Leita í fréttum mbl.is

Frá maí 2007 !!!!! Ert´ ekk' djók' í mér?

Nú hefur Samfylkingin ákveðið að stofna svokallaða umbótanefnd, til þess að þvo af sér "Blairismann".

 Samfylkingunni er það eflaust hollt eins og öðrum flokkum að líta aðeins um öxl og skoða hvað fór aflaga hjá sér.

 En að ætla ekki lengra aftur í tímann en til maí 2007, er bara grín. 
  Samfylkingin, þarf hið minnsta, eigi störf þessarar nefndar að vera eitthvað annað en hvítþvottur, að fara aftur til tímans, er hún kyssti Baug fyrsta kossinn.  Sá koss mun hafa átt sér stað, skömmu eftir "þriggja manna tal" í London, þar sem talan 300 milljónir voru nefnd. 
   Samfylkingunni varð það ljóst eftir nýbyrjað "daður" við Baug, að hún yrði í komandi kosningum árið 2003 að sigra Sjálfstæðisflokkinn og komast til forystu í ríkisstjórn.  Samfylkingin, gerði sér grein fyrir því að hún næði engum árangri með Össur í forystu kosningabaráttunnar og var því Ingibjörg Sólrún, sótt úr stóli Borgarstjóra, til þess að verða "Forsætisráðherraefni" flokksins.

 Kosningar fóru þá eins og þær og fóru, og ekki tókst Samfylkingunni ætlunarverkið með því  að trana fram Ingibjörgu gegn Davíð og hélt því Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram stjórnarsamstarfi að loknum kosningum.

 Hefði Samfylkingunni tekist ætlunarverkið og komist í stjórn með Framsókn, þá má ætla að flest það sem gekk eftir á kjörtímabilinu, eins og innleiðing ESB regluverksins, vegna EESsamningsins, hefði gengið jafn ljúft í gegn og þau gerðu annars á kjörtímabilinu og líklega hefði lánshlutfall Íbúðalánasjóðs og hámarksupphæð húsnæðislána Íbúðalánasjóð, orðið hærra en raunin, varð, enda skammaði Jóhanna Sigurðardóttir, núverandi Forsætisráðherra, Sjálfstæðisflokkinn fyrir að "halda aftur af Framsóknarflokknum við hækkunina. Kárahnjúkavirkjun hefði risið og skattar lækkað, enda lofaði Samfylkingin skattalækkunum í kosningabaráttunni, fyrir Alþingiskosningarnar 2003.  Eina sem hefði farið öðruvísi, er að ekkert fjölmiðlafrumvarp hefði verið lagt fram, en líklega hefði verið sótt um aðild að ESB.

 Samfylkingfylkingin, gleymdi samt ekki nýja vininum, Baugi og þeim tenglsum sem mynduðust við fyrsta kossinn.  Hefur Össur Skarphéðinsson, látið í það skína, að kröftuga andstöðu Samfylkingarinnar gegn Fjölmiðlafrumvarpinu, bæði í þinginu og með þátttöki í þeim hópi sem að þrýsti á Ólaf Ragnar að synja þeim lögum staðfestingar, megi rekja til tengslana við Baug.  Baugur hafði þá nýverið haslað sér völl á fjölmiðlamarkaði, með kaupum á Fréttablaðinu og fleiri blöðum, ásamt Bylgjunni og Stöð2.

 Eins og kemur fram í Skýrslunni, þá dældi, að sögn Sigurjóns fyrrv, bankastjóra Landsbankans, Landsbankinn peningum í Samfylkinguna, á hinar mörgu kennitölur hennar.  
  Á þeim árum var Samfylkingin þátttakandi í meirihluta Borgarstjórnar ásamt VG og Framsókn, en Samfylkingarmaður leiddi Borgarstjórnina. Fyrst var Þórólfur Árnason, Borgarstjóri. Hann var hins vegar látinn hætta, vegna þátttöku sinnar í "Olíuverðssamráðinu" og tók þá Steinunn Valdís við.

 Til þess að auka enn á tengsl bankans við flokkinn, auk styrkjana, "afþakkaði" Ásgeir Friðgeirsson, það þingsæti, sem hann hlaut kosningu í fyrir Samfylkinguna og gerðist talsmaður Björgólfsfeðgana, sem áttu Landsbankann með Magnúsi Þorsteinssyni.
  Á þessum árum voru Björgólfsfeðgar mjög afkasta miklir í fasteigna og lóðabraski í borginni og má ætla að í mörg þeirra verkefni, hafi verið betra að hafa skipulagsyfirvöld og Borgarstjórann með sér í liði.

 Þetta er í grófum dráttum það sem gerðist í sögu Samfylkingarinnar frá árinu 2003 til maí 2007 og finnist Samfylkingunni, það óþarfi að rannsaka þetta tímaskeið í sögu flokksins, þá er þessi umbótanefnd bara "fúsk" og "yfirklór". 
  Samfylkingin hefur meira en það á samviskunni að henni dugi einhver "kattarþvottur á meintum tveggja ára "Blairisma". Meinið er stærra og illvígara, en það dugi, ætli flokkurinn loksins, eftir tíu ára baráttu að teljast trúverðugur stjórnmálaflokkur.


mbl.is Umbótanefnd Samfylkingarinnar tekur til starfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband