5.1.2011 | 17:22
Englandsbanki og ,,Mávurinn" í Svörtuloftum.
Haustið 2008, skömmu eftir hrun, átti sér stað símtal milli þeirra Davíðs Oddssonar, þáverandi Seðlabankastjóra og Melvyns Kings, bankastjóra Englandsbanka.
Í því símtali fullyrti Melvyn að Bretar myndu ekki krefjast þess að íslenska ríkið endurgreiddi breska ríkinu það fé sem breska ríkið lagði út vegna innistæðna á Icesave-reikningum Landsbankans, enda lagði breska ríkið það ekki út af greiðasemi við Íslendinga, heldur til að afstýra áhlaupi á breska banka. Fastlega má reikna með því, að sömu ástæður hafi legið að baki því, að Hollendingar gerðu slíkt hið sama, þ.e. lagt út fé hollenskum Icesavereikningshöfum til handa, til þess að afstýra hlaupi á hollenska banka.
Var þetta símtal tekið upp og á upptakan af því að liggja í Seðlabankanum. En þegar Icesave II var í algleymingi og Utanríkismálanefnd Alþingis bað um aðgang af upptökunum, var beiðni um afrit af upptökunni synjað af Má Guðmundssyni, sem þá var orðinn Seðlabankastjóri. Ástæðan sem að Már gaf fyrir synjuninni var sú að hann hefði ekki samþykki Englandsbanka fyrir því að láta af hendi afrit af upptökunni.
Nú er varla hægt að gera ráð fyrir öðru en að Englandsbanki hafi í framhaldinu, verið spurður leyfis vegna upptökunnar. Eina ástæða þess að ekki hafi verið gengið lengra til þess að fá aðgang að upptökunum, eftir synjun Más sé svo raunin, er þá einfaldlega sú að stjórnvöld og aðrir í Bretavinnunni, hafi einsett sér að fá að borga í það minnsta 400 milljörðum meira en Icesave III kveður á um.
Tölur stjórnvalda um eitthvað lægri upphæð en 400 milljarða, standast ekki skoðun, enda varla við því að búast að t.d. gengisþróunin hefði verið okkur í hag, hefðu stjórnvöld borgað nærri 100 milljarða í vexti árið 2010, eins og Icesave II kvað á um.
Hafi Már hins vegar spurt Englandsbanka um leyfi fyrir því að láta af hendi afrit af upptökunni og fengið synjun, þá skuldar Már íslensku þjóðinni skýringu á því, hvers vegna honum hafi verið neitað um birtingu á afritinu.
Kannski hefur bara ástæðan verið sú, eins og Már gaf í skyn er launamál hans voru algleymingi, að manni sem skömmtuð er slík hungurlús, er laun hans eru eða voru í það minnsta þá, sé ekki sýnd virðing í alþjóðlega seðlabankaheiminum. Hann hafi af þeim sökum ekki verið virtur viðlits er hann bar upp erindið við Englandsbanka.
Þetta símtal er nú ekki eins og tveggja manna tal um veðrið eða daginn og veginn, heldur er þetta símtal lykill að vörn, þess hluta íslensku þjóðarinnar, sem aftekur með öllu að gangast við ólögvörðum kröfum Breta og Hollendinga í Icesacedeilunni.
En eins og Bretavinnugengið hefur látið, síðan snemmsumars 2009, er Svavar Gestsson nennti ekki þessu samningakarpi lengur og kom heim með hinn arfaslaka og þjóðhættulega Icesave I samning, þá má vel ímynda sér að sá flokkur manna er telst til áðurnefnds gengis vilji helst að upptaka þessi komi aldrei fram og verði helst eytt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Líklegast markar þessi þingflokksfundur Vinstri grænna varla nein tímamót. Líklegast er áfram verði bara það í boði, sem Vinstri grænir kalla skoðanaskipti.
Þegar fólk hefur svo talað frá sér allt vit og helst talað í marga hringi, verður fallist á vera bara áfram sammála um að vera ósammála.
Ennfremur má reikna með því, að formanni flokksins verði falið það, að taka þau deilumál er um ræðir upp í ríkisstjórninni.
Það verður gert, þrátt fyrir að slíkar æfingar formannsins hingað til, hafi litlu skilað undanfarin tvö ár tæp.
Í þeim málum sem ríkisstjórnarflokkana, eða öllu heldur stefnuskrár flokkana, greinir á um hafa Vinstri grænir oftar en ekki þurft að lúffa og mátt sitja undir hótunum forsætisráðherra um stjórnarslit, eða eitthvað þaðan af verra, verði stefna Samfylkingarinnar ekki ofan á.
Ráðherrar Vg. hafa þó fengið, svona kaup kaups, óopinbert leyfi til að þvælast fyrir allri atvinnuuppbyggingu og verðmætasköpun í landinu.
Það ætti að vera flestum það ljóst, að stjórnarslitahótanir Jóhönnu, bíta vart núna, enda fá önnur stjórnarmynstur möguleg, eins og staðan er í dag. Landsfundarsamþykkt Sjálfstæðisflokksins í evrópumálum og atkvæðahönnun þingmanna Samfylkingar, þegar greidd voru atkvæði um ákærur fyrir landsdómi, eyða möguleika á stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Sjálfstæðisflokkur þyrfti alla flokka nema Samfylkingu, með sér til að mynda meirihlutastjórn og Samfylkingin þyrfti Framsókn og Hreyfingu með sér, til þess að mynda meirihlutastjórn, sem hefði þó ekki nema eins manns meirihluta. Þannig að möguleiki á myndun nýrrar stjórnar, án kosninga er því verulega hverfandi.
Eins myndi þátttaka og eða stuðningur tveggja til þriggja framsóknarmanna við ríkisstjórnina, ekki skila neinu nema fleiri villiköttum í Vg og í raun gera stjórnarsamstarfið, mun þyngra í vöfum en það er í dag.
Það er því nokkuð ljóst, að ekkert annað en kosningar kæmu þá til greina. Þingmenn Vg., hvort sem þeir teljast til villi eða heimiliskatta, hljóta að hugsa með hryllingi til þess, yrðu hér kosningar innan fárra vikna eða mánuða.
Enda hefur flokksforustan, tekið hvert einasta stefnumál sem flokkurinn fékk atkvæði út á síðustu kosningum og grýtt þeim út í hafsauga og mun flokkurinn án efa líða mun verr en skoðanakannanir benda til, fyrir það að líta svo á að stefnuskrá samstarfsflokks í ríkisstjórn, sé stefnu eigin flokks æðri.
Það eru því hverfandi líkur á því að eitthvað stórt uppgjör, verði á þessum þingflokksfundi. Uppgjör innan Vg. mun bíða þess tíma, er forysta flokksins ,,þorir" að boða til landsfundar, eða verður neydd til þess af öðrum ástæðum.
![]() |
Mikill átakafundur hjá VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2010 | 21:27
Áður og núna........
Í lok árs 2007 völdu álitsgjafar Fréttablaðsins og Markaðarins, Icesavereikninga þá er einkabankinn Landsbankinn stofnaði á Englandi, sem viðskipti ársins 2007.
Í lok árs 2010 völdu svo álitsgjafar þessara sömu Baugsmiðla, Icesavesamninga Lee Buccheits, þar sem íslenskir skattgreiðendur þurfa ekki að borga nema 50 milljarða vegna harkalegrar brotlendingar, viðskiptasnilldar ársins 2007.
Í bankahruninu haustið 2008, sagði maður nokkur að, hefðum við bara verið í ESB og með evru þá hefði ekki orðið neitt bankahrun hér. Þessi ágæti maður meinti reyndar það að, þegar að bankarnir hérna féllu líkt og aðrir bankar vítt og breitt um Evrópu og USA, þá hefði vera okkar í ESB (ef við hefðum verið þar) og evra, sniðið okkur stakkinn á þann hátt að við hefðum þurft að fara ,,írsku leiðina". Það þarf ekki að eyða mörgum orðum í það, að annars skelfileg fjárlög okkar fyrir árið 2011, hefðu orðið margfalt verri en þau þó urðu. Nægir þar að nefna írsku fjárlögin fyrir árið 2011.
Vitringurinn úr bankahruninu árið 2008, heitir Össur Skarphéðinsson. Já einmitt þessi sami og er æðsti strumpur í því að koma okkur í ESB og upptöku á evru...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2010 | 08:45
Ekkert ólíklegra en margt annað.
