16.6.2011 | 13:42
Atvinnusköðun, fjárfæling og kjarasamningar.
Aðilar vinnumarkaðsins eru ekki öfundsverðir að þurfa núna eftir helgi að segja af eða á hvort þeir kjarasamningar sem skrifað var undir um daginn, skuli gilda til næstu þriggja ára eða bara til febrúar nk.
Nánast allan þann tíma sem samningaviðræður aðila vinnumarkaðsins stóðu yfir, var það ljóst að óbreytt atvinnu og fjárfestingarástand , gætu engan vegin réttlætt þriggja ára samning.
Það hefur því verið stjórnvöldum ljóst í hálft ár, hið minnsta, að hér þyrfti verulega að taka til hendinni og skapa hér aðstæður til fjárfestinga og atvinnusköpunnar. Það hefur reyndar verið ljóst í rúm tvö ár að hér á landi hefur vantað ca. 20 þús störf + .
Sé tala atvinnulausra tekin og við hana bætt aukning á umsóknum um skólavist, umfram eðlilegt meðaltal og fluttning fólks erlendis umfram það sem eðlilegt getur talist í eðlilegu árferði, fer talan í eitthvað yfir 20.000.
Það er reyndar alveg rétt að stjórnvöld eiga ekki að beinlínis að standa að atvinnuuppbyggingu og fjárfestingum. Á sama hátt er það einnig alveg rétt að stjórnvöld eiga ekki að leggja íþyngjandi skatta og önnur gjöld á atvinnulífið sem hamlar viðleitni þess, að standa að verðmætaaukningu og fjárfestingum í atvinnulífinu.
Þó svo að virkjun neðri hluta Þjórsár sé vissulega umdeild og ekki til standi að taka efnislega afstöðu til hennar sem slíkrar, þá má benda á að í það minnsta einn stjórnarþingmaður hefur gefið það út, að verði farið í þá virkjun, þá muni þessi sami þingmaður láta af stuðningi við ríkisstjórnina. Það myndi þá væntanlega þýða að stjórnin væri fallin, enda hefur hún bara eins manns meirihluta í þinginu.
Með það í huga, hlýtur hugurinn að reika til þess, hvort að fleiri hugsanleg verkefni sem gætu átt stóran hlut í því að koma atvinnulífinu í gang, sé haldið í gíslingu líkt og virkjun neðri hluta Þjórsár.
Einnig má geta þess að ýmislegt annað hefur verið í umræðunni , sem gæti skapað hér atvinnu.
Fyrir nokkrum dögum var í fréttum að orkurverðlagning á bandvídd á Farice sæstrengnum, fældi hér frá aðila sem annars gætu vel hugsað sér að reisa hér á landi gagnaver.
Fyrir einskæran aulahátt stjórnvalda, eða þá ósamstöðu innan stjórnarflokkanna ,,gleymdist að leggja fram á vorþinginu frumvarp að lögum, sem heimiluðu útboð vegna olíuleitar á Drekasvæðinu.
Einnig hlýtur það að teljast undarlegt í ljósi þess að siglingarleiðin um Norðurskautið gæti opnast fyrr en varir, að ekki sé meiri kraftur í þeirri vinnu að finna hér staði fyrir hentugar úmskipunnarhafnir til Ameríku og Evrópu, ásamt kynningu á því verkefni til þeirra aðila er nýta myndu sér slíkt.
Við þetta bætist svo auðvitað kyrrstaðan á öllu á Suðurnesjum og í Þingeyjarsýlunum, sem að klárlega er í boði núverandi stjórnvalda, ásamt mörgu öðru sem ekki verður tiltekið í þessum pistli.
Frétt á Eyjunni um að málþóf stjórnarandstöðunnar í þinginu um kvótamálin hafi fryst það mál út er einhver aumasta tilraun Samfylkingarmiðils til þess að slá ryki í augu almennings, svo ekki verði eins ljóst almenningi algert getuleysi og aumingjaskapur stjórnvalda, til þess að skapa hér lífvænlegt umhverfi hér á landi. Kvótamálin nutu ekki stuðnings innan stjórnarflokkanna og hefðu því varla verið samþykkt í þinginu, þó ekki hafi verið viðhaft meint málþóf í þinginu vegna kvótans.
Eins og hverjum manni ætti að vera ljóst þá eru nánast engar forsendur fyrir því að nýgerðir kjarasamningar verði látnir gilda í þrjú ár og væri það nánast ábyrgðarleysi af fulltrúum atvinnulífsins að negla samningana niður til svo langs tíma.
Verði fallið frá þriggja ára gildistíma samningana, munu eflaust þær raddir og upphrópanir hljóma hvað hæst að öllu hér sé stefnt í óvissu og bull. Slíkt er hins vegar eingöngu að finna í huga þeirra sem sjá glasið alltaf hálf tómt.
Þeir sem sjá glasið hálf fullt, sjá hins vegar enn eitt tækifærið sem að stjórnvöldum byðist til þess að standa við eitthvað af þessum loforðum sínum, er gefin hafa verið og svikin jafnóðum, allt frá því að fyrsta ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur tók til starfa þann 1. Feb. 2009.
Sé til þess hugsað hvaða vissa fellst í þriggja ára gildistíma, versus meintrar óvissu með því að falla frá slíku, þá er meinta óvissan skárri.
Eina vissan miðað við núverandi aðstæður er að, verðlag mun hækka, vextir hækka, atvinnuleysi aukast og vandi heimila og fyrirtækja aukast enn frekar. Við þær aðstæður myndu svo tekjur ríkissjóðs dragast enn frekar saman, velferðarkerfið halda áfram að lognast útaf sem slíkt og fólksflótti frá landinu enn aukast.
Af tvennu illu, þá er því illskárri kosturinn að að falla frá þriggja ára gildistöku kjarasamninga, í þeirri veiku von að sundurlyndisfjölskyldan í gamla fangelsinu við Lækjartorg, fari að sinna þeim verkum sem hún var kosin til. Annars er það einboðið að hún fari frá völdum og hleypi að fólki, sem hefur þann dug í sér, sem að þarf til þess að skapa lífvænlegar aðstæður hér á landi.
![]() |
Óvissa um fjárfestingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
reykur
-
baldher
-
benediktae
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
dansige
-
gisliivars
-
fosterinn
-
gauz
-
gp
-
gmaria
-
noldrarinn
-
hallarut
-
halldorjonsson
-
heimirhilmars
-
hlf
-
fun
-
johanneliasson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
kristinnp
-
krist
-
kristjan9
-
wonderwoman
-
ludvikjuliusson
-
magnusthor
-
pallvil
-
rannsoknarskyrslan
-
rosaadalsteinsdottir
-
heidarbaer
-
ziggi
-
saemi7
-
ubk
-
thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.