28.5.2014 | 07:48
Áttu 400 þúsundkall aflögu?
Á kjörtímabilinu sem nú er að líða hafa álögur hækkað um rúmlega 400 þúsund krónur á hverja meðalfjölskyldu í Reykjavík. Útsvarið hefur verið sett í hæstu mögulegu hæðir og þjónustugjöld borgarinnar hækkað langt umfram verðlagsbreytingar. Auk þess sem að skuldir borgarsjóðs hafa aukist um 625 þúsund krónur hverja klukkustund yfirstandandi kjörtímabils.
Maður skyldi ætla að við slíka hækkun hefði annað tveggja gerst, að þjónusta við borgarbúa hefði stórbatnað eða að borgarsjóður væri rekinn með gríðarlegum hagnaði.
Í nýlegri þjónustukönnun sem Gallup framkvæmdi í 16 stærstu sveitarfélögum landsins , var Reykjavíkurborg í neðsta sæti hvað ánægju íbúa varðar. Þannig að ekki er hægt að halda því fram að þjónustan hafi batnað svo einhverju nemi.
Þó svo að með bókhaldsbrellum hafi verið hægt að láta rekstur borgarsjóðs koma út í plús árið 2013, er samt ekki hægt að sjá mikinn bata á rekstrinum. Enda handbært fé frá rekstri mun minna árið 2013 en það var árið 2012 þegar borgarsjóður var rekinn með tapi.
Það er því ekki annað að sjá en að hækkandi álögur á borgarbúa hafi að mestu farið í hít óábyrgrar fjármálastjórnunar, þar sem fjámunum er forgangsraðað í þágu gæluverkefna á kostnað grunnþjónustu.
Þegar fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár var kynnt, var gert ráð fyrir enn frekari hækkunum á þjónustugjöldum borgarinnar. . Eftir nokkurn þrýsting, m.a. frá aðilum vinnumarkaðsins neyddust borgaryfirvöld til að draga þessar hækkanir til baka. Þó ekki með meira afgerandi hætti en að:
Ef forsendur bregðast hins vegar áskilur Reykjavíkurborg sér rétt til að taka gjaldskrár til endurskoðunar á síðari hluta árs 2014."
Eftir því sem næst verður komist hafa engar forsendur fyrir því að taka hækkunina til baka breyst, hvað varðar almenna stöðu efnahagsmála í landinu. Engu að síður er það þó svo, að vissulega munu forsendur breytast, verði sami meirihluti enn við völd eftir kosningarnar í lok vikunnar.
Hvorki Samfylking né Björt framtíð, boða beinlínis ábyrga fjármálastjórn í borginni, haldi þessir flokkar umboði sínu til meirihluta. Öðru nær er það svo öll þeirra kosningarloforð og þá sér í lagi loforð Samfylkingar munu hafa í för með sér stóraukinn kostnað fyrir borgarsjóð.
Auknum kostnaði verður eingöngu mætt með gjaldskrárhækkunum og eða frekari lántökum borgarsjóðs.
Sú spurning hlýtur því að brenna á vörum kjósenda í Reykjavík, áður en þeir kjósa aftur yfir sig núverandi meirihluta í borginni; hvort þeir eigi annan 400 þúsundkall aflögu?
Grein birt á visir.is 27.5. 2014.Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.