Það er nú í sjálfu sér ekki skrítið að Samfó horfi til Guðmundar Steingríms. Guðmundur var þingmaður Samfó í Kraganum frá 2007 til 2009. Í prófkjöri fyrir þingkosningarnar 2009, var hins vegar meiri eftirspurn í Kraganum, eftir öðrum í Kraganum, en eftir Guðmundi, enda tapaði hann þar fyrir mannvitsbrekkum eins og Árna Páli, Kötu Júl og Þórunni Sveinbjarnar.
Guðmundur ákvað hins vegar að reyna þá fyrir sér í Norðvestur kjördæmi í prófkjöri Framsóknar. Segir sagan, að í kringum það prófkjör, hafi ungir samfóistar í kjördæminu skráð sig í Framsók í löngum bunum, til þess eins að kjósa Guðmund og sagt sig úr flokknum að nýju, að loknu prófkjöri.
Síðan er það vissulega spurning, hverja Samfylkingin nær að draga til sín úr Framsókn auk Guðmundar. Augljósustu kostirnir eru líklegast, Siv Friðleifs og Birkir Jón Jónsson, en líklegast nást ekki fleiri yfir að öllu óbreyttu. Hinir sex sem eftir yrðu þá í þingflokki Framsóknar, eru nær örugglega ekki fáanlegir í lífgunartilraunir á núverandi ríkisstjórn. Fátt mælir þó á móti því að þingflokkur Framsóknar kæmi að því sem ein heild, að mynda nýja ríkisstjórn.
Síðan er það spurningin, hversu vel það fari í þingflokk Vg. og grasrót að Jóni Bjarna verði sparkað úr Landbúnaðar og sjávarútvegsráðuneytinu, þegar nýtt Atvinnuvegaráðuneyti verður til, með vorinu og Guðmundi Steingríms plantað þar inn. Að vísu gæti losnað embætti menntamálaráðherra fyrir Jón, þegar Katrín Jakobsdóttir fer í barneingarleyfi.
En þó ber að huga að því, að verði þetta að veruleiku með Atvinnuvegaráðuneytið, þá verður Katrín Júlíusdóttir, núverandi Iðnaðarráðherra, án ráðherraembættis auk þess sem að Vg. hefðu þá fleiri ráðherra en Samfylking í ríkisstjórn. Eins er allt eins líklegt að nota verði embætti menntamálaráðherra undir Siv eða Birki Jón, til þess að tryggja stuðning þeirra við stjónina.
![]() |
Missa sig í spunanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.12.2010 | 13:58
Stuðningur án sannfæringar, sameiginlegur óvinur ,,límið".
Okkar hjáseta snérist ekki um vantraust á ríkisstjórnina heldur það, að við höfum ekki sannfæringu fyrir þeirri efnahagsstefnu, sem birtist í fjárlagafrumvarpinu."
Svo mælti Lilja Mósesdóttir á Bylgjunni í morgun. Í þessum orðum fellst sú fáranlega staðreynd, að þó svo að hún og fleiri ólátabelgir í þingliði Vinstri grænna, styðji ekki ríkisstjórnina í þeim málum sem helst skipta máli og marka stefnu ríkisstjórnarinnar, þá styðja þau ríkisstjórnina sem slíka.
Í fleiri málum, eins og t.d. í Icesave, hafa ólátabelgirnir sent frá sér svipaðar yfirlýsingar. Verið á öndverðu meiði við ríkisstjórnina, en samt stutt hana. Þrátt fyrir andstöðu sína við Icesave, þá greiddu þó ólátabelgirnir atkvæði á þann hátt, bæði í atkvæðagreiðslunni um samninginn og um tillöguna að bera samninginn undir þjóðina, að ríkisstjórnin héldi meirihluta sínum í báðum málum. Tveir atkvæði með samningi, með vísan í tillöguna um þjóðaratkvæðið, sem borin var upp eftir atkvæðagreiðsluna um samninginn.
Hinir tveir sem voru í ólátaliðinu, þetta sinnið, greiddu hins vegar atkvæði gegn samningi og þjóðaratkvæði. Lögðust þeir þingmenn er greiddu atkvæði gegn samningi og þjóðaratkvæði, svo lágt að þeir ætluðust í raun til þess, að forsetinn tæki af þeim þann kaleik að vísa málinu til þjóðarinnar.
