Bloggfærslur mánaðarins, september 2010
2.9.2010 | 16:14
Breyttar forsendur eða missti órlega deildin exportbaukinn ofan í hugsjónakaffið sitt?
Í gær eða fyrradag, fullyrti Ögmundur Jónasson, meintur leiðtogi órólegu deildar Vinstri hreyfingar græns framboðs, að sér væri óhætt að setjast að nýju í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Icesavedeilan væri komin í ásættanlegan farveg".
Fréttir af samningafundum í deilunni benda hins vegar til þess að ekkert hafi breyst. Enn sé ekkert í boði, en farsæl lausn Félaga Svavars, er hann hespaði af fyrir rúmu ári, svo hann kæmist í sumarfrí á tilsettum tíma. Sama lausn og yfir 90% þeirra er tóku þátt í þjóðaratkvæðisgreiðslu þann 6. mars sl. Það eina sem að kann að hafa breyst, er það að gömlu nýlenduherranir, bjóða nú vaxtaafslátt á ólögvarðar kröfur sínar. Enn mun ríkisábyrgðar vera þörf, þrátt fyrir að slík ríkisábyrgð sé óheimil, samkvæmt regluverki ESB.
Eina breytingin er í raun sú, að nú er íslensku þjóðinni, boðið það að vera lamin í hausinn með naglaspytu með 3ja tommu nagla í, í stað fjögurra tommu nagla.
Séu þetta þessar breyttu forsendur og farvegur sem Ögmundur talaði um, þá eru þær breytingar ekki að sjá varðandi Icesave. Breytingarnar hljóta því að liggja í þverrandi styrkleika, svokallaðs hugsjónakaffis órólegu deildar Vinstri grænna. Er engu líka en að einhver hafi misst export-baukinn ofan í hugsjónakaffið við síðustu uppáhellingu.
Íslendingar greiði vexti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.9.2010 | 15:01
Ráðherrakapall og hugsjónakaffi.
Að loknum "maraþon-fundarsetum" þingflokka stjórnarflokkana og baktjaldamakks forsætis og fjármálaráðherra, hefur kapallinn gengið upp. Svokallaðir "utanþingsráðherrar" og jafnframt vinsælustu ráðherrar ríkisstjórnarinnar látnir fara, ásamt því að Kristján Möller og Álfheiður Ingadóttir, gert að hætta, ráðuneytum fækkað um tvö og meintur "leiðtogi" órólegu deildarinnar, Ögmundur Jónasson tekinn aftur inn í ríkisstjórn, ásamt því að Guðbjartur Hannesson tekur sæti í ríkisstjórn.
Komu Ögmunds og Guðbjarts í ríkisstjórn, fylgja líka þær breytingar að Domsmála og mannréttindaráðuneytið og Samgönguráðuneytið sameinast í Innanríkisráðuneyti, sem Ögmundur sest í. og Félags og trygingamálaráðuneytið, sameinast Heilbirgðisráðuneytinu í nýtt Velferðarráðuneyti, er Guðbjartur mun taka við. Við þá breytingu, flyst Árni Páll Árnason, fyrrv. félagsmálamálaráðherra í sæti Efnahags og viðskiptaráðherra er losnar við brotthvarf Gylfa Magnússonar.
Áframhaldandi vera Árna Páls í ríkisstjórn og flutningur hans yfir í bankamálin, getur vart annað en veikt þá stjórn sem ætlað er að styrkja með þessum breytingum, sé litið yfir feril Árna Páls í Félagsmálaráðuneytinu. Það væri að bera í bakkafullan lækinn að endursegja tilraunir Árna til að troða sínum mönnum í embætti Umboðsmanns skuldara og í embætti framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs. Mun síðuritari þó eflaust minnast á síðarnefnda embættið síðar. Einnig má spyrja sig að því hvaða bógur Árni Páll, er í bankamálum? Árni Páll hefur að eigin sögn í það minnsta verið í stöðugum viðræðum við bankana um leiðréttingu lána, undanfarið ár eða svo. Árangur þess brölts Árna mælist helst í aðgerðum, sem áttu að koma í "næstu viku" og á "næstu dögum", án þess þó að einhvers hafi verið vart, nema þó helst einhverjum smáplástrum á stórt blæðandi svöðusár skuldugra heimila, sem blæða enn sem fyrr. Einnig er það ljóst að flutningur Árna úr Félagsmálaráðuneytinu, tekur frá honum þann kaleik, að skipa Yngva Örn Kristinsson í embætti framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs. Skipun sem að var í raun ákveðin fyrir löngu, en stuðningur stjórna ÍLS við annan umsækjenda, hefur tafið skipun Yngva í embættið. Vera má að, ef Guðbjartur skipar Yngva Örn í embættið, að það öðlist "allt í einu" faglegan blæ, enda Guðbjartur með fortíð í Gamla Landsbankanum, líkt og Yngvi og ætti því að þekkja eitthvað til kauða.
Ögmundur er svo fyrsti dómsmálaráðherrann síðan Óli Guðbjartsson gengdi því embætti skamma hríð, er Borgaraflokkurinn kom inn í síðustu ríkisstjórn Steingríms Hermannsonar, fyrir ca. 20 árum, sem er ekki löglærður. Svo er það hitt ráðuneytið sem Ögmundur tekur við, Samgönguráðuneytið. Samgönguráðuneytið hefur hingað til verið eina ráðuneytið, sem að einhver raunverulegur gangur hefur verið í að skapa framkvæmdir og atvinnu. Ögmundur hefur nú ekki beint verið þekktur af framkvæmdagleði hingað til, öðru nær. Ögmundi hefur verið meinilla við alla uppbyggingu, talað út í eitt um ekki neitt, en haft hendur hvað fastast í skauti og þvælt málum fram og aftur, með þeim árangri að ekkert gerist. Spurning er svo hvort Ögmundur, reyni ekki á einn eða annan hátt að sporna gegn síðustu embættisfærslu Kristjáns í embætti, samgönguráðherra, "flugvallarverkefnið" , svona rétt til að minna Suðurnesjamenn á það að Vinstri grænir, ætla enn sem aldrei fyrr að sporna gegn allri mögulegri atvinnuuppbygginu á því svæði.
Stærstu tíðindin við endurkomu Ögmunds í ríkisstjórnina, hljóta samt að vera sú að hann segir Icesavedeiluna, vera komin í ásættanlegan farveg, hvað sem það nú þýðir. Ekki er að sjá að einbeittur vilji þeirra í Bretavinnunni, að dengja ólögvörðum kröfum Breta og Hollendinga á þjóðina, hafi eitthvað breyst. Þannig að þá hlýtur breytingin að koma frá Bretum og Hollendingum. Eða er svo? Er þetta ekki eitt blaðrið sem úr munni Ögmunds rennur? Er sannlekurinn ekki bara sá að "hugsjónakaffi" órólegu deildarinnar í Vinstri grænum hefur þynnst með degi hverjum og er orðið ekkert annað en exportblandað kaffisull og vart drekkandi? Er hugsjónakaffið orðið það lapþunnt, að stóll fyrir Ömma frænda, nægi til að stinga snuði upp í svokallaða "órólegu deild" Vinstri grænna?
Ósátt við ráðherravalið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 1804
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Erlent
- 281 hjálparstarfsmaður drepinn á árinu
- Sjötti ferðamaðurinn er látinn
- Segjast hafa drepið fimm vígamenn
- Eldflaugavarnarkerfi í skiptum fyrir hermenn
- Segir að friði verði aðeins náð með afli
- Rússar sagðir útvega N-Kóreu milljón olíutunnur
- Pam Bondi næsti dómsmálaráðherra
- Handtekinn fyrir njósnir í bandaríska sendiráðinu
- Hefur áhyggjur af notkun eldflauganna
- Herra Volvo er genginn