Það dylst fáum sem það vilja vita, að ráðning ráðuneytisstjóra í nýtt Atvinnuvega og nýsköpunnarráðuneyti, mun aldrei verða fagleg, heldur pólitísk. Sé litið til boðaðs verklags verðandi ráðherra ráðuneytisins, Steingríms J. (hvað sem þetta joð nú þýðir) Sigfússonar.
En eftir Steingrími er eftirfarandi haft í fréttum RÚV:
"Steingrímur J. Sigfússon sem verður ráðherra nýja atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sagði í fréttum í gær að hvoru tveggja væri jafngilt að auglýsa embættið eða flytja embættismenn úr einu starfi í annað án þess að auglýsa. "
Samkvæmt þessu gætu ráðherrar framtíðarinnar sleppt því að auglýsa í stöður innan ráðuneyta sinna, þegar þær losna.
Ráðherra sem ekki væri búinn að fylla kvóta sinn fyrir pólitíska aðstoðarmenn, gæti t.d. hæglega ráðið þann sem hann sjálfur vill, alveg óháð hæfni viðkomandi, í stöðu pólitísks aðstoðarmanns og fært hann svo til innan ráðuneytisins upp í stöðu ráðuneytisstjóra.
Hitt er svo aftur á móti annað mál, að um nýtt ráðuneyti með nýja kennitölu er að ræða, þó það sé samsett úr nokkrum eldri ráðuneytum. Það er því um nýtt, auglýsingaskylt starf að ræða.
Boðað verklag Steingríms J. (hvað sem þetta joð nú þýðir) er því á mjög gráu svæði og síst til þess fallið að auka traust til stjórnsýslu hins opinbera.
Mér segir svo hugur að fagleg sjónarmið muni ekki búa að baki ráðningunni, heldur pólitísk. Sökum þess, á hversu viðkvæmu stigi ESB-umsóknin er.
Það er því nánast hægt að tala um pólitíska ráðningu og því allt eins líklegt að ráðuneytisstjórinn verði vart lengi í starfi, er nýir flokkar taka við stjórn landsins næstkomandi vor.
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Erlent
- Tveir Danir á meðal ferðamanna sem létust
- John Prescott er látinn
- Boða byltingu í flugi til Grænlands
- Lars Løkke: Danir fylgjast náið með
- Vinaþjóðir Úkraínu kyndi undir sálfræðihernað Rússa
- Yfirvöld láta ekkert uppi: Sænsk herskip kölluð út
- Danir og Svíar útiloka ekki skemmdarverk
- Þúsundir þrömmuðu um götur Aþenu
- Ergelsi hjá Google
- Tvíburasystur týndust í Tyrklandi
Athugasemdir
Svo undrast menn að trú á stjórnsýslunni er í sögulegu lágmarki.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.7.2012 kl. 20:13
Ég er sammála Ásthildi :)
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.7.2012 kl. 01:58
Lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríksins:
7. gr. Laust embætti skal auglýsa í Lögbirtingablaði og skal umsóknarfrestur ekki vera skemmri en tvær vikur frá útgáfudegi blaðsins. Þó er heimilt að skipa mann eða setja í embætti skv. 2. mgr. 23. gr. [eða setja í forföllum skv. 1. málsl. 24. gr.]1) eða flytja hann til í embætti skv. 36. gr. án þess að embættið sé auglýst laust til umsóknar.
36. gr.
Stjórnvald, sem skipað hefur mann í embætti, getur flutt hann úr einu embætti í annað, enda heyri bæði embættin undir það. Enn fremur getur stjórnvald, sem skipað hefur mann í embætti, samþykkt að hann flytjist í annað embætti er lýtur öðru stjórnvaldi, enda óski það stjórnvald eftir því.
Þór Steinarsson (IP-tala skráð) 19.7.2012 kl. 12:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.