Leita í fréttum mbl.is

Hrókeringar í ríkisstjórn, kyrrstöðusamningur Samfylkingar og Vinstri grænna.

Fra því að hin tæra vinstri stjórn norrænnar velferðar, tók til starfa í maí 2009, hefur hvert málið af fætur öðru valdið væringum milli stjórnarflokkana. 

Erfiðleikar við að keyra Icesavemálið í gegn, sem skapast fyrst og fremst af andstöðu órólegu deildar Vg.  Stjórnarflokkarnir hafa þingmeirihluta, þannig að atkvæði stjórnarandstöðunnar, hefðu alla jafna ekki truflað afgreiðslu málsins, hefði þinglið stjórnarinnar staðið þar að baki sem heild.  Einnig er líklegt að forsetinn hefði ekki synjað lögum nr. 1/2010 staðfestingar, hefðu engin andstaða verið við málið í öðrun stjórnarflokknum. 

 ESBumsóknin samþykkt á sínum tíma, eftir hótanir um stjórnarslit og þaðan af verra.  Texti þeirrar tillögu er fól í sér umsóknina og greinagerð með tillögunni, í raun langt frá því ferli sem málið er komið í í dag. Það er  því vissulega umdeilt, hvort ríkisstjórn sé, komin einhverjum skrefum lengra en umboð það sem hún fékk frá Alþingi segir til um.  Stuðningur ýmissa þingmanna Vinstri grænna, við þingsályktunartillögu, þess efnis að umsóknin verði dregin til baka, ýtir undir rök þess efnis að menn séu ekki sammála um það hvort, ríkisstjórnin sé komin umfram umboð sitt vegna ESBumsóknar.

Magmamálið er reyndar rúmlega ársgamalt mál á borðum stjórnarflokkana.   Þingmenn Vinstri grænna kröfðust lagabreytinga, strax fyrir ári síðan.  Því var hafnað af Samfylkingu, sem að tókst að ýta málinu, hægt og hljótt af dagskrá, á meðan Magma lauk ætlunarverki sínu.  Þá rísa Vinstri grænir aftur upp á afturlappirnar og heimta það að orðinn hlutur sé dreginn til baka, annars verði stjórnarslit.  Snuði troðið upp í órólegu deild Vinstri grænna, með stofnun umboðslausar Magmanefndar, sem virðist eiga í mestum erfiðleikum að komast að niðurstöðu, á þann hátt að báðir stjórnarflokkarnir geti verið sáttir.  Enda er nokkuð ljóst, sé miðað við fréttir af tölvupóstssamskiptum ráðherra Samfylkingar, við fulltrúa Magma, að flokkurinn ætli á einn eða annan hátt að keyra málið í gegn, með góðu eða illu.

 Séu orð Álfheiðar Ingadóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra skoðuð, þá var endurkoma Ögmundar Jónassonar í ríkisstjórn, á hennar kostnað, fyrst og fremst til þess fallin að ná sátt meðal stjórnarflokkana um afgreiðslu Fjárlaga fyrir árið 2011.   

Öll þessi mál sem talin eru upp hér að ofan munu koma til umræðu og afgreiðslu í sölum Alþingis á komandi haustþingi.  Ljóst er að flest þessi mál, kæmust vart í þingsali, sem stjórnarmál, þar sem að öllu óbreyttu myndi þingflokkur Vinstri grænna, ekki getað staðið bakvið þau, nema sá hluti hans er kallast órólega deildin í daglegu tali fengi einhverja upphefð eða sporslur.

 Það má því alveg spyrja að því hvort að  sjanghæing Ögmundar í ríkisstjórn, sé hluti kyrrstöðusamnings stjórnarflokkana á milli.  Gegn því að Ögmundi sé úthlutað sæti við ríkisstjórnarborðið, að nýju þá gangi órólega deildin ekki á eftir kröfum sínum í ofangreindum málum.

 Á meðan kyrrstöðusamningur stjórnarflokkana kemst í framkvæmd og verði síðan uppfylltur, liggja fyrirtækin í landinu og heimilin í blóði sínu og bíða örlaga sinna, í veikri  von um viðunnandi stöðu. Von sem dvínar með hverjum deginum sem líður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband