15.9.2013 | 18:28
Um eðli og gagnsemi fjárfestinga.
Í umræðunni um fjárhagsvanda heilbrigðiskerfisins, er gjarnan bent á að stjórnvöld hefðu ekki átt að lækka/breyta veiðigjaldinu. Vegna þess að þá hefðu fallið til fjármunir til lausnar á bráðavanda heilbrigðiskerfisins.
Gott og vel. Ef að lög fyrri stjórnvalda um veiðigjaldið hefðu verið framkvæmanleg, þá hefði þeim að sjálfsögðu ekki verið breytt með þeim hætti og gert var á sumarþinginu.
En þá stæðum við samt sem áður frammi fyrir því, að samkvæmt forgangsröðun fyrri stjórnarflokka, sem settu upphaflega óframkvæmanlegu lögin um veiðigjaldi, þá átti lítið sem ekkert af þeim fjármunum sem óframkvæmanlegu lögin átt að gefa af sér að fara til heilbrigðismála.
Heldur átti langstærsti hlutinn að fara í fjárfestingaráætlun fyrri stjórnvalda, Hús íslenskra fræða, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og fleiri verkefna sem að litlu sem engu leyti snúa að bráðavanda heilbrigðiskerfisins.
Vel má halda því fram að áætluð innkoma í ríkissjóð vegna fjárfestingaáætlunar fyrri stjórnar, hefði getað að stórum hluta runnið til heilbrigðiskerfisins. En sú innkoma var einungis til á Exelskjölum og gersamlega háð því að fjárfestingaráætlunin gengi upp. Sem að alls ekki var víst að gerðist.
Fjárfestingaráætlun stjórnvalda með handvöldum verkefnum er í rauninni ekki sú leið sem vænlegust er til eflingar ríkissjóðs. Þar sem að slík áætlun byggir ekki endilega á þörfum markaðsins og þar af leiðandi kannski ekki vænleg leið til viðunnandi afkomu ríkissjóðs.
Slík leið er því öðru fremur líklegri til þess að reisa minnisvarða um þá stjórnmálamenn eða flokka sem að henni stóðu. Fremur en að auka tekjur ríkissjóðs, svo einhverju nemi.
Áætlun stjórnvalda sem gerir fyrirtækjunum í landinu kleift að fjárfesta, þar sem þau sjálf telja að vænlegast sé að fjárfesta með framtíðarafkomu sína í huga, er mun vænlegri, með framtíðarafkomu ríkissjóðs í huga. Heldur en óskalisti fjárfestingaverkefna sem byggður er á pólitískum rétttrúnaði þeirra sem óskalistann skrifa.
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.