28.1.2012 | 20:46
Kolröng greining fjármálaráðherra.
,,............atvinnuleysi hafi lækkað um 1 prósentustig og kaupmáttur launa hafi hækkað um 3,7% á einu ári."
Í landi eða í hagkerfi, þar sem minnkandi atvinnuleysi mætti rekja til fjölgunar starfa, þá væru þetta jákvæðar fréttir af efnahagsbata.
Staðreyndin er hins vegar sú, að þrátt fyrir minnkandi atvinnuleysi, þá fer störfum fækkandi. það þýðir einfaldlega bara eitt, að það er brottfall/flótti fólks af vinnumarkaði.
Þau störf sem í boði hafa verið, hafa því verið störf sem losnað hafa, vegna þess að fólk sagt upp starfi hér á Íslandi til þess að freista gæfunar annars staðar, eða þá farið í skóla.
Það þýðir svo, sé þetta tekið aðeins lengra, að færri einstaklingar greiða tekjuskatt og sá skattstofn minnkar, sem og skattstofn neysluskatta, þar sem að því fólki sem greiðir þá skatta, fer fækkandi. Það þýðir svo minni tekjur ríkissjóðs.
Það að ætla sér svo að eigna sér einhver heiður af kaupmáttaraukningu, er í besta falli vafasamt. Nema auðvitað að þau loforð sem ríkisstjórnin gaf og sveik svo um leið, séu einhver afrek, sem hreykja sér ber af.
Ein meginástæða þess að ,,hægt" var að hækka laun jafnmikið og raunin varð, var jú að ríkisstjórnin lofaði ýmsum umbótum, bæði vinnandi fólki og fyrirtækjunum í landinu til hagsbóta. Þau loforð hafa reyndar fæst verið efnd og varla hægt að merkja að til standi að efna þau.
Það er því nokkuð ljóst að við þessar aðstæður, verður mörgum fyrirtækjum það ómögulegt að standa við gerða kjarasamninga nema, með því að draga saman seglin, sem þýðir á mannamáli, að fólki verður sagt upp, vegna þess að störfum fækkar.
Þann stöðugleika, sem verið hefur á vinnumarkaði, þrátt fyrir kreppuástand, er ekki ríkisstjórninni að þakka, sem í tvígang á kjörtímabilinu hefur svikið þá samninga sem hún hefur gert við aðila vinnumarkaðsins.
Það eru því miklu fremur aðilum vinnumarkaðsins sem þakka ber fyrir þann stöðugleika, sem þó er þrátt fyrir allt. Enda hafa þeir aðilar, sýnt af sér ótrúlega þolinmæði gagnvart ríkisstjórninni og svikum hennar.
Þessi þolinmæði, þarf þó kannski ekki að koma neitt á óvart, alla vega hvað annan hluta svokallaðra aðila vinnumarkaðsins varðar, verkalýðshreyfinguna. Enda er verkalýðsforystan, sterkur póstur í baklandi ríkisstjórnarinnar, þvert á hag umbjóðenda sinna.
Merki um batnandi hag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.