13.6.2012 | 19:15
Er ,,rétt" að fara á svig við lög?
,,Fjármálaráðherra hefur í dag sett á stofn tvö fjármálafyrirtæki sem taka við rekstri Sparisjóðsins í Keflavík, annars vegar, og Byrs sparisjóðs, hins vegar. Er það gert eftir að stjórnir þessara sparisjóða óskuðu eftir því við Fjármálaeftirlitið að það tæki yfir starfsemi sparisjóðanna, í kjölfar þess að samningaviðræður sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði leiddu ekki til niðurstöðu."
Þessi texti, hér að ofan, er úr fréttatilkynningu sem birt var á vef Fjármálaráðuneytisins, þegar Steingrímur ákvað að taka þessa sparisjóði yfir.
Stjórnir sjóðanna gerðu í rauninni það sama og stjórnir bankanna þriggja er féllu í okt 2008 gerðu. Enda bankarnir í raun gjaldþrota, líkt og flest bendir til að sparisjóðirnir hafi í raun verið.
Það er því nokkuð borðleggjandi að setja hefði þessa sparisjóði í slitameðferð. En ekki að hætta skattfé landsmanna í björgunaraðgerðir, sem að mönnum má hafa verið ljóst, að væru vonlitlar.
Til þess að bíta höfuðið af skömminni, ákvað Steingrímur J. Sigfússon hins vegar sjálfur að reka þessa sparisjóði, úr skúffu í Fjármálaráðuneytinu. En ekki fara að lögum um Bankasýslu ríkisins, sem kveða á um að Bankasýsla ríkisins, skuli fara með hluti ríkisins í fjármálastofnunum. Hvort sem það stór eða lítill hlutur.
Þáttur FME þ.e. að hafa í það minnsta í tvígang leyft þessum fyrirtækjum að starfa, þó eiginfjármagn þeirra væri undir lögbundnum mökrum, hlýtur einnig að teljast afar ámælisverður. Enda miðast undanþágur FME, við það að um lífvænleg fyrirtæki sé að ræða.
Það stendur því upp á þáverandi fjármálaráðherra, Steingrím J. Sigfússon og FME, að gera grein fyrr þessum gjörðum sínum, á skýran og hispurslausan hátt og draga ekkert undan.
Rétt ákvörðun hjá Steingrími | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er ekkert í okkar laga og réttarfars strúktúr sem bregðst við og tekur á svona brotum?
Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 13.6.2012 kl. 20:36
Nei líklega ekki Kristján B. Kristinsson. Vinstrimenn eru alltaf stikkfrí og íslenska réttarkerfið ræður ekkert við alvöru fjármála hagfræðinga eins og Steingrím j. Sigfússon .
Við verðum því víst bara að bíða þess að Jóhanna verð sjálfdauð og vona að þá verði eftir nokkrar spýtur til að kveikja eld. Enn hann verðum við víst að kveikja sjálf því ekki gerir stjórnarandstaðan það.
Biðst velvirðingar á afskiptaseminni Kristinn Karl.
Hrólfur Þ Hraundal, 13.6.2012 kl. 22:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.