Leita í fréttum mbl.is

Veiðigjaldið hækkað um 40%.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Næstsíðasta málsgreinin er dálítið áhugaverð.

Stjónvöld hafa í þriðjung aldar vanrækt þær skyldur sem vísað er til.

Landsbyggðin hefur goldið þessarar vanrækslu.

Þjóðin hefur goldið hennar með stórlega vannýttum fiskistofnum.

Útgerðum verið úthlutað aflamarki sem miðast hefur við framboðsþol markaðarins í tilliti skortstöðu til að viðhalda veðgildi í lánastofnunum.

Nýliðun hefur orðið afar lítil vegna vannýtingar á nytjastofnum.

Fiskur er að léttast - úrkynjast? vegna ofsetinna fiskimiða sem - eins og að framan er greint - eru vannýtt af þröngum hagsmunum stærri útgerða.

Staðan er skelfileg þegar horft er til hinna þróttmiklu stofna sem bannað er að breyta í verðmæti.

Allt of margir taka til máls um þessi mál sem krefjast nokkurrar sérþekkingar - einvörðungu vegna pólitísks stuðnings við sterkustu hagsmunasamtök lýðveldisins sem mikil líkindi benda til að séu fjárhagslegur bakhjarl rótgróinna og spilltra stjórnmálaafla.

Líklega ljótasta spillingarmál Íslandssögunnar liggur þarna.

Það er slæmt og eiginlega ámælisvert.

Árni Gunnarsson, 22.9.2013 kl. 12:58

2 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Ég get tekið undir flest sem þú skrifar hér að ofan Árni. 

Nýting auðlindarinnar er kannski önnur umræða en gjaldtakan af nýtingu hennar.

 Ég hef t.d. oft velt því fyrir mér, hvort það sé nýtingarstefnunni til góðs, að varla hefur verið hægt að ræða um endurnýjun við stjórnun Hafró. Þó svo að núna sé þriðji forstjórinn þar, síðan ég fór að fylgjast með.

Þeir forstjórar sem tekið hafi við hafa í rauninni verið "aldir upp"  af þeim forstjórum sem þeir tóku við af.  Talað fyrir sjónarmiðum þeirra og varið þau, er þeir voru þeim til aðstoðar.  

Það sé því varla við því að búast að nýjum forstjóra, fylgi ný og byltingarkennd vinnubrögð við veiðiráðgjöf.  Jafnvel þó margir utan Hafró og jafnvel alveg lausir við bein hagsmunatengsl bendi á villur þeirrar stefnu sem þar er rekin.

Það er svo vissulega verðugt og jafnvel nauðsynlegt rannsóknarefni að skoða hvort bein tengsl séu á milli lagasetningar um framsal aflaheimilda og þess að upphaflegur ásetningur með kvótakerfinu hefur gjörsamlega brugðist.

Kristinn Karl Brynjarsson, 22.9.2013 kl. 13:35

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Verst er þó Kr. Karl að ekki skuli vera lagt í fordómalausar umræður um nýtingu sjávarauðlindarinnar. Það er slæmt þegar kynslóðir eftir kynslóðir fæðast inn í pólitískan sannleika um það mál sem þjóðin á svo mikið undir í efnahagslegu tilliti sem raun ber vitni þarna.

Þarna má enginn sannleikur vera algildur því þessi auðlind er síkvik.

Að gera vel reknar útgerðir að blórabögglum er ástæðulaust og óskynsamlegt, og þess vegna þarf að leysa - eða bara höggva - á þá hnúta sem hnýttir hafa verið þarna af þröngsýni og fordómum.

Getur verið að oftrú þekkingarsamfélagsins á sjálft sig sé um að kenna?

Ýmsar opinberar yfirlýsingar Hafró hafa orðið mér efni til efasemda um alræði þeirrar stofnunar.

Árni Gunnarsson, 22.9.2013 kl. 14:00

4 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Enn og aftur verð ég að lýsa mig sammála þér Árni minn.  Að mestu í það minnsta.  Ekki það að það falli mér eitthvað þungt. :)

Sjálfsagt leitum við að því sama.  Þó kannski séum við ekki sammála að öllu leyti um nálgunina.

Kristinn Karl Brynjarsson, 22.9.2013 kl. 14:22

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Um auðlindagjaldið svonefnt vil ég segja að það er að stofni til heimskulegt. Það er líkast því að með gjaldtöku eigi að friða umhvefi útgerðar. Útgerð á að vera fær um að greiða skatta af hagnaði og þau rekstrargjöld sem á annan rekstur eru lögð.

Kannski var þó í lagi að skoða undantekningu við sérstakar aðstæður sem nú. Höfuðmálið er þó skynsamleg nýting auðlindarinnar. 

Árni Gunnarsson, 22.9.2013 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband