Leita í fréttum mbl.is

Hið ranga tré Össurar & co.

Eftir að hafa siglt ESBumsókninni í strand árið 2011 hófu Össur & co. aftur viðræður við Kína um fríverslunarsamning. En viðræðunum við Kína hafði áður verið sjálfhætt vegna þess að Ísland hóf aðildarferli að ESB.

Össur & co. vita líkt og velflestir aðrir að viðræður um fríverslunarsamning við Japan eru ómögulegar samhliða aðildarviðræðum við ESB. Þeim verði því hætt hefjist aðildarviðræður að nýju.

Engu að síður er það krafa Össurar & co. að aðildarviðræðunum sé haldið áfram.
Tillaga til þingsályktunar um eitthvað sem ekki er hægt samhliða aðildarviðræðum, er því í besta falli skrípaleikur.

Eða er kannski skrípaleikurinn fólginn í kröfunni um áframhaldandi aðildarviðræður, vegna þess að draumurinn um farsæl  lok þeirra viðræðna varð að martröð í mars 2011 þegar að í ljós kom að himinn og haf var á milli Íslands og ESB í sjávarútvegsmálum.

Er krafa Össurar & co. um áframhaldandi aðildarferli kannski byggð á því að betra sé að veifa röngu tré en öngvu?

Eða eru Össur & co. að leggja til að aðildarviðræðum verði endanlega hætt og í garð gangi  tímabil þar sem íslensk stjórnvöld, annað hvort á eigin vegum eða í samstarfi við EFTA leitist við að ná sem flestum fríverslunarsamningum við önnur ríki?


mbl.is Fríverslun við Japan „steinliggur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband