2.1.2012 | 22:57
Er ekki stuðningur við sameiningu ráðuneyta velferðarstjórnarinnar?- Eða tal um sameingu bara fyrirsláttur?
Sé einhver flugufótur fyrir þessari frétt, þá er nær öruggt að leiðtogar stjórnarflokkanna, sjá ekki fram á það, að þingmeirihluti sé fyrir fækkun ráðuneyta. Á þó ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur að heita meirihlutastjórn.
Hins vegar kemur það ekki á óvart að einhverjar þreifingar í þessa veru eða aðra. Sé til þess litið, að tillaga Jóhönnu um fækkun ráðherra og sameiningu ráðuneyta hlaut ekki samhljóða stuðning í þingflokkum stjórnarflokkanna. Í þingflokki Samfylkingar voru tveir þingmenn á móti og einn sat hjá. Í þingflokki Vg. létu hins vegar þrír þingmenn sér nægja að sitja hjá við afgreiðslu tillögunnar.
Eins og fólk eflaust man, þá stóð til að stofna nýtt Atvinnuvegaráðuneyti, sem Steingrímur J. færi fyrir, er taka ætti yfir drjúgan hluta verkefna Sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytis ásamt stórum hluta verkefna Iðnaðarráðuneytis. Auk þess átti Atvinnuvegaráðuneytið að taka yfir verkefni Efnahags og viðskiptaráðuneytis. Þau verkefni ráðuneytanna sem ekki yrðu flutt i Atvinnuvegaráðuneytið, yrðu flutt í nýtt Auðlinda og umhverfisráðuneyti Svandísar Svavarsdóttur.
Það segir sig því sjálft, að bæði Sjávarútveg og landbúnaðarráðuneytið ásamt Iðnaðarráðuneytinu myndu heyra sögunni til, við þessar breytingar.
Eftir ríkisráðsfundinn á Gamlársdag, var ekki annað að heyra en að þetta Atvinnuvegaráðuneyti ætti að verða að veruleika auk þess að Oddný G. Harðardóttir yrði bara fjármálaráðherra, fram í ágúst þangað til að Katrín Júlíusdóttur, kæmi úr fæðingarorlofi og tæki við af henni.
Fer það kannski bara svo, þegar Katrín Júlíusdóttir kemur til baka úr fæðingarorlofi, að þessar ráðuneytahrókeringar gangi til baka að hluta? Oddný hætti sem fjármálaráðherra og Steingrímur taki við því embætti og verði áfram sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, en láti verkefni Efnahags og viðskiptaráðuneytis í hendur Katrínar Júlíusdóttur, sem tekur að nýju við embætti iðnaðarráðherra.
Fari svo, er alveg óhætt að spyrja, hvort allt þetta sjónarspil, hafi verið sett upp í þeim eina tilgangi að losna við Árna Pál Árnason og Jón Bjarnason úr ríkisstjórn? En allt tal sameiningu ráðuneyta og eflingu og skerpingu stjórnsýslunnar, verið fyrirsláttur einn
Katrín komi í stað Katrínar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.