25.11.2011 | 21:06
Smásaga af Möllernum og Ömma.
Það þarf svosem ekkert koma á óvart, að Kristjáni Möller sé eitthvað uppsigað við Ögmund, óháð ákvörðun Ögmunds um Grímsstaði og kalli hann óhæfan og þar fram eftir götunum. Enda þarf ekki að líta nema rúmt ár aftur í tímann, til þess að finna atvik, þar sem Ögmundur nánast ,,kýldi Kristján kaldan. Reyndar er það svo að flestar görðir Ögmunds í samgöngumálum, hafa oftar en ekki mætt tortryggni hjá Kristjáni.
Siðsumars 2010 eða um haustið, þá þurfti eftir því sem Álfheiður Ingadóttir sagði, að koma Ögmundi að ríkisstjórnarborðinu, svo Fjárlög 2011 kæmust í gengum þingið.
Við það að koma Ögmundi aftur af ríkistjórnarborðinu og í þeim sameiningum er urðu á ráðuneytum á sama tíma, þurfti Kristján Möller að víkja sem samgönguráðherra. Enda tók nýtt ráðuneyti Ögmunds, Innanríkisráðuneytið við samgöngumálum.
Um það leyti sem Kristján lét af embætti, kom frétt þess efnis, að Jóhanna og Steingrímur hafi fyrir sitt leyti, samþykkt það að svokallað ECA- verkefni ( vona að nafnið sé rétt munað), sem snerist um viðhaldsstöð fyrir vopnlausar herþotur á Keflavíkurflugvelli, yrði sett í gang. En Samgönguráðuneyti Kristjáns hafði haft með málið að gera.
Leit svo út að Kristjáni hafi verið leyft að setja verkefnið í gang, svo hann gæti hætt með einhverri reisn og eitthvað áþreifanlegt stæði eftir hans veru í Samgönguráðuneytinu. Svona til þess að gera honum embættismissinn léttbærari.
Ögmundur lét það verða sitt fyrsta verk sem samgönguráðherra að afturkalla ,,skipun Kristjáns um að setja ECA-verkefnið í gang. Enda var það verkefni hugsað sem einkaframkvæmd og allt sem hefur orðið ,,einka fyrir framan sig, eitur í beinum Ögmunds og flestra Vinstri grænna.
Ögmundur og hans fólk, hafði því ekki bara ráðherraembættið af Kristjáni, með frekju og hótunum um að fella fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, heldur beit Ögmundur endanlega úr skömminni með því að afturkalla skipun/ákvörðun Kristjáns vegna ECA- verkefnisins og þar með þá upphefð að hafa startað því verkefni.
Vantar atvinnuuppbyggingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég spyr... Hvar er þetta ECA verkefni núna og hvar er Magma núna og hve mörg störf hefir það skapað
Valdimar Samúelsson, 25.11.2011 kl. 21:28
Ég er nú líka þakklát Ögmundi fyrir að taka þetta ECA dæmi út af borðinu. Við eigum ekki að gerast erlendar mellur fyrir allskonar fyrirtæki sem aðrir vilja ekki. Við þurfum að fara að líla okkur nær og vinna að því að hafa sem mest út úr okkar eigin afurðum, eins og fiskveiðar til dæmis. Og nota heitt vatn til að byggja stór gróðurhús til grænmetis og ávaxtaræktunar, og minnka þar með innflutning á slíku. Við þurfum að fara að hugsa meira í því sem við getum gert án þess að vera sífellt að reyna að veiða hingað erlenda fjárfesta sem græða á okkar landgæðum, og við sitjum eftir með sárt ennið. Er þetta minnimáttarkenn í okkur eða hvað?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.11.2011 kl. 10:28
Ég er sammála Ásthildur. Hér er bara hugsað um að hafa sem mestan hagvöxt því ekki bara að vinna að innlendum málum s.s. veiða, rækta og selja. Við höfum nóg að gera.
Valdimar Samúelsson, 26.11.2011 kl. 15:07
Já við höfum alveg nóg til að sjá þjóðinni farborða með sóma. það þarf bara verksvit og framsýni. Ekki dagður við erlenda aðila og sitja og bíða eftir að aðrir komi færiandi hendi. Við þorum, gerum og viljujm. Þurfum bara réttu aðilana til að stjórna og framkvæma vilja þjóðarinnar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.11.2011 kl. 15:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.