Leita í fréttum mbl.is

Framsalið flækir málið meira en nokkur gat ímyndað sér að það gerði....

 

Það þarf að vinda ofan af bullinu sem að framsalið hefur orsakað. Það eru nokkur atriði sem að menn hafa annað hvort ekki séð fyrir eða ekki viljað sjá fyrir, þegar framsalið var leyft.


1. Það sem þú mátt framselja öðrum (kvóta) það ,,áttu". (eða bátur/útgerð)
2. Það sem þú kaupir (kvóta) , ,,eignastu". (eða bátur/útgerð)
3. Þar sem kvóti skráist sem ,,eign" báts, þá verður báturinn verðmætari. Þar sem ,,eignin" gefur af sér arð. Alltso báturinn hefur ,,rétt" til þess að veiða x mikið og skapa x mikinn arð.
4. Þegar bátur eykur við ,,eign" sína (kvóta), verður báturinn verðmætari, og þar með skapast veðrými á bátinn. Frekari lán tekin með veði í bát, vegna verðmæta sem felast ekki í bátnum sem slíkum, heldur í þeim framtíðartekjum sem báturinn skapar.

Gallinn við þetta allt saman er, að þó svo að fiskurinn í hafinu hér í kring sé þjóðareign, þá er með lögum, búið að gera veiðiréttinn á honum að ,,eign". Það stangast reyndar á úrskurð Mannréttindadómstóls SÞ.


En ætli menn að vinda sér í það að fylgja úrskurði Mannréttindadómstóls SÞ, þá reka þeir sig á eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar.
Löggjafinn (Alþingi) hefur í rauninni, fest sig í þessum vef, einn og óstuddur.


mbl.is Pattstaða í augnablikinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bíddu nú hægur, hvað hafa mannréttindi að gera með kvótann.  Þetta verður þú að fara í nánar, og útskýra hvað þú átt við hérna.  Því mannréttindi hafa lítið með eignir, og eignarétt að gera.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 11:31

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Kvótakerfið er ekki svo slæmt því það má lagfæra og sníða af því agnúa.  En þetta framsal var svo klaufalega framsett að það munn valda deilum og óróa alla tíð þar til það verður lagað þannig að eignarréttar ákvæði þjóðarinnar verði  virt.

 

Hrólfur Þ Hraundal, 2.4.2011 kl. 13:04

3 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Þetta er málið Kristinn. Þarna eru við í sjálfheldu með framsalið og þetta er það sem hópur innan LÍÚ er búinn að vera að plotta frá því 1993. Það kemur fiskveiðistjórnun ekkert við bara að halda þessu í sessi svo hefð komist á þetta fyrirkomulag og þeir geti kallað þetta til sín.

Útaf þeim gífurlegu hagsmunum sem þeir sáu í þessu var allt gert til að brjóta niður öll andmæli við þessu fyrirkomulagi og fengu menn í greininni að fjúka hægri vinstri  ef þeir gagnrýndu kvótakerfið.

Þess vegna er það mín skoðun að skipta beri um fiskveiðistjórnunar kerfi til að klippa á þetta ferli sem annars leiðir til styrjaldar í þjóðfélaginu. Ef farið er í einhver potta og fyrningar áform verður það þvílíkt regluverk að þetta sem við höfum nú verður barnaleikur á móti því sem kæmi með svona hnoði. 

Kvótakerfið er Rússneskt fyrirkomulag sem á ekki erindi inní hagkerfi sem byggir á frelsi einstaklingsins til athafna og markaðs kerfi. Það er alltof þungt í vöfum, byggir ekki upp fiskstofnana og hámarkar ekki afraksturinn. 

Já og er óréttlátt og stenst ekki alþjóðalög um mannréttindi. 

Ólafur Örn Jónsson, 3.4.2011 kl. 00:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 1648

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband