30.4.2010 | 14:20
Þráinn skautar yfir upphaf málsins.
Þráinn leyfir sér þarna í ræðustól Alþingis, sem hann hefur skrifað undir drengskaparheit gagnvart, að hlaupa yfir upphaf máls í þeim tilgangi að sverta hlut Alingis, starfsmanna þess og lögreglu.
Það er vissulega rétt að almenningur hefur rétt til setu á þingpöllum og fylgjast þannig með störfum þingsins. En í rétti þessum fellst einnig skylda þeirra sem hann sér nýta að trufla ekki störf þingsins ( eins og þessir mótmælendur svo sannarlega gerðu).
Í dyrum þeim sem gengið er um til þess að komast á þingpalla eru þingverðir sem gæta þess að "óæskilegt" fólk, eins og t.d. ölvað fólk fari ekki á þingpallana. Þessum þingvörðum ber einnig að gæta þess að fólk sem ætlar á þingpalla í öðrum tilgangi en þeim að sitja á þingpöllum og fylgjast með þingstörfum, hafi ekki aðgang að þeim. Það liggur nokkuð ljóst fyrir að þeir þingverðir sem í dyrunum stóðu hafa metið þessa níumenninga sem núna sæta þessum ákærum, verið komnir þangað í þeim tilgangi að trufla störf þingsins.
Það má því alveg sjá það að þingverðirnir hafi verið í fullum rétti að banna ofangreindum einstaklingum aðgang að þingpöllum.
Þessir einstaklingar hlýddu ekki boðum þeirra sem lögum samkvæmt fer með gæslu á þingpöllum og beittu þessa starfsmenn eða í það minnsta einn þeirra ofbeldi og slösuðu hann.
Eftir að hafa hrint þessum starfsmanni þingsins á ofn og þar með slasað hann, þá ruddust þessir aðilar upp á þingpallana og höfðu þar upp hróp í þeim tilgangi að mótmæla og trufla störf þingsins.
Það sést því af þessu ofangreindu að níumenningarnir voru ekki að nýta "lýðræðislegan" rétt sinn, heldur miklu frekar að valda óróa í samfélaginu og að vanvirða Alþingi.
Það má vel vera að almenningsálitið sé ekki með Alþingi og þeim þar starfa, en það réttlætir ekki svona aðgerðir sem eru í raun húsbrot og líkamsárás. Reiði fólks, réttlát sem óréttlát, réttlætir aldrei það ofbeldi sem níumenningarnir sýndu þarna starfsmönnum Alþingis og Alþingi sjálfu.
Það réttlætir ofbeldi ekki heldur að þáverandi þingmaður og núverandi heilbrigðisráðherra,Álfheiður Ingadóttir, hafandi undirritað sams konar drengskaparheit og Þráinn, hafi sagt árásir á Alþingi réttlátar, þar sem þar inni væru eingöngu dauðir hlutir.

![]() |
Réttarhöldin blettur á réttarfarinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
reykur
-
baldher
-
benediktae
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
dansige
-
gisliivars
-
fosterinn
-
gauz
-
gp
-
gmaria
-
noldrarinn
-
hallarut
-
halldorjonsson
-
heimirhilmars
-
hlf
-
fun
-
johanneliasson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
kristinnp
-
krist
-
kristjan9
-
wonderwoman
-
ludvikjuliusson
-
magnusthor
-
pallvil
-
rannsoknarskyrslan
-
rosaadalsteinsdottir
-
heidarbaer
-
ziggi
-
saemi7
-
ubk
-
thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert að búa til frásögn sem engan veginn stenst raunveruleikann. Þingvörðurinn slasaðist ekki þegar þau voru á leið upp á pallana. Þingvörður slasaðist í ryskingum lögreglu við mótmælendur. Nánar tiltekið þegar lögregla hrinti mótmælanda á téðan þingvörð, eins og ku vera hægt að sjá á myndbandsupptökum sem verjendur nímenningina hafa ekki enn fengið að sjá. Er þá sökin mótmælenda frekar en lögreglunnar?
Fyrir utan það er ekki kært fyrir meint ofbeldi, þótt það sé minnst á það í ákæruskjalinu. Það er kært fyrir aðför að sjálfræði Alþingis. Hávaðamótmæli, hvort sem þau fara fram á þingpöllum eða ekki eru ekki atlaga að sjálfræði Alþingis. Stórfelldar mútur til Alþingismanna allra flokka er atlaga að sjálfræði Alþingis.
Nonni, 30.4.2010 kl. 14:30
Heyr heyr Nonni!!! Ég er ein af nímenningunum sem eru ákærðir, var virk í mótmælunum en notaði ALDREI eða beitti ofbeldi á neinn hátt....hef aldrei og mun aldrei gera! En auðvitað hljótum við öll að vera ofbeldislýður fyrir að voga okkur að fara fram á að á okkur sé hlustað, þegar spillinigin tröllríður öllu og slegið er skollaeyrum við kröfum almennings! Hið áheilaga Alþingi, sem á að starfa fyrir fólkið í landinu, má náttúrlega ekki trufla með neinum hætti þá skal kalla það ógn við öryggi og atlögu að sjálfræði Alþinigs ofl í þeim dúr...jafnvel þó að störf þess séu þess valdandi að öryggi alls almennings sé hætta búin af! Eru þá ekki hálf þjóðin sek um hið sama, hafa staðið fyrir utan Alþingi og hrópað og kallað, valdið ófriði og truflað störf Alþingis! Handtaka alla....nema, Guð forði, útrásarvíkana sjálfa og hina raunverulegu glæðamenn!
Heiða (IP-tala skráð) 30.4.2010 kl. 14:45
Ok ég hef þá rangt fyrir mér með það hvernig þingvörðurinn slasaðist.
En eins og sést í upptökum af atvikinu á pöllunum, þá kemur lögreglumaður, hlaupandi á eftir einum þeirra sem kærðir eru, upp á pallana.
Það hlýtur þá að segja okkur það að viðkomandi hafi hlaupið upp á þingpalla í heimildarleysi.
Hvað varðar myndbandabirtingar veit ég ekki en geng út frá því að dómnum verði sýnt þetta myndband, svo hann geti dæmt út frá því.
En því ber samt að halda til haga, að málið væri ekki komið inn í Héraðsdóm, "bara" vegna þess að Alingi og löggunni sé eitthvað persónulega uppsigað við níumenninga, heldur vegna þess að við yfirheyrslur á "gerendum" og "þolendum" málsins, hefur eitthvað komið fram sem kallast gæti lögbrot og því málið sent til saksóknara og þaðan í Héraðsdóm.
Varðandi meintar "mútur" til þingmanna, þá eru þessir styrkir, já þetta hét styrkir fyrir birtingu skýrslunar, alls ekki til þess að bæta ímynd Alþingis og þeim sem stórtækastir í því að þiggja styrki til vansa. En sökum þess að þeir styrkir sem alla vega enn hafa verið upplýstir hafi verið innan ramma þeirra laga sem að giltu þá, þá er vissulega hægt að kalla styrkina "mútur". Slíkt verður samt eðli máls samkvæmt siðferðislegt álit og get ég alveg fallist á siðleysi þess að þiggja háa styrki.
Ég er hins vegar þeirrar skoðunnar að útkoma skýrslunar kalli frekar á nýjar kosningar frekar en afsagnir þingmanna og ráðherra samkvæmt lista einhverra einstaklinga eða stjórnmálaflokka.
Kristinn Karl Brynjarsson, 30.4.2010 kl. 14:58
Búshaldar biltingin skilaði akurat engu, þetta lið eru Baugs áhangendur sem vildu baugsfánan á Alþingishúsið,auðvitað á að refsa þeim.
Sigurbjörg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 30.4.2010 kl. 15:24
Ég er fylgjandi því að útrásarvíkingar og aðrir sem sekir kunna að verða fyrir saknæm athæfi í undanfara hrunsins. En handtökur án fullnægjandi rannsóknar hefðu litlu skilað nema ákærum og væntanlega dómi vegna ólögmætrar handtöku. Núna veit ekki frekar en flestir, hverjir nákvæmlega hafi verið boðaðir til yfirheyrslu hjá Efnahagsbrotadeild lögreglunnar eða Sérstökum saksóknara, en ég reikna með því að allir hafi mætt sem boðaðir hafa verið til yfirheyrslu, því annars hefðu þeir verið handteknir.
Það hefði enginn dómari fallist á gæsluvarðhald yfir þeim útrásarvíkingum, sem um ræðir nema fyrir lægi fyrir hvaða brot væri til rannsóknar.
Það er eina von þess að þessir útrásarvíkingar fái þann dóm sem að þeim ber, byggist á því að rannsóknin á meintum "afbrotum" þeirra sé vel unnin. Það má svo endalaust deila um það hversu langan tíma það tekur að rannsaka þessi mál og hvort að forgangur þeirra í kerfinu sé nægur.
Það hefur ekki verið saksóknar til bóta fyrr eða síðar að flytja vanreifuð mál fyrir dómstólum.
En að þessu ofansögðu, þá finnst mér frekar stjórnvöld og bankar vera of góð þessum útrásarvíkingum. Og má eflaust kalla sumar aðgerðir stjórnvalda í þeirra garð "einkavinavæðingu".
Kristinn Karl Brynjarsson, 30.4.2010 kl. 15:27
Lögin í landinu ber að virða, það hefur enginn maður rétt til að níðast á þeim þótt hann sé í fúlu skapi. Þetta ofbeldisfólk verður að draga fyrir dóm og láta það sæta réttlátri refsingu. Það er heldur ekkert nýtt að sakamenn telji sig hafa ærna ástæðu til þess að fremja glæpi sína og stundum taka dómarar mark á slíku. Ég man eftir konu í Breiðholti fyrir nokkrum árum sem hellti olíu yfir eiginmann sinn sofandi, kveikti í honum og drap hann þannig. Hún bar að hann hefði verið vondur við sig og hlaut vægan dóm fyrir. Kannski verður þetta eitthvað svipað núna.
Baldur Hermannsson, 30.4.2010 kl. 23:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.