Atkvæði þeirra tveggja með þjóðaratkvæðinu, hefði sent málið til þjóðarinnar, án synjunar forsetans. Hlýtur það að heyra til tíðinda í sögu lýðveldisins, að þingmenn, ætlist til þess að forseti lýðveldisins taki, af þeim þann kaleik, að taka ákvarðanir í stórum málum.
Hvað sem líður svo öllum þessum tillögum sem Lilja segist hafa lagt fram, ,,samherjum" sínum til lítillar gleði, þá er það í raun barnaskapur að halda því fram að tillögunum hafi ekki verið tekið fagnandi, bara af því að hún lagði þær fram.
Flestar tillögur Lilju varðandi skuldavanda heimilana, voru þess eðlis að auðvelt var fyrir lýðinn að flykkjast um þær. Tillögunar voru hins vegar flestar þess eðlis að vera almennar aðgerðir, sem í sjálfu sér leystu vanda fárra, sem í voru og eru í raunverulegum vanda, en firrtu ýmsa þeirri ábyrgð sem þeir höfðu gengist undir, á kostnað þeirra, sem eru í raunverulegum vanda og svo einnig þeirra, er hafa sín mál á hreinu.
Hvað skattlagningu séreignarsparnaðar, var tillagan mjög góð, þar til í ljós kom að þær tekjur sem í Ríkissjóð kæmu við þá breytingu, yrðu ekki notaðar til þess að létta skattaklyfjar einstaklinga og fyrirtækja, heldur til þess að fresta niðurskurði í ríkisbákninu um eitt til tvö ár.
Þó svo að vissulega hefði mátt skera niður á annan hátt, en gert var, þá var niðurskurður engu að síður nauðsynlegur og í raun má segja að hann hafi skollið grimmar á landsmenn, þar sem stórum hluta hans var frestað árið 2009. Það er nefnilega svo, að niðurskurðaraðgerðir sem farið er í, eftir að þeim er frestað um einhvern tíma, verða nær undantekningalaust grimmari, en annars hefði verið, hefði bara verið farið í þær strax í stað frestunar.
Uppúr stendur þó að stuðningur ólátabelgjana við ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, án nokkurrar sannfæringar fyrir þeim stefnumálum, er stjórnin vinnur eftir, hlýtur í besta falli að teljast kjánalegur.
En líklegast heldur þó saman allri kattarhjörðinni, heimilis, hefðar og villköttum, er mynda það gallerý er kallast stjórnarmeirihluti, að kattartegundirnar eiga allar sameinginlegan óvin. Óvin sem ætlað er að jafna um í pólitísku uppgjöri um pólitíska stefnu óvinarins, fyrir dómstólum.
![]() |
Skiptir mál hver lagði tillögurnar fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2010 | 22:34
Oft hefur verið sagt..................
að margur vildi Lilju kveðið hafa. Sumir vilja reyndar meina, nú um stundir, að margur stjórnarliðinn vildi hafa Lilju kvatt.
Telji Lilja það betra að berjast fyrir sínum málum utan Vg., þá verður það líklega ekki, nema hún fái einhvern eða einhverja ólátabelgi með sér úr Vg. Hún fengi litlu áorkað, breytti hún Hreyfingartríóinu í kvartet. Líklegast þyrfti hún að breyta því tríói í sextett, eða þá stofna nýjan þriggja manna, eða stærri þingflokk, ólátabelgjana úr Vg.
![]() |
Lilja lögð í pólitískt einelti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2010 | 21:07
Þingmenn koma hreint fram, t.d. með því að.......
... að greiða atkvæði í samræmi við það sem þeir segja í þingsal, í fjölmiðlum, þingflokksfundum eða þá á nefndarfundum.
Ásmundur Einar Daðason og hin tvö í andófsliði Vg. höfðu öll talað gegn fjárlagafrumvarpinu og því þurfti hjáseta þeirra við afgreiðslu frumvarpsins ekki að koma á óvart. Hvað Lilju Mós varðar, þá sat hún hjá í atkvæðagreiðslunni, við aðra umræðu fjárlagafrumvarpsins. Þar gaf hún upp sínar ástæður fyrir hjásetu sinni og sagðist ekki geta stutt frumvarpið, nema ákveðnir hlutir væru lagaðir. Ljóst má vera að ekki voru þeir hlutir lagaðir, sem Lilja setti sem skilyrð fyrir stuðningi sínum. Einnig má það vera nokkuð ljóst að Atli Gíslason, hefur án efa talað fyrir annars konar fjárlagafrumvarpi, en því sem hann sat hjá við afgreiðslu á.
Ásmundur Einar, talaði gegn fjárlagafrumvarpinu, frá framlagningu þess og talaði fyrir breytingum, sem ekki voru samþykktar. Afstaða Ásmundar, gegn frumvarpinu, var því skýr allan tímann.
Afstaða Ásmundar var meira að segja svo skýr, að ekki þótti þorandi að hann sæti þann fund í Fjárlaganefnd, er afgreiddi fjárlagafrumvarpið, til þriðju umræðu. Vera Ásmundar á fundinu hefði þýtt að ekki hefði verið meirihluti í nefndinni fyrir því að senda frumvarpið til þriðju umræðu, í þeirri mynd sem það var sent. Í stað Ásmundar, var hinn Steingrímsholli Snati, Árni Þór Sigurðsson sendur á fundinn, svo stjórnarflokkarnir, hefðu nægan meirihluta í Fjárlaganefnd, til þess að afgreiða frumvarpið til þriðju umræðu.
Hafi hjáseta þeirra þriggja, komið á óvart, þá eru hinir ca. 30 stjórnarþingmenn heyrnarlausir, eða þá bara að þeir hafi ekki trúað því, að þremenningarnir ætluðu að greiða atkvæði, samkvæmt samvisku sinni, líkt og stjórnarskráin skikkar alþingismenn til að gera.
![]() |
Hissa á ummælunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.12.2010 | 20:58
Villikettir, heimiliskettir og sameiginlegur óvinur þeirra.
Ögmundur hefur lýst því yfir, að þrátt fyrir andstöðu við samninginn, hafi ekki verið hægt að greiða atkvæði á þann hátt, að ríkisstjórnin yrði undir. Með öðrum orðum, þá gátu ekki allir þingmenn Vg. er voru samningnum andvígir, greitt atkvæði gegn samningnum, því þá hefði stjórnin fallið.
Í Icesaveatkvæðinu, greiddu Ásmundur og Guðfríður Lilja atkvæði með samningnum, þrátt fyrir andstöðu sína við samninginn, af því þau töldu að málið ætti að fara til þjóðarinnar og greiddu því atkvæði með tillögu um þjóðaratkvæði, sem borin var upp í kjölfarið á atkvæðagreiðslunni um Icesave. Var ,,lýðræðisástarfrasinn", sem þingmenn Vg. nota gjarnan, til þess að réttlæta fylgni sína við ESB-umsókn andstætt stefnu flokksins, notaður í tilfelli Ásmundar og Guðfríðar Lilju.
Atkvæðatölur við þjóðaratkvæðinu hefðu þá verið, 32 já gegn 31 nei.
Hins vegar náði vilji ríkisstjórnarinnar fram að ganga í báðum atkvæðagreiðslum, 33-30, ríkisstjórn í vil.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2010 | 20:44
Lin dekk og flókin staða.
Samkvæmt frétt á pressan.is , þá voru þeir Róbert Marshall, Samfylkingu og Árni Þór Sigurðsson Vinstri grænum í viðtali í Íslandi í dag, á Stöð 2 í kvöld. Þar bar auðvitað á góma ,,hjáseta" þremmingana í Vg. við afgreiðslu fjárlaga.
Róbert komst svo að orði, að það væri frekar línt í einu af dekkjum ríkisstjórnarinnar, auk þess sem að varla væri hægt að líta lengur á þau þrjú sem hluta stjórnarliðsins á þingi. Árni Þór sagði hins vegar að staðan væri flókin.
Vitað var um leið er fjárlögin voru lögð fram, að ekki væri það sjálfgefið, að þau hefðu þingmeirihluta. Reyndar var það vitað meðal þeirra er unnu að fjárlögunum, að nær ógerlegt yrði við óbreytta ráðherraskipan að koma þeim í gegum þingið. Líklegast var eina vonin sú, að fækka um einn í órólegu deild Vinstri grænna, með því að kippa Ögmundi aftur að ríkisstjórnarborðinu, á kostnað Álfheiðar Ingadóttur.
Reyndar var það nú sú skýring sem Álfheiður gaf fyrir því að hún hefði þurft að víkja fyrir Ögmundi sú, að koma hefði Ögmundi aftur að ríkisstjórnarborðinu, til þess að væntanleg fjárlög yrðu samþykkt í þinginu.
Þó svo að hjáseta þeirra þriggja, veiki vissulega liðsheild stjórnarliðsins, þá er þó enn naumur stjórnarmeirihluti í þinginu og lítil sem engin hætta á því, að þremenningarnir geri eitthvað sem fellt geti stjórnina, í það minnsta ekki viljandi. Enda benda yfirlýsingar þeirra þriggja til þess, að þau muni verja ríkisstjórnina vantrausti, hvað sem á dynji. Það er því líklegra en ekki að einhverjir smáskjálftar eigi sér stað á stjórnarheimilinu, á komandi vikum fremur en stjórnarsamstarfið sem slíkt, verði í einhverri stórhættu.
Þessi flókna staða sem Árni Þór segist sjá í kortunum, hlýtur að vera sú staða sem þremenningarnir eru búnir að koma sér sjálfum í, þ.e. að réttlæta fyrir baklandi sínu, þingi og þjóð, stuðning sinn við ríkisstjórn, en treysta sér þó ekki til að styðja það grundvallarplagg í stefnu stjórnarinnar, sem fjárlögin eru.
Eins gæti þessi flókna staða sem Árni sér í kortunum, stafað af því að kannski er hann farinn að rýna fram í tímann, til þeirrar stundar, er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, einn ólátabelgurinn úr þingliði Vinstri grænna, kemur úr fæðingarorlofi. Hann hlýtur að velta því fyrir sér, hvort Guðfríður, fylgi Ögmundi að málum, eins og hún hefur gert í flestu, hingað til og hætti í andófsliði ólátabelgjana eða ekki.
Einnig gæti Árni verið að líta til þess, að seint í vetur eða næsta vor, mun Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hverfa úr ríkisstjórn og fara í barneignarleyfi.
Þá gæti sú staða komið upp, að þurft gæti að bjóða einhverjum þremenningana embætti Katrínar, til þess að fækka enn í uppreisnarliðinu, eða þá koma Jóni Bjarnasyni þar fyrir, fari svo að áform Samfylkingar um eitt atvinnuvegaráðuneyti, til þess að flýta aðlögunnarferlinu að ESB- aðild, verði að veruleika. Enda myndi það að gera Jón Bjarnason aftur að óbreyttum þingmanni, þýða það, ólátabelgjum í þingliði Vg. myndi bara fjölga.
Hvað sem hverju líður og hverjar hrókeringar verða, að hvort að hrókeringar verði í gangi eður ei, þá mun þó líklegast stjórnin slefa áfram næstu misserin, þó svo það kosti eflaust aukasnúning í spunadeildum stjórnarflokkana og meiri annir hinna svokölluðu ,,óháðu faglegu" álitsgjafa neðan úr Háskóla, við að gefa ,,óháð og fagleg" álit um stöðu mála, lífslíkur ríkisstjórnar og fleira í þeim dúr.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2010 | 13:05
Pólitískt ,,boomerang" Jóhönnu.
Þegar saga Jóhönnu Sigurðardóttur sem ráðherra í gegnum tíðina er skoðuð, þá er alveg óhætt að telja Jóhönnu með pólitískum villiköttum fortíðarinnar, sem að smala þurfti reglulega til fylgis við stefnu þeirrar ríkisstjórnar er hún sat í hverju sinni.
Í Viðeyjarstjórninni, stjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks árin 1991-1995, sem Jóhanna sat í fram á mitt ár 1994, heyrði það að sögn Jóns Baldvins þáverandi formanns Alþýðuflokksins, til haustverkana að kalla Jóhönnu til fylgis við fjárlagafrumvarpið.
,,Það heyrði til haustverkanna að sitja yfir Jóhönnu og fá hana til að vera með. Það var ekki hægt, hún var ekki til viðtals. Jóhanna var þá í því hlutverki sem Lilja Mósesdóttir er í núna og neitaði að taka þátt í niðurskurði á sínum málaflokki." Sagði Jón Baldvin í þættinum á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
,,Villikattareðlið" hafði síður en svo elst af Jóhönnu er hún settist að nýju í stól félagsmálaráðherra árið 2007 í Þingvallastjórn, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
Hófust þá aftur hurðaskellir, frekju og fýluköst á ríkisstjórnarfundum í gamla fangelsinu við Lækjartorg, þegar málefni hennar málaflokks voru rædd og oft fór það nú svo, að látið var undan frekjunni í Jóhönnu og framlög til hennar málaflokks voru hækkuð eitthvað. Enda var eða virtist á þeim ,,borð fyrir báru" til þess að auka útgjöld ríkissjóðs.
Toppinn á,,villikattarferli" Jóhönnu í Þingvallastjórninni, má þó án efa telja þegar hún þremur mánuðum fyrir hrun, afnam eða stórlækkaði stimpilgjöld Íbúðalánasjóðs og rýmkaði mjög svo útlánareglur sjóðsins á þann hátt, að síðustu þrjá mánuðina fyrir hrun voru lán Íbúðalánasjóðs alls ca. 2800 í stað aðeins um 1600 síðustu þrjá mánuði þar á undan.
Þetta ákvað Jóhanna, þrátt fyrir að hafa setið í svokölluðum ríkisfjármálahópi, sem skömmu áður hafði gert samkomulag um aðgerðir við seðlabanka hinna Norðurlandanna, þar sem Íbúðalánasjóði, var meðal annars gert að draga verulega úr lánveitingum. Jóhanna sat auðvitað þann fund er samkomulag þetta var gert, þannig að vissulega var hún alveg með stöðuna á hreinu, eða í það minnsta hefði mátt vera það. Hins vegar hvarf Jóhanna af fundi, áður en til undirritunnar samkomulagsins kom og fól Ingibjörgu Sólrúnu það að skrifa undir í umboði sínu.
Líklegt er að margir þeir sem nú standa í basli með sín Íbúðalanasjóðslán, geti þakkað Jóhönnu pent fyrir það að fá að vera í þeirri stöðu.
,,Villikattareðlið" setti Jóhönnu á þann stall, að hún var sögð heiðarlegasti pólitíkus landsins og var jafnvel kölluð Heilög Jóhanna. Skilaði nafnbótin Jóhönnu á þann stall, að eftir stjórnarslitin í janúar 2009, varð hún forsætisráðherraefni Samfylkingar, þar sem þáverandi formaður flokksins Ingibjörg Sólrún, var á útleið vegna veikinda. Jóhanna varð svo nokkrum vikum síðar formaður Samfylkingarinnar.
Goðsögnin um heiðar og heilagleik Jóhönnu varð svo til þess, að í kosningabaráttunni veturinn 2009, nægði Samfylkingunni, nánast að keyra eingöngu á meintum forystu og leiðtogahæfileikum Jóhönnu, þó svo að ESB-umsóknin hafi einnig verið áberandi í kosningaáróðri flokksins.
Eftir kosningar og myndun fyrstu hreinu vinstri stjórnar lýðveldisins, kom hins vegar í ljós að þó svo að gamlir villikettir gerist hefðarkettir, þá er líklegast til ofmælst, að þeir hafi þroska eða aðra burði, er þurfa til þess að leiða ríkisstjórn. Í það minnsta virðast þeir kettir líkt og allir aðrir er kasta boomerangi, fá það beint í andlitið aftur, standi þeir ekki klárir á að grípa það er kemur til baka.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
reykur
-
baldher
-
benediktae
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
dansige
-
gisliivars
-
fosterinn
-
gauz
-
gp
-
gmaria
-
noldrarinn
-
hallarut
-
halldorjonsson
-
heimirhilmars
-
hlf
-
fun
-
johanneliasson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
kristinnp
-
krist
-
kristjan9
-
wonderwoman
-
ludvikjuliusson
-
magnusthor
-
pallvil
-
rannsoknarskyrslan
-
rosaadalsteinsdottir
-
heidarbaer
-
ziggi
-
saemi7
-
ubk
-
thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar