Leita í fréttum mbl.is

Tvöfelldni og hræsni þeirra er óttast efnislega niðurstöðu Alþingis.

Tvöfelldni og hræsni  ekki verða  login upp á þá einstaklinga, sem vinna að því að tillaga Bjarna Benediktssonar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrir landsdómi, verði tekin úr efnislegri meðferð í þinginu, að lokinni fyrri umræðu.

  Talar þetta fólk um óeðlileg afskipti af dómsvaldinu og telja að Alþingi eigi ekki að leggja nafn sitt við slíkt. Þau hefðu kannski eitthvað til síns máls, væri svo að Alþingi hefði ekki ákæruvaldið í málinu. 

Hins vegar var það svo, að fyrir tæpum tveimur árum að þetta fólk, lagði þetta fólk til atlögu gegn þrískiptingu valdsins, með því að ætla Alþingi að hafa afskipti af dómsmáli sem var í gangi á þeim tíma. Máli níumenninganna.

Þingsályktunnartillaga sem Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, lagði fram á Alþingi 12. maí 2010 um að skrifstofustjóra þingsins yrði falið að fara þess á leit við ríkissaksóknara að ákæra á hendur svonefndum nímenningum, fyrir að hafa rofið friðhelgi og fundafrið Alþingis í desember 2008, yrði dregin til baka.

Um haustið sama ár lögðu nokkrir þingmenn ennfremur fram þingsályktunartillögu um að Alþingi ályktaði að brot níumenninganna vörðuðu að mati þingsins ekki við 100. grein almennra hegningalaga eins og málið gegn þeim byggði á.

Síðari þingsályktunartillagan var flutt af þingmönnunum Merði Árnasyni, Álfheiði Ingadóttur, Margréti Tryggvadóttur, Birni Val Gíslasyni, Sigmundi Erni Rúnarssyni, Birgittu Jónsdóttur, Lilju Mósesdóttur, Þráni Bertelssyni og Valgerði Bjarnadóttur.

Fyrri þingsályktunartillagan gekk út á það, að Alþingi bæði saksókara um að hætta við saksókn, þó svo að Alþingi færi ekki með ákæruvaldið í málinu.

Seinni þingsályktunartillagan gekk svo út á það, að Alþingi  tæki það að sér að dæma í dómsmáli.

Því verður því ekki neitað að hræsnin og tvöfeldnin virðist vera þessu fólki í blóð borin.

 


mbl.is Töldu afskipti af dómsmáli í lagi 2010
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 1652

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband