Leita í fréttum mbl.is

Mun stjórnarandstaða ,,stjórnarþingmanna" aukast í vetur?

Samkvæmt þessari könnun Visir.is eru það um það bil 25% fleiri sem styðja stjórnarflokkana ,heldur en styðja ríkisstjórnina.

Það er kannski ekki gott að geta í þá gátu, hver orsök slík sé.  Styðja kjósendur þessara flokka stefnu þeirra, en kenna hinum stjórnarflokknum um ófarir ríkisstjórnarinnar? 

Sé það svo að kjósendur og grasrót stjórnarflokkana kenni hinum stjórnarflokknum um ófarir ríkisstjórnarinnar, gæti farið svo að órói komist á þingflokka stjórnarflokkana.

 Ríkisstjórnin hefur eins til tveggja þingmanna meirihluta í þinginu (fer eftir Gumma Steingríms) og jafnvel engan meirihluta, ef Þráni Bertelsyni mislíkar eitthvað.  

Þess utan eru þekkt ófá upphlaup þingmanna Vg. svokallaðrar ,,Órólegu deildar", sem ekki er dauð úr öllum æðum þó þrír þingmenn hafi yfirgefið þingflokkinn.

Eins hafa t.d. samfylkingarþingmennirnir Sigmundur Ernir Rúnarsson og Magnús Orri Schram verið duglegir við að setja ríkisstjórnina á skilorð.  Hvort sem einhver meining standi á bak við það, eða um hefðbundinn Samfó-spuna og lýðskrum sé að ræða.

Þessi ríkisstjórn sem í hvert sinn er hún leggur fram nýtt frumvarp, þarf að telja fylgjendur sína í þinginu, mun varla ná markmiðum sínum á komandi þingi.  Heldur munu lyktir flestra þeirra mála er skipta einhverju máli, líkt og fjárlög og stjórn fiskveiða, vera byggðar á samningum og plotti við þá stjórnarþingmenn, er nýta sér veika stöðu ríkisstjórnar er þeir segjast styðja, til þess að slá sjálfa sig til riddara í sínu kjördæmi.

Í öllum þeim málum sem hefðu eitthvað gildi til uppbyggingar í landinu, mun því ekkert annað en hálfkák vera í boði og lausnir mála frekar vera í orði en á borði.

Eina sem er öruggt á meðan þessi stjórn situr er, að heimilum og fyrirtækjum í landinu mun áfram halda að blæða út.  Eins er líklegt að fólksflóttinn til Noregs og annarra Norðurlanda mun halda áfram og ungt og efnilegt fólk, er ætlað var það hlutskipti að draga hér vagninn, næstu ár og áratugi mun flytja af landi brott. 

Allt eins líklegt er að stærstur hluti þessa fólks snúi ekki aftur, nema þá bara til þess að heimsækja ættingja sem enn hér búa.


mbl.is Ríkisstjórnin með 26% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afrekaskrá framtíðarleiðtoga Samfylkingarinnar.

Það bendir allt til þess að Jóhanna Sigurðardóttir, verði ein í kjöri til formanns í Samfylkingunni á landsfundi flokksins er verður haldinn í október.  Það getur nú varla verið svo að almenn ánægja sé með störf Jóhönnu innan Samfylkingarinnar, að flokkurinn telji hana hæfasta til þess að leiða flokkinn áfram.  Nema auðvitað að planið sé að Jóhanna verði formaður flokksins, fram að síðasta landsfundi fyrir kosningar sem væntanlega verður haldinn eftir ca eitt og hálft ár.

Á þeim fundi mun þá líklegast stíga fram einhver þeirra er nefndur hefur til sögunnar sem næsti leiðtogi Samfylkingarinnar.  Mun þá samfylkingarfólk líta á þau formannsskipti sem að flokkurinn hafi skipt um kennitölu og í rauninni mun þá flokkur án fortíðar vera í framboði.

Að öðurm kosti er hin 69 ára gamla Jóhanna Sigurðardóttir framtíðarleiðtogi Samfylkingarinnar.  Framtíðarleiðtogi með ónyta fortíð.

Nú þegar eru eftirfarandi atriði komin á afrekslistann.

* Skjaldborgin um heimili og fyrirtæki ,,seld" kröfuhöfum bankana.
* Skrifað undir Icesave I vitandi að ekki væri þingmeirihluti fyrir samningnum.
* Leiðtogi þeirrar ríkisstjórnar sem tvisvar verið hafnað af þjóðinni í atkvæðagreiðslum um Icesave.
* Lögfræðiálitum um ólögmæti gengistryggðra lána troðið ofan í skúffu og litið framhjá þeim við síðari einkavæðingu bankana.
*Misheppnaðar og rándýrar björgunaraðgerðir á sparisjóðunum VBS fjárfestingarbanka og Saga Capital.
* Vafasöm (svo ekki sé meira sagt) yfirtaka og sala á Sjóvá.*
* Farsinn vegna fyrirhugaðs stjórnlagaþings, sem varð að umboðslausu stjórnlagaráði.
* Getuleysi, þrátt fyrir ótal nefndir og starfshópa, við að koma saman sjávarútvegsstefnu, sem nýtur stuðnings innan ríkisstjórnarflokkana og þar með meirihluta í þinginu.
*Einkavæðing (afhending) föllnu bankana til kröfuhafa þeirra.

Atriðin eru eflaust fleiri og reyndar mjög skiljanlegt að enginn annar bjóði sig fram sem formaður í Samfylkingunni.  Sá aðili þyfti að burðast með þessi atrið og fleiri til enda kjörtímabilsins og væri því með jafnónýta fortíð og Jóhanna sjálf, er kemur að kosningum.  Tilraun mun því vera gerð að skipta formann og láta eins og flokkurinn hafi fengið nýja kennitölu og nýja hvítþvegna fortíð við formannsskiptin. Líkt og reyndar var gert, þegar Jóhanna varð formaður flokksins, vegna veikinda ISG, árið 2009.


mbl.is Gefur kost á sér til endurkjörs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis með augum Jóhönnu.

Í kjölfar útkomu skýrslu RNA, sem innihélt meðal annars gagnýni á svokallað ráðherraræði. Í skýrslunni er einnig gagnrýnt þetta vald sem framkvæmdavaldið hefur hrifsað til sín af löggjafanum.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í sjónvarpsviðtali, af því tilefni, hún hefði skipað starfshóp til þess að fara yfir málið. Fyrir starfshópnum fór Gunnar Helgi Kristinsson, uppáhalds stjórnmálafræðingur Jóhönnu.

Afrakstur starfshópsins birtist í svokölluðu stjórnarráðsfrumvarpi.  

Í því frumvarpi er í rauninni gengið lengra en gagnrýni RNA, nær nokkru sinni.  Og ekki nóg með það, heldur er foringja og ráðherraræðið, sem gagnrýnt var í skýrslu RNA lögfest, verði frumvarpið að lögum.

Það er engu líkara en að Jóhanna og samráðherrar hennar, hafi fengið aðra skýrslu frá RNA, en afgangurinn af þjóðinni.  Í það minnsta, er það sanngjarnt að álykta svo, hafi Jóhanna einhvern tíman  ætla að taka skýrslu RNA og efni hennar alvarlega  og bregðast við og snúa við þeirri þróun er RNA segir vera í samskiptum framkvæmdavalds og löggjafavalds. 

Að öðrum kosti verður að álykta að lesskilningur Jóhönnu og hjálparkokka hennar við gerð frumvarpsins, sé verulega langt undir frostmarki.


mbl.is Jón andvígur fjölgun aðstoðarmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,Skítlegt eðli" fær endurnýjun lífdaga.

Það sem helst hefur staðið framkvæmdum við álver í Helguvík fyrir dyrum, að ekki hefur tekist að semja um verð á þeirri orku er álverið kemur til með að nota.  Eru þeir samningar í það miklum hnút að deilan er komin fyrir sænskan gerðardóm, er úrskurða mun í október.  Sú deild Magma Energy er rekur HS-Orku, er jú sænsk.

Hvergi á Íslandi er jafnmikið atvinnuleysi og á Suðurnesjum.  Bygging álversins myndi því bæta atvinnuástandið á svæðinu verulega. 

Sé það svo að samningstregðu HS-Orku gagnvart álverinu, megi rekja til íhlutunar Steingríms  þá er það væntanlega  með samþykki ríkisstjórnar og stjórnarflokka, í það minnsta á ábyrgð þeirra.  

Stjórnarflokkarnir og ríkisstjórnin hafa sett upp mörg leikrit, þar sem atvinnuástandið á Suðurnesjum og kaup Magma á HS-Orku.

Nokkur upphlaup ráðherra og þingmanna Vg. vegna viðskipta Magma, falla niður sem dauð og ómerk, enda virðast þau eingöngu hafa verið notuð til heimabruks.

 ,,Skítlegt eðli" Hinnar Norrænu Velferðarstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur, skein svo í gegn, þegar ríkisstjórnin fundaði um atvinnumál í Reykjanesbæ.  Þar ,,lugu" ráðherrar ríkisstjórnarinnar því, að áhyggjur þeirra vegna atvinnuástandsins væru miklar og gáfu fólki fölsk loforð um að eitthvað færi að rætast úr hjá því.   Varla er hægt að ætla þeim áhyggjur, er beita sér á jafn afdrifaríkan hátt gegn atvinnuuppbyggingu.


mbl.is Leynimakk með Magma Energy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með ólíkindum............

...þetta sleifarlag stjórnvalda, að hafa hunskast til þess að gera þessa lagalegu og hagfræðilegu úttekt á gjaldeyrishöftunum, eins og ákveðið var samkvæmt samkomulagi við stórnarandstöðuna sl. vor.

 Hvað stóð í vegi fyrir því að samkomulagið var ekki efnt?  Gátu stjórnarflokkarnir kannski ekki komið sér saman um framæmdina?  Óttuðust stjórnvöld það, að útkoma úttektarinnar, yrði þeim óhliðholl?

Hver sem ástæðan kann að vera, þá er það hins vegar morgunljóst, að ríkisstjórn sem að hefur ekki dug í sér til þess að láta gera úttektir sem þessar, á jafnstóru máli og þessu, er vita gangslaus og ekki á vetur setjandi.


mbl.is Gjaldeyrisumræðu frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biðlaun og biðlaunaréttur alþingismanna.

Samkvæmt fréttum á eyjan.is, ætlar Þórunn Sveinbjarnardóttir að þiggja biðlaun, er hún lætur af þingmennsku, enda sé það lögbundinn réttur hennar.  Ekki ætla ég að deila um það, heldur benda á aðra eða aðrar hliðar málsins.

Síðuritara segir svo hugur, að lög um biðlaunarétt alþingismanna, hafi verið sett á sinum tíma til þess að tryggja þeim þingmönnum sem ekki næðu kjöri í kosningum, eða gæfu ekki kost á sér eftir kosningar, laun út einhvern uppsagnarfrest, líkt og tíðkast með almenna launamenn hér á landi.

Hinum almenna launamanni er tilkynnt með fyrirvara sem nemur uppsagnarfrestinum, að starfskrafta hans sé ekki lengur vænst.  Vinnur launamaðurinn þá oftast nær út uppsagnarfrestinn eða þá ef honum er gert að hætta samstundis þá fær hann uppsagnarfrestinn greiddan.  Alþingismönnum er hins vegar ,,sagt upp störfum" í þingkosningum.  Biðlaunin eru því laun út ,,uppsagnarfrestinn".

Ákveði launamaðurinn hins vegar að hætta störfum, þá vinnur hann út uppsagnarfrestinn. Að öðrum kosti þá fær hann ekki uppsagnarfrestinn borgaðan.

Þegar alþingismaður nær kjöri til Alþingis, fær hann samkvæmt stjórnarskrá í hendur kjörbréf, sem gildir til næstu þingkosninga, eða allt að fjögur ár.  Kjörbréfið tekur hins vegar ekki gildi, fyrr en þingmaðurinn hefur undirritað drengskap sinn við stjórnarskrána og þar með ,,bundið" til þingmennsku til næstu kosninga eða allt að fjögur ár. 

 Þingmaður sem hættir á miðju kjörtímabili, ætti því í rauninni að vera í sömu sporum og sá launamaður sem hættir fyrirvaralaust í starfi. 

 


Leigja Grímsstaði á Fjöllum?

Vegna fyrirhugaðra kaupa Kínverjans á Grímsstöðum á Fjöllum, hefur verið rætt erlendar fjárfestingar, gagnkvæmni í viðskiptum.

Á milli Íslands og Kína eru engir slíkir samningar til, í það minnsta ekki hvað varðar kaup á landi, að hvað best ég veit.

Í Kína eru lögin hins vegar þannig, að Íslendingur, gætti greitt fyrir afnot af kínversku landi í 70 ár og svo tæki kínverka ríkið það til sín.

 Í Þeirri viðleitni að halda einhverri gagnkvæmni gangandi, mætti bjóða Kínverjanum Grímsstaði til leigu til langs tíma (70 ár) og jafnvel gera enn betur en kínversk stjórnvöld og bjóða upp á framlengingu samningsins að loknum leigutíma, að uppfylltum skilyrðum.

 Í samningnum yrði þó að tryggja að allar þær auðlindir er kynnu að finnast á jörðinni, væru eign Íslendinga og gæti leigutakinn ekki vænst tekna af þeim, nema einhverjar greiðslur, eða afslátt af leigu, fyrir afnot af því landi sem vinnsla auðlindana færi fram á. Enda væri landið innan þess landssvæðis er hann leigir.


mbl.is Óska eftir viðræðum við Huang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama hvaðan ,,gott" kemur hjá Samfó?

Það er óhætt að segja að fjárfestingaráform Kínverjans sem hyggst kaupa Grímsstaði á Fjöllum, hafi vakið viðbrögð meðal þjóðarinnar.  Sitt sýnist hverjum, eins og eðlilegt er. 

Hvað stjórnmálaflokkana varðar, þá er merkjanleg andstaða við áformin í þeim öllum, utan Samfylkingar. Reyndar kemur það ekki á óvart.  Án þess að fara í djúpar rannsóknir á tengslum kínverjans við íslenska aðila, þá enda tengslin inn í Samfylkingunni.

 Mágur utanríkisráðherra, Hjörleifur Sveinbjarnarson stundaði nám í Kína með Kínverjanum, fyrir nokkrum áratugum og hefur síðan haldið tengslum við hann. 

Talsmaður Kínverjans hér á landi, Halldór Jóhannsson er helsti ráðgjafi Össurar Skarphéðinssonar í málefnum Norðurslóða, auk þess sem hann veitti stjórnvöldum ráðgjöf varðandi stórskipahöfn í Gunnólfvík og alþjóðaflugvöll við Þórshöfn á Langanesi.

Hallldór þessi var með einkarétt á Akureyri á sölu miða á leiki er þar fóru fram á HM95 í handbolta.  Klúðraðist það mál gjörsamlega í höndum Halldórs og þurfti Akureyrarbær að reiða fram 14 milljónir, vegna ábyrgðar í málinu. Auk þess sem að Halldór var kærður til RLR, vegna þessa máls.

  Svo má nefna lakkrísverkssmiðjuævintýri í Kína, gjaldþrot nokkurra teiknistofa og Ferðaskrifstofunar Ratvíss, þegar viðskiptaferill Halldórs er tekinn saman, í stuttu máli.

 Svo má nefna að ráðgjafi Kínverjans hér á landi heitir Lúðvík Bergvinsson sem er fyrrv. þingmaður Samfylkingar í Suðurkjördæmi.  Lúðvík starfar nú sem lögfræðingur.

 Það er því nokkuð ljóst að hér er í uppsiglingu enn eitt deilumálið milli stjórnarflokkana í uppsiglingu og eflaust vonlítið fyrir Samfylkingu að fá stuðning stjórnarandstöðunnar í málinu, eins t.d. gert var í tilfelli gagnavers Novators í Keflavík.  Það er einnig ljóst að Samfylkingin lúffar ekki í þessu máli, án láta innan flokksins. 

 Enda er mottóið: ,,Sama hvaðan gott kemur", í hávegum haft hjá Samfylkingunni og gildir þá einu, um hvað sé að ræða.


mbl.is Óeðlilegt að geta keypt stórar jarðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annað en frávísun óhugsandi............

... nema auðvitað að þetta hafi þá ekkert með réttlæti að gera, heldur sé pólitískur farsi. Skrifaður af vinstri flokkunum, með það eitt í huga meiða andstæðinginn á þann hátt sem enginn getur metið  hér og nú, hverju skilar.

Málið var afgreitt á tveimur löggjafarþingum, sem er ekki heimilt samkvæmt þingsköpum.  Úr því að ekki vannst tími til að finna saksóknara á haustþinginu í fyrra, þá féll málið í rauninni um sjálft sig.

Til þess að bæta úr því, hefði þurft að taka málið upp aftur á næsta þingi, greiða atkvæði um ákærur og kjósa saksóknara á því sama þingi.

Málið er því ótækt sem dómsmál, sökum handvammar, þess hluta Alþingis er vildi ákæra. Bæði hvað varðar lög um landsdóm og þingsköp.


mbl.is Alþingi tók ekki viturlega ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ónýtir samningar strax við undirritun.

Miðað við efndir stjórnvalda á stöðugleikasáttmálanum, þá er ekki ofsagt að bjartsýni þeirra er töldu, kjarasamninga þá er skrifað var undir í vor, vísir til betri framtíðar fyrir hinn almenna launamann, óraunhæf og draumkennd.

 Það er alltaf þannig að þegar nýir kjarasamingar, sem innihalda launahækkanir eru gerðir, þá þarf að koma á móti tekjuaukning hjá þeim er greiða launin.  Þar er bæði átt við fyrirtækin í landinu og svo ríkið, sem gerði jú svipaða samninga við sína starfsmenn, líkt og almenni markaðurinn gerði.

Til þess að slíkt gangi eftir, þarf störfum hér á landi að fjölga verulega, fjárfestingar og landsframsleiðsla að aukast svo um munar.

Ekkert af þessu ofantöldu, er á framkvæmdalista núverandi ríkisstjórnar, þó svo að eitthvað sé jú talað um að gera eitt og annað.  

Staðan er hins vegar sú og hefur verið lengi, að tími orða er löngu liðinn og tími framkvæmda og fjárfestinga, löngu genginn í garð.  Heimilin og fyrirtækin í landinu hafa ekkert við orð að gera, þau þurfa auknar tekjur, ekki brotin loforð um mögulega tekju og kaupmáttaraukningu.

Allt ofantalið um tekjuaukningu, fjárfestingar og aukningu landsframleiðslu, er svo lykillinn að því að hér á landi verði lífvænlegt, á komandi árum og áratugum.

 Meðalaldur landsmanna fer hækkandi með ári hverju, sem að þýðir að æ færri skattgreiðendur standa eftir til þess að halda uppi velferðarþjónustunni og öðru sem nauðsynlegt er, svo þjóðfélagið funkeri sem gott er að búa í.

Aukin landsframleiðsla breikkar skattstofna, sem eykur svo tekjur ríkissjóðs, sem og þjóðarinnar. Það er í rauninni forsenda þess að hér verði búandi næstu áratugina.  

Að öðrum kosti er ekkert annað í kortunum, en enn frekari skattahækkanir og niðurskurður í velferðarkerfinu, sem leiðir svo til enn frekari kaupmáttarskerðingar og verri stöðu Ríkissjóðs.

 Það ætti því að vera öllum ljóst, að núverandi ríkisstjórn, er ekki að fara að vinna að þessum hlutum þjóðinni til heilla.  


mbl.is Nánast 100% víst að kaupmáttarforsendan stenst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband