Leita í fréttum mbl.is

Loksins marklaust þjóðaratkvæði. !!!

Eitt af því sem Jóhanna Sigurðardóttir hefur lofað þjóðinni, er að þjóðin fái að ráða því, hvernig ný stjórnarskrá kemur til með að líta út.  Það loforð Jóhönnu er reyndar á pari við önnur loforð hennar, þ.e. að ekki standi til að standa við  þau, eða það sé ekki mögulegt að standa við þau.

 Jóhanna Sigurðardóttir hefur setið á þingi síðan 1978.  Á þeim tíma hefur hún undirritað drengskaparheit sitt að Stjórnarskrá Íslands, alls tíu sinnum.

Það væri freistandi að álykta að Jóhanna hafi aldrei í þessi tíu skipti lesið þessa stjórnarskrá er hún undirritaði drengskap sinn að. Í það minnsta, ætti sá einstaklingur, er les og skilur núgildandi stjórnarskrá, að átta sig á því, það er Alþingi sem er stjórnarskrár og löggjafinn, en ekki einhverjir verktakahópar sem stjórnvöld ráða til þess að skrifa tillögur að nýrri stjórnarskrá eða að nýjum lögum.

Einnig ætti Jóhanna að vita að þjóðaratkvæðagreiðsla, um tillögur stjórnlagaráðs, er með öllu marklaus og í rauninni ekkert annað en rándýr skrípaleikur.  

Í 48.gr. núgildandi stjórnarskrá stendur: ,,Alþingismenn eru eingöngu bundnir eigin sannfæringu, en ekki boðum kjósenda sinna."   Þetta þýðir m.ö.o. að þjóðaratkvæðið sem slíkt, hefur jafnmikið vægi og gildi og hver önnur Gallup-könnun og er í rauninni marklaust.

Einhverjir muna eflaust orð Jóhönnu vegna þjóðaratkvæðis um Icesave II.  Það þjóðaratkvæði, kallaði hún marklausan skrípaleik, enda lægi nýr og betri samningur á borðinu.  Sá samningur var nú ekki tilbúnari en það, að það liðu átta mánuðir, þangað til hann var undirritaður.  Þeim samningi, Icesave III, felldi þjóðin einnig í þjóðaratkvæði, eins og flestir ættu að muna.

En hvað sem því líður, þá fær Jóhanna loksins marklausa skrípaleikinn sinn.


mbl.is Enn rætt um stjórnlagaráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Ágústsson

Versta er að hún man ekkert kellingin

Magnús Ágústsson, 12.10.2011 kl. 06:04

2 identicon

Ekki gleyma því, að allar skoðanakannanir sem framkvæmdar eru hverju sinni og með neikvæðu áliti á sitjandi ríkisstjórn, (á við allar sem setið hafa) eru marklausar. Munum svo flottustu ummælin "Þið eruð ekki þjóðin". Ein sem var fúl yfir því að vera gagnrýnd.

Sigurður Kristján Hjaltested (IP-tala skráð) 12.10.2011 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 1664

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband