3.6.2012 | 21:56
Fáranleg spurning Helgu Arnardóttur.
Ég held að Helga Arnardóttir ætti að fá sér einhverja aðra vinnu. Í það minnsta að íhuga slíkt. Líklegast er þó, ef að Stöð 2 er alvöru fjölmiðill,að þá verði það hennar veruleiki á morgun.
Hæstvirtur forsætisráðherra hefur oftar en einu sinni á þessu kjörtímabili, sagt sem svo, að verði ,,sægreifarnir" með eitthvað múður, þá láti hún bara þjóðina kjósa, um framtíðarskipan fiskveiða.
Auk þess hafa af og til undanfarin misseri, heyrst raddir úr öðrum áttum, þess efnis að þjóðin ætti að fá að kjósa um framtíðarskipan fiskveiða hér við land. Engin þessara radda hefur þó komið úr ranni útgerðarmanna.
Líklegast er að LÍÚ kæri sig lítt um þjóðaratkvæði um kvótafrumvörp Steingríms, nema nokkuð ljóst sé að meirihluti þjóðarinnar sé þeim andvígur.
Fari svo að bæði þingið og svo þjóðin í þjóðaratkvæði samþykki frumvörp Steingríms, þá verður það snúnara fyrir næstu ríkisstjórn að vinda ofan af þeim.
Verði frumvörpin hins vegar að lögum án aðkomu þjóðarinnar í þjóðaratkvæði, þá er það alveg einboðið að næsta ríkisstjórn einhendir sér í það að bjarga því sem bjargað verður.
Það er því nokkuð ljóst að það vakti varla fyrir Helgu að stuðla að upplýstri umræðu í þessu tilviki, frekar en á öðrum stöðum í kappræðum þessum. Í besta falli er hægt að segja stelpuna ekki hafa lesið heima.
Er ekki að kaupa atkvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fyrir utan hvað útgerðarmenn eru orðnir fáir.......
GB (IP-tala skráð) 4.6.2012 kl. 11:17
Það var eitthvað rætið og ósanngjarnt við þessa spurningu, mjög forvitnilegt að vita hvaða hvatir voru á bakvið svona klúðurslega spurningu.
Mofi, 4.6.2012 kl. 13:04
Tek undir með Mofa hér að ofan. Þetta er furðulega gildishlaðin spurnig. AF hverju spurði hún ekki Ólaf hvort hann væri hættur að berja konuna sína? Álíka fáránlegt dæmi.
Landfari, 4.6.2012 kl. 23:58
Stöð 2 er fasíska og andlýðræðislega stöðin sem rak Sigmund fyrir að ætla að koma upp um bankana fyrir hrun, stunda markvist til að sundra þjóðum og heilaþvo þær. Það sem Herdís segir er allt satt, enda er hún hámenntuð og fluggáfuð kona, ekki einhver ljóska sem er atvinnu strengjabrúða þessara sömu fjölmiðla og eru nú að reyna að heilaþvo heimskasta hluta landsmanna, þann sem er minnst menntaður (ekki í merkingunni skólaður endilega, heldur bara verst lesinn og með minnsta þjálfun í að nota heilabúið, sökum skorts á sjálfstæðri hugsun) og með lægstu greindarvísitöluna til að kjósa þessa sömu ljósku. Alvöru fólk kýs Herdísi eða Andreu. Ari Trausti var einu sinni fínn en honum hefur förlast mikið og á ekki lengur erindi. Hermann er eins konar mini-Þóra, sammála henni í einu og öllu, en hefur ekkert til málanna að leggja. Heilaþveginn kjáni, sem ólíkt Þóru, hefur ekki vísvitandi selt sál sína þessu heilaþvotts öflum, heldur líkt og flestir kjósendur Þóru bara gert það óvart sökum skorts á hugsun. Herdís er heimsfrægur lögfræðingur sem nýtur virðingar starfsfélaga sinna um allan heim og veitir þeim forstöðu á alþjóðavísu. Hún er kona sem tekið er mark á. Andrea hefur bjargað þúsundum heilila frá hruni með Hagsmunasamtökum heimilanna. Þóra er bara stelpukjáni sem hefur ekkert merkilegra að flagga en börnum (sem er einstaklega kvenfjandsamlegt að gera að central-þema í svona kosningabaráttu) og hefur hingað til fengið laun fyrir að brosa og vera viðeigandi og lesa handrit, og ætlar að halda það áfram. Þeir sem kjósa hana skiptast í tvo hóða, en það eru auðvitað bara braindead zombies og kvenhatarar, og það er sorglegt, og hins vegar þeir sem álíta þjóðina almennt vera slíka braindead zombies, og ætla að kjósa Þóru því þeir álíta að sökum heimsku annarra landsmanna eigi hún ein séns, og því þess virði að svíkja lýðræðið og réttlætið með því að kjósa hana, bara til að vera Á MÓTI Ólafi Ragnari, en þegar slíkt fólk, sem er á MÓTI einhverju í stað þess að vera með einhverju, ræður of miklu í neinu samfélagi, þá verður óhjákvæmilegt niðurrif og afturför, því svona hugsunarháttur veldur stöðnun og skilar engum árangri, og á endanum veldur hann algjöru niðurbroti.
Í boði eru tvær afburðarkonur. Baráttukona og hugsjónakona á landsvísu, hún Andrea, sem hefur sem höfuð Hagsmunasamtaka heimilanna um langt skeið unnið þúsundum heimila mikið gang, og síðan lögfræðingur á heimsmælikvarða og séní sem heitir Herdís, hugrökk kona sem er tilbúin að láta verkin tala. Síðan er í boði innantóma ljóskan Þóra, sem hefur sem fjölmiðlakona í landi sem hefur einhverja ófrjálsustu fjölmiðla heims, sem eru á hvað fæstum höndum sem beintengdustu fasíska armi auðvaldsins sem þekkist á Vesturlöndum (svo mjög að í raun má leiða líkum að því að fjölmiðlalögin sem Dabbi ætlaði að setja hefðu í raun komið í veg fyrir hrunið, þó hann kunni að hafa látið leiðast af öðrum hvötum en góðum einum, þá hefðu fjölmiðlar aldrei náð að svæfa og heilaþvo landanna svo mjög og slá skjaldborg þöggunnar um auðmenn og glæpi þeirra (enda margir góðir menn aðrir en Sigmundur reknir úr starfi fyrir að ætla að dirfast að rjúfa þagnarmúrinn, þó fáir hafi verið nógu hugaðir til að segja frá eftir allar hótanirnar) en nú vilja þessir sömu fjölmiðlar heilaþvo skrýlinn til að kjósa meinlausa ljósku sem hefur þegar fengið þjálfun á vegum fjölmiðla sem viljalaus strengjabrúða auðvaldsins og þöggunnaraflanna.
Ég er að velja milli Andreu og Herdísar. Allt almennilegt og gott fólk er í sömu sporum. Þegar þögull leiðir þögla þá ræður þöggunin ríkjum og fjölmiðlar hennar munu þá innleiða hér einræði og fasisma.
Páll (IP-tala skráð) 12.6.2012 kl. 15:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.