17.2.2012 | 20:43
Afhverju þurfa sveitarfélögin að leppa Nubo? Afhverju leigir Nubo ekki bara beint af eigendum Grímsstaða?
Sá sem þetta ritar er langt því frá á móti erlendum fjárfestingum. Honum finnst það hins vegar lykilatriði að ekki sé farið á svig við lög og blekkingar stundaðar með kennitöluflakki.
Innanríkisráðherra synjaði Huang Nubo um leyfi til þess að kaupa Grímsstaði á Fjöllum, á þeim forsendum að hann hefði ekki ,,rétta" kennitölu til þess að stunda slík viðskipti hér á landi.
Tillaga sú sem nú er rædd af sveitarfélögum þarna nyðra og fulltrúum Nubos, þess efnis að Nubo láni sveitarfélögunum fyrir kaupverðinu, gegn því að hann fái að leigja landið og sveitarfélögin borgi lánið niður með tekjum af leigunni, er í rauninni ekkert annað en grímulaus leppun og kennitöluflakk.
Auk þess hlýtur að sá grunur að læðast að sæmilega skynsömu fólki, að eitthvað meira hljóti að liggja að baki, en bara hrein og klár viðskipti.
Séu áform Nubos engin önnur en að reka ferðaþjónustu þarna á Grímsstöðum, þá væri jú nærri lagi fréttir bærust af viðræðum hans við eigendur Grímsstaða um leigu á jörðinni. Enda hlýtur sú leiga sem Nubo er tilbúinn að borga, að vera svívirðilega há, úr því að leigutekjurnar sem féllu í skaut sveitarfélaganna keyptu þau Grímsstaði, ættu að duga fyrir afborgunum af láni fyrir kaupverðinu.
Ræða kaup á Grímsstöðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það myndi nú einhver lögspekingurinn, segja að sveitastjórnarlög, hafi aldrei verið ætluð til að fara á svig við önnur lög í landinu.(lög um einarétt á landi).
Sveitastjórnarlög hljóta að taka til, skuldsetningar og fjáfestinga sveitafélaga.
Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 17.2.2012 kl. 20:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.