Leita í fréttum mbl.is

Óheppilegt að upp komst, eða...?

Orðhengilsháttur lögspekinga og endurskoðenda í þessu máli er með ólíkindum.  ,, Þar sem ekki er til þess tekið í samningnum, hver megi aka bílnum, þá sé í lagi að dóttir bæjarstjórans noti bílinn til eigin nota."

 Nú er það svo, að ætla má að ráðningarsamningur bæjarstjórans, sé milli hans og bæjarins, vegna þess starfs sem bæjarstjóraembættið tekur til.  Það hlýtur því að liggja nokkuð ljóst fyrir að fríðindi vegna starfs eins og bílahlunnindi, séu starfsins vegna, en ekki fjölskyldu bæjarstjóra vegna.   Dóttirin er 19 ára og því ekki lengur á framfæri og ábyrgð foreldra sinna.   Það hlýtur því að liggja beint við að bærinn rukki dótturna fyrir afnot af bílnum og/eða hún borgi skatt af þeim fríðindum, sem felast í því að hafa bíl til umráða, á kostnað bæjarbúa.

 Formanni bæjarráðs, finnst þetta allt saman óheppilegt, en engan trúnaðarbrest.  Sé þetta ekki trúnaðarbrestur, milli bæjarstjórans og bæjarstjórnarmeirihlutans, þá er dóttir bæjarstjórans á bílnum, með leyfi meirihluta bæjarstjórnar.  Það leiðir því líkur beint að því, að það sem að sé í raun ekki óheppilegt, að dóttirin sé á bílnum á kostnað bæjarbúa, heldur það að upp komst um þetta.


mbl.is Bæjarstjóri gagnrýndur fyrir bílanotkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Sigurgeirsson

Ef við einhvern er að sakast er það meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs, því hann bauð bæjarstjóra þessi launakjör, án þess að taka fram að þetta væri sendibíll bæjarsjóðs, sem bæjarstjóri notar bara vegna embættisins.  Því spyr ég af hverju er bæjarstjórinn látinn borga útsvar og skatt af notkun á bílnum, ef tækið er eingöngu ætlað til notkunar í vinnunni, er næsta skref að skattleggja launþega vegna þess að vinnuveitandi skaffar þeim tölvur eða skóflur, eftir eðli starfans.

Kjartan Sigurgeirsson, 11.2.2011 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband