24.11.2010 | 22:50
Stefnan tekin á Mannréttindadómstól Evrópu.
Hvað sem fólki kann að finnast um málsókn Alþingis á hendur Geirs Haarde fyrrverandi forsætisráðherra og meintar sakargiftir hans, þá getur fólk vart skrifað upp á þá málsmeðferð sem stjórnvöld og stjórnarmeirihlutinn viðhafa í málinu.
Fyrsta klúður í málsmeðferðinni, eftir ákvörðun um ákæru, var kjör saksóknara og varasaksóknara Alþingis. Þar var gróflega farið á svig við lög um landsdóm og jafnvel voru þá lögin brotin. Í lögum um landsdóm segir að Alþingi skuli jafnframt kjósa saksóknara og varasaksóknara. Orðið ,,jafnframt" merkir í þessu sambandi: Að um leið og ákvörðun um ákæru er tekin, þá skuli þessir tveir saksóknarar kosnir af Alþingi, á sama löggjafarþingi og tekur ákvörðun um ákæru. Ekki því næsta, eins og gert var.
Forseti landsdóms, jafnan er forseti Hæstaréttar, lét hjá líða í rúma tvo mánuði að skipa lögmann fyrir Geir, þó svo að lög um landsdóm, segi svo um. Fór þar dómforsetinn undan í flæmingi með aðstoð skrifstofustjóra síns, með orðhengilshætti um það að tæknilega séð, þá væri Geir ekki ákærður, þó ákvörðun um slíkt hafi legið fyrir í rúma tvo mánuði. Forseti landsdóms ákvað svo að brjóta odd af oflæti sínu með því að skipa verjanda fyrir Geir, eftir að hafa ráðfært sig við saksóknara Alþingis (ákærandans). Eins og að saksóknari eigi eitthvað með það segja hvenær einstaklingur með stöðu sakbornings, eigi að fá skipaðan verjanda.
Síðan eru bæði saksóknarinn og dómforsetinn í ráðgjafavinnu fyrir Dómsmála og mannréttindaráðuneytið, vegna lagabreytinga um landsdóm, er fara á í nú tæpum þremur mánuðum, eftir að ákveðið var að ákæra Geir á grundvelli þeirra laga um landsdóm, er þá voru í gildi og það, þrátt fyrir að Alþingi hafi ekki talið ástæðu til lagabreytinga þegar ákveðið var að ákæra.
Ef landsdómur vísar ekki málinu frá vegna hinnar fáheyrðu málsmeðferðar sem þegar er orðin að veruleika, er alveg ljóst að mannréttindadómstóll Evrópu mun dæma Geir í vil og ógilda málið. Það væri mikil skömm fyrir það fólk sem að þessu stendur. Ef það gerist, þá á forseti landsdóms auðvitað ekki annan kost en að segja þegar af sér sem hæstaréttardómari og í raun allir þeir hæstaréttardómarar er skipa munu landsdóm. Eins ættu þessar fíflalegu æfingar vegna málsins að verða í réttarsögu Íslands að dæmi sem kennt væri í skólum öðrum til varnaðar.
Einnig ætti þá dóms og mannréttindaráðherra ( verði hann enn í embætti) ásamt þeim þingmönnum, er styðja þennan fíflagang ráðherrans að hugsa sinn gang, verði farsinn ekki stoppaður af, áður en að Mannréttindadómstóll Evrópu, tekur réttvísi ,, Nýja" Íslands til bæna.
Allt rangt við þetta frumvarp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Rökrétt niðurstaða er að þetta fólk sé að gera þetta svo úr garði að Geir verði örugglega sýknaður sökum formgalla. Órrökrétt niðurstaða er að þetta er fávitar.
Guðmundur Ingi Kristinsson (IP-tala skráð) 24.11.2010 kl. 23:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.