24.6.2012 | 23:35
NATO ræðst ekki á Sýrland, nema með samþykki íslensku þjóðarinnar.
Allt frá því að Íraksstríðið hófst, hafa sprottið upp umræður í vandlætingartóni, vegna þess að þeir Halldór og Davíð, lýstu í nafni þjóðarinnar, stuðningi við það stríð með því að setja Ísland á lista hinna viljugu þjóða. Án þess að tala við kóng eða prest, þ.e. að hafa ekki haft samráð við þing eða Utanríkísnefnd þingsins.
Það má svosem alveg gagnrýna þá ákvörðun Halldórs og Davíðs. En hafa ber þó í huga að á þeim tíma var starfhæfur öruggur stjórnarmeirihluti í landinu, annað en nú er og því nokkuð ljóst að þingið hefði gefið grænt ljós á þessa ákvörðun. Auk þess sem að stuðningur þessi, hafði ekkert að gera með það, hvort stríðið yrði háð eða ekki.
Það mun hins vegar, án efa, koma til tals á neyðarfundi NATO á þriðjudaginn, að ráðist skuli á Sýrland, vegna þess að Sýrlendingar skutu niður tyrkneska orustuþotu á dögunum. Enda segir svo í sáttmála NATO, að árás á eitt aðildarríki NATO jafngidli árás á þau öll.
Stuðningur íslenskra stjórnvalda, við þá tillögu mun hins vegar ráða baggamuninn, hvort NATO ráðist á Sýrland eður ei. Enda hafa Íslendingar líkt og aðrar aðildarþjóðir NATO, neitunnarvald innan samtakana. Semsagt ef íslenski fulltrúinn segir nei við tillögunni, þá mun NATO EKKI ráðast á Sýrland. Sama staða var uppi er NATO réðst á Líbýju. Íslensk stjórnvöld höfðu það í rauninni í hendi sér, hvort NATO réðist á Líbýju eða ekki.
Sú ákvörðun var hins vegar tekin án alls samráðs. Meira að segja samstarfsflokkur utanríkisráðherra, Vg. vissi ekki af ákvörðun fastafulltrúans, þó vissulega væri hún afdrifaríkari, en stuðningurinn við Íraksstríðið á sínum tíma. Enda stuðningurinn við Íraksstríðið, miklu fremur ,,móralskur", heldur en hluti af einhverju ákvarðanaferli varðandi það stríð.
Það hlýtur því að vera borðleggjandi, að í ljósi gagnrýni stjórnarflokkanna á ákvörðun fyrri stjórnvalda vegna Íraksstríðsins, að Utanríkismálanefnd þingsins eða jafnvel þingið sjálft verði kallaða saman, til þess að ræða, hvaða ákvörðun skuli taka.
Eða er það bara eðlilegt að Össur taki einn ákvörðun um stuðning við árás á Sýrland, í nafni íslensku þjóðarinnar?
Tyrkland leitar til NATO | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Innlent
- Myndir: Náttúrulegur þröskuldur að taka við
- Aldrei runnið vestar: Um 100 metrar á klukkustund
- Nýr samningur við sjálfstætt starfandi leikskóla
- Yfir 300 stæði fóru undir hraun
- Fullvissa ferðamenn um að hér sé öruggt
- Flogið á milli ljósaskipta
- Beint: Kosningafundur eldri borgara með frambjóðendum
- Tafir á þjónustu vegna ágreiningsmála um þjónustu
Erlent
- Hættir við að reyna að verða ráðherra Trumps
- Segir að Rússar séu að nota Úkraínu sem tilraunasvæði
- Handtökuskipun á hendur Netanjahú og Gallant
- Leitar á ný mið eftir kolranga könnun
- Mun borða nærri 900 milljóna króna banana
- Skutu langdrægri eldflaug í átt að Úkraínu
- Flækingshundar auka áhuga á pýramídum
- Tveir Danir á meðal ferðamanna sem létust
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.