27.3.2011 | 14:00
Verðlaunablaðamaður túlkar jafnréttislöggjöfina, með sínu pólitíska rétttrúnaðarnefi.
Verðlaunablaðamaðurinn Jóhann Hauksson, sá hinn sami og féll á eftirminnilegan hátt í beinni útsendingu sjónvarps í munnlegu prófi í túlkun á stjórnarskrá lyðveldisins. Setur aftur á sig, ,,gleraugu" hins óskeikula lagatúlkanda. Nú er það túlkun á jafnréttislöggjöfinni í tilefni dóms eða úrskurðar, Kærunefndar jafnréttismála, í skrifstofustjóramálinu. Í bloggi Jóhanns á dv.is, stendur meðal annars:
,,Arnar Þór Másson var metinn hæfastur samkvæmt ráðningarferli sem er örugglega nákvæmara og leitar uppi verðleika umsækjenda með kerfisbundnari hætti en þegar geðþóttinn og stjórnmálatengslin réðu ferðinni.
Kærandinn Anna Kristín Ólafsdóttir hafnaði í 5 sæti úrvalshópsins sem eftir var þegar kerfið var búið að sigta 36 keppinauta frá.
Í úrskurði hæstaréttarlögmannanna í kærunefndinni, þeirra, Björns L. Bergssonar, Erlu S. Árnadóttur og Þóreyjar S. Þórðardóttur stendur orðrétt:
Kærandi fékk 32 stig af 40 í fyrra viðtali en sá sem skipaður var í embættið fékk 35 stig. Í seinna viðtalinu fékk kærandi 4,5 stig af 17 en sá sem skipaður var fékk 13 stig af 17.
Og síðar segir:
Þegar höfð er til hliðsjónar sérhæfðari menntun kæranda, fjölþættari reynsla, meðal annars í stjórnsýslustörfum, og það að hlutrænt sýnist hæfni kæranda í þeim hæfnisþáttum sem sérstaklega var óskað eftir vera meiri en þess sem embættið hlaut, verður stigagjöf sem byggist á svo ógagnsærri greiningu sem raun ber hér vitni ekki lögð til grundvallar andstætt lögbundnum grundvelli mats kærunefndar jafnréttismála.
Það sem kærunefndin gerir að athuguðu máli er að umturna matinu sem lagt var til grundvallar. Kærandinn fær aukastig hjá kærunefndinni og kemst upp að hlið Arnars."
Jóhanni tekst, líkt og öllum þeim sem tekið hafa til varnar fyrir forsætisráðherra, að skauta fram hjá því, sem fyrt og fremst á að liggja til grundvallar, samkvæmt lögum,þegar ráðið er í opinberar stöður. (Undirstrikaði textinn hér að ofan)
Umframmælingar, hversu ,,faglegar" sem þær eru og hversu virtur sá aðili sem að þeim stendur er, hafa ekkert lögformlegt gildi. Heldur eru aðeins til hliðsjónar og ættu af þeim sökum, ekki að hafa neitt gildi í endanlegu mati á umsækjendum, sem standa jafnfætis að loknu lögformlega matinu og eru af sitt hvoru kyninu.
Hins vegar gætu þessar umframmælingar, verið fullkomnlega eðlilegar, þegar staða umsækjenda af sama kyni er jöfn eða svipuð, eftir að lögformlegt hæfnismat hefur farið fram.
Það er nánast óhugsandi, í ljósi þeirrar yfirlýsingar forsætisráðherra, að þung áhersla hafi verið lögð á það að fylgja jafnréttislöggjöfinni í einu og öllu í ráðningarferlinu, að ráðherranum og starfliði ráðuneytisins, hafi yfirsést, ómeðvitað, vægi lögbundinna matsskilyrða, umfram vægi ,,faglegra" matsatriða í jafnréttislöggjöfinni.
Í stuttu máli, má því segja að jafnréttisbaráttukonan, Jóhanna Sigurðardóttir og hennar starfsfólk, hafi yfirsést sú augljósa staðreynd að umsækjendurnir, voru ekki af sama kyni.
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.