvil
-
rannsoknarskyrslan
-
rosaadalsteinsdottir
-
heidarbaer
-
ziggi
-
saemi7
-
ubk
-
thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar