4.10.2010 | 18:36
Fleiri þingmenn Vg. á leið í leyfi?
Á pressan.is birtist eftirfandi frétt. Sú frétt kemur í kjölfarið á fréttum af því að Icesavesamningur, eflaust jafnfarsæll og Svavarshörmungin, sé á leið í gegnum bréfalúgu Alþingis, auk frétta um það sem reyndar var ljóst síðan í apríl, hið minnsta, en enginn þorði að hafa orð á. Frétta um að ekki um að ekki verði farið í einhver úrræði vegna skuldavanda heimilana sem að virka og geri þeim eitthvað gagn. En hér kemur fréttin:
"Ríkisstjórnin mun gera allt til þess að sjá til að bankarnir verði ekki fyrir skakkaföllum. Falli gengisdómar bönkunum í óhag mun ríkið láta þá fá meiri pening, segja stjórnvöld í yfirlýsingu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Í skýrslu AGS sem birt var í dag segja stjórnvöld að hveitibrauðsdögum skuldara á Íslandi sé lokið. Aukinnar þátttöku heimila í niðurgreiðslu skulda sé vænst, frystingu skulda sé lokið og nauðungaruppboð séu framundan.
Á sama tíma segjast stjórnvöld ætla að slá skjaldborg um bankana. Í kaflanum um mögulega dóma í tengslum við gengislán segir að ef í ljós komi, fari allt á versta veg fyrir þá, að þeir ráði ekki við stöðuna, þá muni ríkissjóður bjarga fjárhag þeirra með því að auka hlut sinn í þeim og láta þeim í té meira fé.
Endurfjármögnunin mun kosta ríkissjóð og skattgreiðendur verulegar fjárhæðir en það er nokkuð sem þjóðin verður að axla til að tryggja fjárhagslegan stöðugleika.
Segir ríkisstjórn Íslands að tillaga um slíkt verði lögð fyrir Alþingi fyrir 15. október. Þar fái ríkisstjórnin heimild til að setja meira fé í bankana og heimila Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, að endurfjármagna bankana"
Við skulum í þessu tilfelli ekki gleyma tilvist lögfræðiálita þeirra, er lágu fyrir í Seðlabanka og Viðskiptaráðuneyti, en sett voru undi stól sumarið 2009, þegar unnið var að endurskipulagningu bankanna.
Við skulum heldur ekki gleyma, því fálæti sem að kæruliðar í landsdómsmálinu sýndu þeim rökum, að aðgerðir eða öllu heldur aðgerðaleysi núverandi stjórnvalda, vegna gengislánanna og þess dóms, sem vænta mátti vegna þeirra, væru sérsniðin fyrir landsdóm yfir núverandi stjórn.
Eina vonin gæti verið sú að 32 eða fleiri þingmenn greiði atkvæði gegn þessum ósköpum, en þetta mál þarf að fá afgreiðslu í þinginu fyrir 15. október. Við skulum líka fylgjast með hvort fleiri meintir liðsmenn órólegu deildar Vg., fari að dæmi Atla Gíslasonar og taki sér tímabundið leyfi frá þingstörfum, til þess að koma sér hjá því að taka afstöðu til málsins. Hvort fleiri þingmenn Vg. leggi þá kvöð á varamenn sína að samþykkja slíkan þjóðarníð.
Síðast en ekki síst skulum við verða minnug þess hvaða þingmenn muni veita þessari beiðni Steingríms J. í boði AGS brautargengi í þinginu.
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.