31.12.2011 | 12:51
Ráðherrakapall endar í öndunnarvél.
Það er alveg ljóst, að innan beggja stjórnarflokkanna, er bullandi ágreiningur um þær breytingar á ríkisstjórn sem kynntar voru í gær. Sex þingmenn, þrír úr hvorum flokki, greiddu ekki atkvæði með þessum breytingum. Það getur varla talist traustvekjandi, í ljósi þess að stjórnarmeirihlutinn hangir á einu atkvæði, einhvers þeirra sexmenninga, eða þá einhvers annars í stjórnarflokkunum.
Til þess að ráðherrakapallinn gangi upp, þá þarf Alþingi nú á komandi vorþingi, að samþykkja stofnun nýs ráðuneytis, Atvinnuvegaráðuneyti.
Þá mun væntanlega koma í ljós, hvort þessir sex stjórnarþingmenn er ekki styðja breytingarnar á stjórninni, styðji þær í raun og veru. Eða hvort hjáseta þeirra og mótatkvæði, hafi eingöngu verið ætluð til heimabrúks.
Eins kæmi það sterklega til greina, að stjórnarandstaðan komi sér saman um að flytja vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Slíkt væri í rauninni stór greiði við kjósendur í landinu, hvort sem stjórnin lifi slíka vantrauststillögu af eða ekki. Kjósendum yrði í versta falli ljóst, hvaða þingmenn, vilji axla með ríkisstjórninni ábyrgð á helstefnu hennar og hverjir ekki.
Einnig er ekki hægt að sjá annað, lifi ríkisstjórnin veturinn af, að í það minnsta ein ef ekki tvær breytingar verði gerðar á ríkisstjórninni á þessu tæplega eina og hálfu ári sem eftir er af kjörtímabilinu.
Það er nokkuð ljóst að fari svo að aukalandsfundur verði haldinn í Samfylkingunni í vor, að þá veri kosin ný forysta flokksins. Telja má nokkuð ljóst að engin þeirra er nú gegni embætti ráðherra, taki við formennsku í flokknum. Líklegt verður að telja, að Árni Páll hafi með því að hafa í rauninni ,,bjargað flokknum og stjórninni frá háðung á flokkstjórnarfundinum í gærkvöldi, tekið forystu í komandi formannsslag, hafi hann á annað borð áhuga á því að starfa áfram í pólitík.
Árni Páll, eða sá/sú sem verður nýr formaður Samfylkingarinnar, getur varla hugsað sér það, að ganga til kosninga vorið 2013 með óhæfan og vita gagnslausan forsætisráðherra í eftirdragi. Nýr formaður hlýtur því að þýða nýr forsætisráðherra.
Fari hins vegar svo að engar breytingar verði á ríkisstjórninni í kjölfar aukalandsfundarins, þá hljóta þær að verða, þegar Katrín Júlíusdóttir kemur úr fæðingarorlofi sínu í ágúst. Enda varla við því að búast að hæstvirtur ráðherra jafnréttismála, svíki það loforð sitt, er hún gefur óléttri konu.
Varla verður þá ráðherrum fjölgað aftur til þess efna ,,loforðið. Varla verður skipt um fjármálaráðherra ,,korteri fyrir framlagningu fjárlagafrumvarps. Ekki er eins að sjá, að eitthvað verði hróflað við embættum utanríkis og velferðaráðherra, þannig að þá er stóll Jóhönnu einn eftir. Í það minnsta hvað varðar ráðuneyti Samfylkingarmegin.
Við ofantalið bætist svo það við að endurskoðun kvótamála, er enn í algjöru uppnámi innan stjórnarflokkanna, ásamt fleiri málum, eins og stjórnarskrármálinu.
Það eru því engar ýkjur að halda því fram, að lagning ráðherrakapalsins, hafi hlotið frekar snautlegan endi í öndunnarvél.
Ríkisstjórnin og forystan nær fallin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.