9.12.2012 | 15:07
Af sykurskatti, öðrum sköttum og svokölluðum aðgerðum stjórnvalda fyrir heimilin í landinu.
Til þess að tala niður vísitöluáhrif sykurskattsins er sagt að skattar á svokallaðar hollustuvörur lækki.
Það þýðir samt ekki endilega að slík lækkun dragi úr vísitöluáhrifum sykurskattsins.
Í fljótu bragði má benda á tvennt sem ýtir undir þá fullyrðingu.
Það fyrra er að skattalækkunin á hollustuvörurnar er aðeins 300 milljónir en hækkunin vegna sykurskattsins er hins vegar áætluð ca. 800 milljónir.
Auk þess að það er engin trygging fyrir því að þrátt fyrir lækkun skatta á hollustuvörur að þær vörur lækki í verði sem að skattalækkuninni nemur.
Hvað manneldissjónarmið varðar, er varla hægt að tala um að slíkt sjónarmið sé uppi, þó slíku sé haldið fram. Enda miðast sykurskatturinn, sem á jú í orði að minnka sykurneyslu þjóðarinnar, við sömu sykurneyslu og fyrir sykurskatt.
Það er því nokkuð ljóst að hækkunin á lánum heimilana við þennan sykurskatt verður 1,3 milljarður sem bætist við þá 3 milljarði sem hækkun neftóbaksgjalds veldur, verðhækkun á innanlandsflugi, vegna aukinnar skattheimtu stjórnvalda, sem einnig mun flæða út í vísitöluna. Að ógleymdri milljarðahækkun vegna nýrrar byggingareglugerðar sem hækka mun byggingarkostnað í landinu um 15 % og þar með vísitöluna um rúm 3 %, þar sem hækkun byggingakostnaðar vegur rúmlega einn fimmta við útreikning vísitölu lána.
Það er því eins fjarri lagi og hugsast má, að stjórnvöld séu vakin og sofin yfir því að bæta hag heimilana í landinu. Jafnvel þó til komi einhverjar hækkanir á barna og vaxtabótum. Þær bætur eru jú greiddar af Ríkissjóði og ef að hann er ekki rekinn með hagnaði, þá þarf að hækka skatta eða taka lán fyrir öllum nýjum kostnaði.
Skattahækkanirnar fara beint út í verðlagið og hækka lán heimilana og reyndar atvinnulífsins líka. En lántökurnar til þess að mæta auknum kostnaði Ríkissjóðs, eru ávísun á skattahækkanir í framtíðinni, sem flæða út í verðlagið og valda hækkun lána. Því síðar mun vanta fjármagn til þess að greiða niður lánin.
Meintar aðgerðir stjórnvalda til lækkunar skulda heimilana eru því besta falli ekkert annað en nafnbreyting og tilfærsla á kostnaði lántakenda og annara í landinu.
Fólk er því að borga það sama eða meira, í flestum tilfellum, en það gerði fyrir allar björgunaraðgerðir stjórnarflokkanna vegna skulda heimilana.
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.