Leita í fréttum mbl.is

Furðuræða Ögmundar.

„Magma fór sem sagt á svig við vilja löggjafans en gæti komist upp með undanbrögð í þröngri túlkun á lagabókstafnum og með hliðsjón af formlega skráðum eignatengslum. Með öðrum orðum, formlega séð kunni salan að standast þótt veruleikinn hrópi á allt annað!“

Undirritaður fær nú illa séð, hver andstaða löggjafans, Alþingis hafi verið við málið.  Í nefnd er fjallaði um málið er í sátu fulltrúar flokkanna á þingi, utan Hreyfingarinnar að ég hygg, voru viðskiptin samþykkt af fulltrúum flokka er hafa nærri 3/4 þingsæta.

Hafi leikið vafi á lögmæti ákvörðunarinnar, þá hefði auðvitað átt að fara með málið fyrir dómstóla.  Sú leið var hins vegar ekki farin, heldur var starfshópur settur í málið, að kröfu Vinstri grænna.  Það var þeim hins vegar ljóst frá upphafi, sem á það vildu koma auga, að sá starfshópur gæti aldrei og myndi aldrei, úrskurða um lögmæti viðskiptana.  Eins og ætla mætti að tilgangur starfshópsins, hafi átt að vera.

 Stofnun starfshópsins var í rauninni ekkert annað en ein af fjölmörgum leiksýningum sem stjórnarflokkarnir hafa sett  á svið Skjaldborgarleikhúsinu.  Ein af þessum leiksýningum sem engan annan tilgang hafa, en að halda hinni norrænu velferðarstjórn saman.

Ögmundur lætur þess hins vegar ógetið, að þrátt fyrir að viðskipti þau sem Magma átti með HS-Orku heyrðu undir Viðskiptaráðuneytið, þá má rekja upphaf þess til funda í Iðnaðarráðuneyti Össurar Skarphéðinssonar, þar sem fulltrúum Magma var, af einhverjum ástæðum, ráðlagt frá því að stofna íslenskt félag um kaupin.  Betra væri að notast við sænsku skúffuna.

Yðar einlægur veit svo sem ekki, frekar en aðrir, hvað kann að búa í veruleika Ögmundar.  Enda er það mál varla til, sem að hann hefur ekki stígið í eða úr . 

 Veruleikinn er hins vegar sá, að yfirgnæfandi líkur eru á því að viðskipti Magma hafi verið með lögmætum hætti.   Hvort þau séu siðlaus eða ekki, má svo deila um.

Það liggur hins vegar alveg morgunljóst fyrir, að hvorki Ögmundur né aðrir í þingliði Vinstri grænna, hafa lagt það til marktækum hætti, að þeim lögum sem viðskipti Magma rúmast innan verði breytt.  Enda eru þau lög hluti af EES-samningnum.

Krafa um breytingar á þeim samningi, myndu torvelda enn frekar aðildarferlið að ESB.  Aðildarferli sem Ögmundur er, að eigin sögn, mótfallinn ,,í prinsippinu" þó hann hafi ekki greitt atkvæði gegn því í þinginu þann 16.júlí 2009. 


mbl.is Óheiðarleiki sem ekki fór í dóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hlítur að teljast áfellisdómur yfir alþingi, löggjafarvaldinu sem Ögmundur er hluti af, að geta ekki sett lög sem endurspegla vilja löggjafans. Að lögin skuli segja eitt en dómstólum sé síðan ætlað að hundsa lögin en dæma eftir einhverjum ætluðum vilja löggjafans. Réttarkerfi Ögmundar þar sem lögin hafa enga merkingu því dómurum sé gert að giska á hver vilji alþingis sé eða hafi verið......Eða á það að vera; ...giska á hver vilji Ögmundar sé?

sigkja (IP-tala skráð) 9.9.2012 kl. 17:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1692

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband