15.2.2011 | 17:27
Skömmin er þeirra, er ljúga lýðræðisást upp á sjálfa sig !!
Núna þegar þetta blogg er skrifað, eru þær fylkingar á Alþingi, er hvað mest hafa á tyllidögum og við önnur tilefni, flutt ófáar ástarjátningar sínar til lýðræðisins, á hröðum flótta undan þessu sama lýðræði.
Ástæða flóttans er fyrst og fremst sú, að ofangreindir lýðræðiselskendur, geta ekki hugsað það til enda, að lýðurinn fái að ráðaum lyktir Icesavedeilunnar, þó svo að ástarjátningar þeirra til lýðræðisins, kveði einmitt á um slíkt.
Líklegast er asinn slíkur við að afgreiða málið, að um leið og lögin verða samþykkt, fari svo, þá verða þau hraðsend á Bessastaði og ætlast til þess að forsetinn undirriti þau á meðan beðið er.
Þessir lýðræðiselskendur geta þakkað ,,lýðnum" og forsetanum, að tækifæri gafst til þess að bæta þá samningshörmung sem Svavars/Indriða-samningarnir eru. Þó svo að nýju samningarnir séu betri en fyrri samningar, þá er nú varla hægt að ætlast til þess að hægt væri að gera verri samninga, en þeir félagar Svavar og Indriði H. gerðu. Hins vegar er langur vegur frá því að betri samningur sé ásættanlegur.
Allir samningar varðandi Icesave, er innihalda löglausar kröfur Breta og Hollendinga, varðandi ábyrgð skattgreiðenda á Icesavekröfunni, eru óásættanlegir.
Hvorki Alþingi né ríkisstjórn geta þakkað sér fyrir þá bættu samningsstöðu er birtist við synjun forsetans og höfnun þjóðarinnar á Icesave II. Þakkir fyrir slíkt, eiga fyrst og fremst forsetinn, fyrir að hafa vísað málinu til þjóðarinnar og þjóðin fyrir að taka það að sér fyrir stjórnvöld, að standa vörð um íslenska hagsmuni og hafna Icesave II í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Alþingi er því að sýna þjóð sinni og lýðræðinu ,,puttann", ef það ætlar að halda þjóðinni fyrir utan lyktir þessa máls. Slík fyrirlitning Alþingis, eða öllu heldur meirihluta þingsins á þjóð sinni, mun endanlega koma virðingu þjóðarinnar gagnvart Alþingi langt undir frostmark.
Umræða um Icesave hafin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.