17.11.2010 | 22:38
Er komið að því, eða verður annað málefnaþing í janúar?
Fyrir flokksráðsfund Vg er haldinn verður um næstu helgi liggja fyrir tvær tillögur um ESB.
Önnur er um að aðildarferlinu að ESB verði hætt hið snarasta og umsóknin tekin til baka. Þó virðist vera einhver málamyndun við þá tillögu á þann hátt, að fyrst verði reynt að fá ESB til að ganga í Ísland. Athuga á hvort ESB fallist á það að Íslendingar hafi yfirráð yfir 200 mílna landhelginni, fái að hafa áfram um ókomna tíð, reglur um fjárfestingar útlendinga í sjávarútvegi, fái að vera áfram strandríki, þannig að ESB fari ekki samningsumboð okkar, eins yrði t.d. í deilu líkt og nú er um makrílinn, ef við værum í ESB o.fl.
Hin tillagan frá Steingrími J. & co. gengur út á það, að hafna inngöngu í ESB, en aðlagast samt að ESB. Sú tillaga þýðir það í stuttu máli, að eftir að búið er að eyða tíma starfsmanna stjórnsýslunar og einhverjum milljörðum í karp og aðlöðun að ESB, þá eigi bara að hætta við allt saman.
Ekki ætla ég að dæma um hvort sé vitlausara, málamiðlunin við fyrri tillöguna eða þá seinni tillagan. En ljóst er, að annað hvort gætu orðið stjórnarslit, fljótlega upp úr helgi, eða þá að Vg. staðfesti endanlega að kosningaloforð þeirra fyrir síðustu kosningar, voru bara grín, líkt og ónefndur stjórnmálaflokkur var með í síðustu sveitarstjórnarkosningum.
Nema auðvitað, að nauðsyn verði að ræða málið aðeins betur og enn eitt málefnaþingið verði haldið í janúar 2011 og ákveðið á því að taka afstöðu á landsfundi, er haldinn verður vorið 2011, hvaða afstöðu skuli taka til ESB eða halda enn eitt málefnaþingið í júní byrjun og taka þá ákvörðun eða bíða með hana til flokksráðsfundar haustið 2011 o.s.f.v. .....
VG tekst á um ESB-inngöngu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Líklega kominn tími á þessa ríkisstjórn. VG er ekki stjórntækur flokkur og stóð sig mun betur í stjórnarandtöðu en í stjórn. Kominn tími til að stokka upp á nýtt - það þýðir væntanlega að ESB verður sett á bið og annað hrun á næstu grösum. En það er líklega hvort sem er óumflýjanlegt hvort eð er með VG og menn eins og Ögmund í stjórn.
Einar Solheim, 17.11.2010 kl. 23:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.