15.5.2010 | 00:56
Skjaldborg um kjaraskerðingu öryrkja og ellilífeyrisþega.
Hin fyrsta "hreina" vinstri stjórn okkar Íslendinga er söm við sig. Enn skal seilst í vasa þeirra sem minnst mega sín.
Ríkisstjórnin þarf að fara að vakna og taka til hendinni og fara að skapa aðstæður til verðmætasköpunnar.
Það bíða ca. tíu erlend fjárfestingarverkefni þess að samþykkt verði frumvarp um almennar ívilnanir vegna erlendra fjárfestinga. Það frumvarp er svipað því því "sérfrumvarpi" sem samið var vegna gagnaversins í Reykjanesbæ.
Staða almenna frumvarpsins er sú að það er fast uppí fjármálaráðuneyti, þar sem Indriði of félagar taka sér góðan tíma, til þess að meta skattaleg áhrif frumvarpsins, þar sem erlendir fjárfestar muni fá einhvern skattaafslátt. Sá skattaafsláttur kemur, þó til baka og rúmlega það, þegar vinnufúsar hendur fá vinnu og fara að þiggja laun, sem borgaður er skattur af í staðin fyrir að þiggja atvinnuleysisbætur. Þau laun munu einnig veita fólki fleiri tækifæri til þess að veita sér eitthvað meira en sára fátækt og þar með munu skatttekjur vegna neysluskatta hækka verulega.
Samfylkingin lætur það yfir sig ganga, svo framarlega að hún fái haldið til streitu "bjölluatinu í Brussel", að Steingrímur og hans menn í Fjármálaráðuneytinu taki allan tímann heiminum til þess að ganga frá (tefja) greinargerð varðandi áðurnefnt frumvarp um erlendar fjárfestingar.
Samfylkingin leggur það semsagt á öryrkja og ellilífeyrisþega, að þeir standi að hluta að gæluverkefni flokksins, sem yfir 70% þjóðarinnar er andvíg, þ.e. umsókn um aðild að ESB. Talið er að umsóknarferlið geti kostað allt að 7 milljörðum, sem er um það bil tvöföld sú upphæð sem Landspítalanum er ætlað að spara í ár.
Samfylkingin, reyndar náði í "undanþágu" fyrir sína menn, Björgólf Thor og Vilhjálm Þorsteinsson, með því að koma í gegn "sérlögum" um erlenda fjárfestingu, "bara" fyrir gagnaverið.
Þess má geta að Vilhjálmur Þorsteinsson er varaþingmaður Samfylkingarinnar og formaður stýrihóps Iðnaðarráðherra um orkunýtingu. Gagnaver, er einmitt einn af þeim hlutum sem að menn ímynda sér vegna orkunýtingar.
Samfylkingin stundar það sem að hún notaði hér áður fyrr skammaryrðið "einkavinavæðing" yfir án þess að blikna. Allt á kostnað þeirra sem minna mega sín.
Velferðarþjónustan skorin niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta eru brjálæðingar, burt með þá !!!!!!
Eyjólfur G Svavarsson, 15.5.2010 kl. 16:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.