19.6.2011 | 16:17
Nýr marklaus loforðalisti í smíðum hjá ríkisstjórn atvinnusköðunnar og fjárfælingar?!?!
Nánast fullseint í rassinn gripið, að ætla að bjarga einhverju nokkrum tímum, áður en frestur til þess að ákveða hvort nýgerðir kjarasamningar verði til eins árs eða þriggja ára.
Sagan er nú ekki beint hagstæð Jóhönnustjórninni, þegar kemur að efndum loforða. Það er því afar hæpið að eitthvað skothelt liggi eftir þennan fund, nema það sem er áður þekkt, aumingjaskapur og verkleysi klætt í búning pólitískra hugsjóna. Það er því varla við feitum bitum að búast úr hendi innanríkisráðherra.
Það fer hver að verða síðastur að koma hér einhverri verðmætasköpun í gang, svo það verði af einhverrri tekjuhlið að taka við gerð fjárlaga næsta árs.
Vegna samninga við opinbera starfsmenn er það orðið ljóst að gjaldaliðurinn mun hækka verulega. Til að mæta slíku, þarf verulega tekjuaukningu eða niðurskurð með tilheyrandi uppsögnum og lífsgæðarýrnun.
Tekjuaukningin fæst hins vegar með því sem að Jóhönnustjórninni er gersamlega fyrirmunað að skilja eða hvað þá að koma í verk. Að losa um kverkatak skatta á atvinnulífið og að hætta öllum fíflalegum fyrirþvælingi sem gerir ekkert annað en að skaða atvinnulífið enn frekar og fæla allt fjármagn frá landinu.
Það er því ljóst að niðurskurðarhnífunum verður brugðið á loft , sem aldrei fyrr og jafnvel stóru sveðjurnar teknar fram einnig.
Þar sem niðurskurður vegna fjárlaga ársins í ár bitnaði fyrst og fremst á hinum smærri einingum velferðarþjónustunnar á landsbyggðinni, er líklegra en ekki, að megin niðurskurðurinn muni bitna á stærri einingunum í stærri kjörnum landsbyggðarinnar sem og á höfuðborgarsvæðinu, sem ætlað var að taka við þeirri þjónustu er skorin var af smærri einingunum.
Funda um samgöngumálin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ætli fyrstu hugmyndir vinstri "velferðarstjórnarinnar" verði ekki um gífurlegar skattahækkanir í viðbót við allar þær hækkanir sem þegar hafa dunið á bökum almennings og atvinnulífs undanfarin tvö ár.
Þar sem ekki er líklegt að hægt sé að blóðmjólka lýðinn fyrir öllu fjárlagagati næsta árs, mun auknum kostnaði veða velt á sjúklinga, bæði vegna læknisaðstoðar og lyfja, skert verður hjá elli- og örorkulífeyrisþegum og heilbrigðiskerfið skorið niður við trog. Sennilega verður svo "frestað" að hækka persónuafsláttinn um næstu áramót, en lofað hafði verið að vísitölutengja hann aftur, en fyrsta verk velferðarstjórnarinnar var að lækka skattafsláttinn, eins og allir muna væntanlega.
Atvinnuuppbygging verður engin héðan af á þessu ári og ólíklegt að þessi stjórn hætti að flækjast fyrir atvinnulífinu á því næsta.
Axel Jóhann Axelsson, 19.6.2011 kl. 19:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.