Leita í fréttum mbl.is

Ábyrgð ríkisbankans í meintu samráði.

Landsbankinn fékk Húsasmiðjuna í fangið haustið 2008, eða fljótlega upp úr því, eftir að Húsasmiðjan varð gjaldþrota.  Þegar það gerðist og reyndar einhver ár þar á undan var Landsbankinn viðskiptabanki BYKO.  Reyndar mótmælti BYKO eignarhaldi viðskiptabanka síns á eignarhaldi samkeppnisaðila.  Engu að síður má segja að eignarhald Landsbankans, þó að í gegnum dótturfyrirtæki væri, hafi allt eins fær meinta sakborninga nær hvor öðrum.   Reyndar hlýtur það einnig að vera spurning, hvort að viðskiptabanki Úlfsins, nú Byggingarverslunar Dúdda, hafi ekki einnig verið og sé enn Landsbankinn.

 Þó svo að eignarhaldi Landsbankans á Húsasmiðjunni, hafi verið komið í dótturfélag bankans, Vestia, meðal annars til þess að ,,hindra" bein afskipti bankans, þá er ekki þar með sagt að engin afskipti hafi átt sér stað. Forsvarsmenn Vestia, voru jú einnig starfsmenn Landsbankans. 

 Þó svo að eflaust megi á lagatækniflækjustigi, firra stjórnendur bankans og jafnvel stjórnendur Vestia einnig, saknæmri ábyrgð,  þá er það hins vegar ekki svo að hægt sé að fullyrða að ábyrgð þeirra sé engin. Þessir aðilar ráku jú Húsasmiðjuna er samráðið hófst og gera það reyndar enn í gegnum eignarhlut sinn í Framkvæmdasjóði Íslands.  Enda eignaðist Landsbankinn hlut í framkvæmdasjóðnum sem hluta af kaupverðinu á Vestia. 

 Því fer því víðs fjarri að stjórnendur Landbankans og/eða Vestia geti firrt sig allri ábyrgð og vísað á starfsmenn fyrirtækjana í þessu máli.  Bankinn eða stjórnendur hans, verða í besta falli þá að axla ábyrgð af því að hafa ekki getað annast rekstur Húsasmiðjunnar betur en svo, að þar hafi, eins og flest bendir til verið stunduð brot á samkeppnislögum.


mbl.is Öllum sleppt eftir yfirheyrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 1647

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband