20.3.2011 | 18:29
Um hvað stendur Lilja Mós vörð?
Lilja Mós er í órólegudeild Vg. Lilja Mós notar Facebooksíðu sína í þeim tilgangi að koma á framfæri skoðunum sínum, sem að er bara gott eitt um að segja. En skoðanir Lilju Mós, eru þó oftar en ekki á skjön við stefnu og gjörðir ríkisstjórnarinnar.
Lilja Mós greiddi atkvæði á móti bæði Icesave II og Icesave III. Lilja Mós greiddi atkvæði gegn þjóðaratkvæði um Icesave II, því að ,,andstöðukvóti" órólegu deildar Vg var uppurinn þegar kom að hennar atkvæði. Lilja Mós sagði já við þjóðaratkvæði um Icesave II, því það var innan ,,kvóta".
Lilja Mós studdi ekki fjárlagafrumvarpið, sat hjá við afgreiðslu þess. Lilja Mós, styður þar af leiðandi ekki efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Lilja Mós myndi samt, þrátt fyrir allt, verja ríkisstjórnina falli.
Er þá nokkuð furða að maður spyrji: ,,Um hvað stendur Lilja Mós vörð"?
Vilja standa vörð um háu launin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Á Fésbók hefur Lilja boðað eignaupptöku sparifjár í bönkunum til þess að fjármagna ríkissjóð. Einhver tiltölulega lág upphæð á að vera friðhelg, samkvæmt boðskap hennar, en síðan gera síðan upptækan stöðugt stærri hluta innistæðnanna, eftir því hvað hver á mikið á reikningi sínum.
Fyrir þetta leyfði ég mér að setja í athugasemdadálk hennar að hún væri að boða sótsvartasta kommúnisma sem um gæti og sennilega hvergi hægt að finna samsvörun, nema ef vera skyldi í Norður-Kóreu.
Fyrir þessi mótmæli mín, sagði að ekki væri hægt að kalla mann eins og mig annað en Vítisengil. Svolítið vafasamt uppnefni, þar sem Vítisenglar eru þekktir fyrir ýmislegt annað en að skipta sér af stjórnmálum.
Hvað um það, hættulegasta glæpahneigðin er sú sem býr innra með fólki sem kemst í áhrifastöðu, t.d. á Alþingi eða í ríkisstjórn.
Axel Jóhann Axelsson, 20.3.2011 kl. 19:17
Þessi vitleysa er bara orðin yfirgengileg. Gjamm á Facebook, kemst kannski í blöðin og kannski nennir einhver að gjamma á móti. Stjórnarflokkarnir tala í sitthvora áttina og allir önnum kafnir við að gera ,,eitthvað", en ekkert gerist...............
Það hefur verið minnihlutastjórn hér á Íslandi síðan 1. feb. 2009.
Kristinn Karl Brynjarsson, 20.3.2011 kl. 20:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.