12.2.2012 | 21:10
Faglegar ráðningar hins opinbera á ,,gráu svæði"?
Á Rúv.is er frétt http://ruv.is/frett/radningin-ologleg sem lætur lítið yfir sér. Þessi frétt gæti þó markað ákveðin tímamót í mannaráðningum hins opinbera.
Í fréttinni segir meðal annars:
,,Megin athugasemd ráðuneytisins er sú að bæjarfélögin hafi í raun framselt ráðninguna og allt mat á umsækjendum til ráðningarþjónustu, sem fengin var til að meta hæfi umsækjenda. Síðan hafi ráðningarþjónustan lagt til hver skyldi ráðinn. Sú tillaga hafi verið samþykkt í bæjarstjórn og bæjarráði. Með þessu hafi bæjarstjórn afsalað sér þeirri ábyrgð sem á hana er lögð samkvæmt stjórnsýslulögum; að afla sér fullnægjandi gagna, áður en ráðið var í starfið. Ráðningin var því úrskurðuð ólögmæt."
Nú er það svo að ráðningarferli hjá hinu opinbera, sem nú til dags eru kölluð ,,fagleg" er flest ef ekki öll með þessum hætti, sé auglýst í þá stöðu sem losnar, eða stofnuð er hjá hinu opinbera.
Ég man í svipinn eftir þremur ráðningum hins opinbera, sem voru með áþekkum hætti og urðu allar umdeildar. Þar á ég við ráðningu skrifstofustjóra í Forsætisráðuneyti, umboðsmanns skuldara og forstjóra Bankasýslu ríkisins.
Tvær síðast töldu ráðningarnar, gengu hins vegar til baka. Ráðninging umboðsmanns skuldara var dregin til baka, þar sem sá ráðherra er bar á henni ábyrgð, treysti sér ekki til þess að verja hana ,,pólitískt". Ráðning forstjóra bankasýslunar gekk svo til baka, eftir að stjórn bankasýslunnar sagði af sér og sá sem ráðinn var, afþakkaði stöðuna.
Ráðning skrifstofustjórans var hins vegar úrskurðuð sem brot á jafnréttislöggjöfinni, af Úrskurðunarnefnd jafnréttislaga, sem sett var á laggirnar við gildistöku svo til nýlegrar jafnréttislöggjafar.
Allir þeir sem ábyrgð báru á ofantöldum ráðningum, töldu sig ekkert rangt hafa gert, enda ráðningarnar allar ,,faglegar" og mat það sem lá að baki ráðningu, unnið af ráðningarþjónustu út í bæ.
Úrskurður Innanríkisráðuneytisins segir hins vegar, að þeir aðilar sem standa að ráðningum hjá hinu opinbera, megi ekki varpa ábyrgð þeirri sem fylgir því að meta hæfni fólks til starfa hjá hinu opinbera, á einhverjar ráðningarþjónustur út í bæ. Heldur eigi sú vinna að fara fram hjá þeirri stofnun er í stöðuna ræður. Enda ber sú stofnun ábyrgð á ráðningunni. En ekki einhver ráðningarþjónusta út i bæ.
Þessi úrskurður hlýtur að verða til þess, að þessi svokölluðu ,,faglegu" ráðningarferli hins opinbera, verði tekin til alvarlegrar endurskoðunnar. Jafnvel þó svo að þau hafi þótt það ,,fagleg" að brjóta mætti jafnréttislöggjöfina, vegna þeirrar ,,fagmennsku" sem þar bjó að baki.
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.