Leita í fréttum mbl.is

Hjartsláttur Jóhönnu og sala Skjaldborgarinnar.

Það er engu líkara en þessir flokkar sem standa að hinni norrænu velferðarstjórn, hafi verið í meira sjokki, en vesalings þjóðin sem slysaðist til að kjósa þá til valda. Slíkar eru gjörðir þeirra heimilunum í landinu til handa.

 Þrátt fyrir að hjarta Jóhönnu slægi með heimilunum í landinu og landsfundur Vg. ályktaði á þann hátt að heimilunum hlyti að verða bjargað, varð raunin allt önnur.

Þrátt fyrir að hafa haft öll lánasöfn bankana í sinnu umsjá, þá er engu líkara að ekki hafi hvarflað að þeim að færa t.d. láninn inn í Íbúðalánasjóð, ákveðið hlutfall af hverju einasta láni, eða þá lánin í heild.  Eins einhverjir höfðu þó á þessum tímapunkti talað um.

Þess í stað lá liðið kylliflatt fyrir kröfuhöfum bankanna og barði sér síðan á brjóst fyrir glæsilega niðurstöðu í samningum við þá.  Samningum sem gerðu kröfuhöfunum kleift að kaupa lánasöfnin með miklum afföllum, en rukka heimilin í landinu fyrir á fullu verði.

Í miðri samningalotunni við kröfuhafa bankana fengu svo stjórnvöld í hendur lögfræðiálit er benti á ólögmæti gengistryggðra lána.  Því áliti var stungið ofan í skúffu, en þó ekki fyrr en stjórnvöld sannfærðu kröfuhafana um að yrðu þeir fyrir einhverju tjóni vegna ólöglegra gengistryggðra lána, þá myndu íslenskir skattgreiðendur standa undir tapi kröfuhafana.

 Eftir að hafa selt kröfuhöfum bankana skjaldborgina frægu, er Jóhanna ætlaði að slá um heimilin og fyrirtækin í landinu, settu stjórnvöld gegn betri vitund, upp hvern leikþáttinn á fætur öðrum, um stórfelldar aðgerðir er bjarga áttu heimilunum í landinu. 

 Í þeim leikþáttum öllum átti ,,happy ending" að eiga sér stað á næstu dögum eða eftir helgi.

Í stóra leikritinu, þar sem öllu var til tjaldað, Hagsmunasamtökum heimilina, fjármálastofnunum, lífeyrissjóðum og stjórnvöldum, er höfðu hóp reiknimeistara í sinu vopnabúri, var þó aldrei ætlunin að leiðrétta lánin, svo heitið gæti.

Eftir söluna á Skjaldborginni voru húsnæðislán í öðrum stofnunum en Íbúðalánasjóði og Landsbankanum ekki á hendi stjórnvalda. Af þeirri ástæðu, var ekki hægt að fara dýpra en svo í vandann, að einungis var um almennar aðgerðir að ræða.

 Almennar aðgerðir þýddu í stuttu máli, að ekki yrði gengið lengra til móts við heimilin en verst stadda stofnunin, nærri gjaldþrota  Íbúðalánasjóður gæti.

Það er því nokkuð ljóst, að þó svo að reynt sé að láta nýeinkavæddu bankana líta út sem vondu kallana, varðandi slæma stöðu heimilana í landinu, þá er sú staða, þegar betur er að gáð, að stórum hluta á ábyrgð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur.  Þeirrar Jóhönnu er sagði hjartslátt sinn, vera með heimilunum í landinu.

Eins hlýtur að koma til álita að kanna hvaða stjórnmálaflokki í landinu þingflokkur Vg. tilheyrir.  Enda enginn stjórnmálaflokkur á Íslandi ályktað í námunda við þær hörmungaraðgerðir sem stjórnvöld,  með Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra  í broddi fylkingar, hafa staðið fyrir.


mbl.is Vogunarsjóðir fá heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þegar maður hugsar til baka og sér Steingrím fyrir sér þegar hann var í stjórnaranstöðu og réðist að mönnum og málefnum með stóryrtum skömmum og nánast svívirðingum þegar hann kemst sjálfur í stjórn þá kemur hann manni fyrir sjónir eins og hugleysingi og lítilmenni.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 10.9.2011 kl. 22:23

2 Smámynd: Magnús Ágústsson

Ég man þegar búsáhaldabyltingin stóð sem hæðst að liðsmenn VG gengu um á meðal fólksins til að hvetja þaug til dáða

Ég man líka hvernig þetta sama lið hrokklaðist bakdyramegin inn í alþingi , ekki hefur þetta lið kjark eða þor til að mæta kjósendum sínum núna 

Magnús Ágústsson, 11.9.2011 kl. 05:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 1644

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband