Leita í fréttum mbl.is

Fórnarlamb fundið?

Þórunn Sveinbjarnardóttir, leyfir sér þann munað, hvort sem að hún hafi fengið til þess hvatningu, eða ekki,  að vega að æru hæstaréttarlögmanns, úr ræðustóli Alþingis.

 Það liggur ekkert fyrir um það að Þórunn hafi verið viðstödd þá fundi eða að hún hafi hlerað samtöl Láru og Jóhönnu.

Það liggur hins vegar fyrir að Már segist lækka í launum, verði farið að úrskurði Kjaradóms um hans laun.  Það líggur því alveg ljóst fyrir að Már sé í dag á þeim launum sem samið var um er hann var ráðinn til Seðlabankans.

  Áður en lengra er haldið, skal því er haldið til haga að Lára V. er auk þess að vera formaður bankaráðs Seðlabankans, kennari við Lagadeild Háskóla Íslands, Lára er einnig settur saksóknari í sakamáli Alþingis gegn níumenningunum sem gert er að sök að hafa ráðist á Alþingi í "búsáhaldabyltingunni", auk þess sem að hún er trúnaðarvinkona Jóhönnu til margra ára.  

Sé málið skoðað frá því sjónarhorni að aðkoma stjórnvalda hafi verið engin að þessu máli, þá er nauðsynlegt að spyrja nokkra spurninga:

 Hvaða ástæður kann Lára að hafa til þess að hygla Má á þennan hátt, með því að ganga gegn launastefnu stjórnvalda?

 Hvaða ástæður kann Lára að hafa til þess að hafa "logið" því upp á tvo ráðherra ríkisstjórnarinnar, að þeir hafi haft samráð við hana, áður en að tillagan var lögð fram?

 Sé tillagan frá Má komin, má spyrja: Hvaða traust nýtur Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri, hjá stjórnvöldum, hafi hann farið þess á leit við formann bankaráðs Seðlabankans, um að laun sín yrðu hækkuð, eða haldið óbreyttum, frá því sem samið var um, þvert ofan í launastefnu stjórnvalda og úrskurðs Kjaradóms? 


mbl.is Formaður bankaráðs krafinn svara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Það er greinilegt á öllu, að Þórunn er í hefndarhug fyrir missinn á ráðherrastólnum til Svandísar Svavarsdóttur.  Nú lætur hún sverfa til stáls, með því að egna saman vinkonunum Jóhönnu og Láru V.

Úr því sem komið er, verða þær að útkljá þetta mál opinberlega og geta ekki báðar komist óskaddaðar frá málinu. 

Axel Jóhann Axelsson, 7.5.2010 kl. 15:39

2 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Það getur líka ekki verið Láru auðvelt að sinna verkefnum "setts" saksóknara, í dómsmáli, þar sem Alþingi stefnir þeim níu, er sakaðir eru um árás á Alþingi.

Hlýtur að vera erfitt, þar sem að efast er um heilindi hennar úr ræðustól Alþingis.

Kristinn Karl Brynjarsson, 7.5.2010 kl. 16:07

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Það er alveg krystaltært að einhver verður að víkja vegna þessa máls. Tveir armar hafa í raun og veru borið lygar hvor á annan, og það er óviðunandi að allir sitji um kyrrt á stólum sínum og láti eins og það sé eðlilegt ástand. Framferði vinstri manna er fyrir neðan öll velsæmismörk.

Baldur Hermannsson, 7.5.2010 kl. 16:31

4 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Ég var að tala við danska vinkonu mína á msn og sagði henni frá ævintýrum vinstri manna þessa vikuna.

Seðlabanki, gagnaver, handtökur og afneitun forsætisráðherra. Hún spurði hvernig stjórn ég byggist við að tæki við og varð undrandi, svo vægt sé til orða tekið að enginn ráðherra hefði sagt sagt af sér.

Kristinn Karl Brynjarsson, 7.5.2010 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 1652

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband