21.12.2011 | 21:33
Samstarf stjórnarflokkanna ávísun á stórslys?
Össur veit það ósköp vel, að hann getur ekki talað um Stóra kvótafrumvarpið, líkt og einhver kjáni út í bæ, hafi lagt það fram. Frumvarpið kom inn í þingið sem stjórnarfrumvarp. Frumvarp verður ekki að stjórnarfrumvarpi, nema sátt um það ríki í ríkisstjórn og innan stjórnarflokkanna. Eða alla vega er það, það verklag sem ætlast er til að sé fylgt.
Það er líka ekki eins og að frumvarp þetta hafi, bara sisona allt í einu, fallið af himnum ofan. Sjálfsagt er leitun að öðru frumvarpi, sem ríkisstjórnin hefur lagt fram, sem önnur eins vinna hefur farið í, innan ríkisstjórnar og stjórnarflokka.
Eftir að sáttanefndin lauk störfum haustið 2010, unnu stjórnarflokkarnir heila átta mánuði við samningu á frumvarpinu. Í það minnsta fjórir ráðherrar og fjórir þingmenn úr hvorum stjórnarflokkanna, komu beint að gerð þess, með mismiklum hætti þó.
Það er því öllu nær að kalla samstarf stjórnarflokkanna ,,bílslys" eða þá ,,hópslys".
![]() |
Kvótafrumvarpið eins og bílslys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
reykur
-
baldher
-
benediktae
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
dansige
-
gisliivars
-
fosterinn
-
gauz
-
gp
-
gmaria
-
noldrarinn
-
hallarut
-
halldorjonsson
-
heimirhilmars
-
hlf
-
fun
-
johanneliasson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
kristinnp
-
krist
-
kristjan9
-
wonderwoman
-
ludvikjuliusson
-
magnusthor
-
pallvil
-
rannsoknarskyrslan
-
rosaadalsteinsdottir
-
heidarbaer
-
ziggi
-
saemi7
-
ubk
-
thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Allur stjórnartíminn hefur verið eins og rútuslys, þar sem ráðherrarnir hafa verið við stýrir og þjóðin verið farþegarinir.
Axel Jóhann Axelsson, 21.12.2011 kl. 22:07
Hárrétt athugasemd frá þér, Kristinn Karl, stjórnarfrumvörp eru samþykkt af aðilum ríkisstjórnar. Þar er Össur ekki undanskilinn þó hann láti svo, nú síðast í Kastljósi. Það er með eindæmum hvernig hann getur haft endaskipti á staðreyndum mála. Og það sem verra er, hann kemst æði oft upp með það.
Kristinn D Gissurarson, 21.12.2011 kl. 22:37
Fréttamaður / spyrill, starfi sínu vaxinn, hefði spurt Össur hvort að ekki hafi verið um stjórnarfrumvarp að ræða og hvort slíkt frumvörp nytu ekki stuðnings ríkisstjórnarinnar allrar.
Staðan er bara því miður þannig, að nánast hver einasti fréttamaður/spyrill, lætu það ógert að spyrja gagnrýnna spurninga og þráspyrja þann sem rætt er við. Þeirra hlutverk er miklu fremur, að koma með ,,stikkorð" sem viðfangsefnið (viðmælandinn) getur malað út frá.
Kristinn Karl Brynjarsson, 21.12.2011 kl. 22:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.