24.10.2010 | 22:34
Á meðan bankarnir semja, rukkar ríkið af hörku.
Þeir sem hlustuðu á stefnuræðu forsætisráðherra þann 4. október síðastliðinn, muna eflaust eftir því að hafa heyrt í gegnum nið tunnusláttarins fyrir utan Alþingishúsið, skammir forsætisráðherra bönkunum til handa. Forsætisráðherra skammaði bankana fyrir það að draga lappirnar við lausn á skuldavanda heimilana og sagði þá fyrst og fremst standa í vegi fyrir því, að hin fjölmörgu úrræði ríkisstjórnarinnar til lausnar skuldavanda heimilana hefðu ekki virkað sem skildi.
Bankarnir svöruðu forsætisráðherra fullum hálsi, strax daginn eftir og sögðust hafa getað hjálpað mun fleiri fjölskyldum og einstaklingum í skuldavanda, ef í vegi stæðu ekki hið opinbera og stofnanir þess, eins og Skatturinn LÍN og Íbúðalánasjóður.
Segja má að frétt sú er blogg þetta hangir við, staðfesti orð bankana og bendi á enn eitt bullið og rangfærslunar er koma úr munni, Hinnar Norrænu Velferðarstjórnar, sem að í þessu máli sem og öðrum hefur stöðugt bent á aðra og afsakað aðgerðaleysi sitt, með því allir aðrir en þau sjálf standi í vegi góðra mála.
Þetta mál sem og önnur mál skuldsettra heimila, sem liggja hjá ríkinu og stofnunum þess, gæti ríkisstjórnin leyst á innan við viku, sé til þess nokkur vilji. Það eru jú ráðherrar í öðru ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur, er hafa forræði yfir þeim ríkistofnunum sem í vegi standa. Ekki bankarnir og því síður stjórnarandstaðan. Boltinn er hjá ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og hvergi annars staðar.
![]() |
Gat ekki samið við LÍN |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
reykur
-
baldher
-
benediktae
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
dansige
-
gisliivars
-
fosterinn
-
gauz
-
gp
-
gmaria
-
noldrarinn
-
hallarut
-
halldorjonsson
-
heimirhilmars
-
hlf
-
fun
-
johanneliasson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
kristinnp
-
krist
-
kristjan9
-
wonderwoman
-
ludvikjuliusson
-
magnusthor
-
pallvil
-
rannsoknarskyrslan
-
rosaadalsteinsdottir
-
heidarbaer
-
ziggi
-
saemi7
-
ubk
-
thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er ekki Jóhönnustjórnin einfaldlega að pína okkur í svaðið svo að á endanum virðist það vera bjargráð að hlaupa undir verndarvæng ESB og við munum samþykkja það og Samfylkingin ná markmiði sínu?
Eða kannski er það bara samsæriskenning...
Guðmundur Ásgeirsson, 24.10.2010 kl. 23:09
Ég ætla ekki að skrifa undir þessi orð þín Guðmundur, að svo stöddu. En þetta er sjálfsagt ekkert ólíklegra en margt annað............
Kristinn Karl Brynjarsson, 24.10.2010 kl. 23:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.